Fréttatíminn - 30.09.2011, Blaðsíða 28
L
okaumferð Pepsi-deildar-
innar í fótbolta fer fram
á morgun, laugardag.
Spennan á toppi deildar-
innar hvarf eins og dögg
fyrir sólu þegar KR-ingar tryggðu
sér Íslandsmeistaratitilinn um
síðustu helgi. Aðeins er eftir barátta
ÍBV og Stjörnunnar um þriðja sætið
sem veitir þátttökurétt í Evrópu-
keppninni á næsta ári. Eyjamenn
mæta Grindvíkingum á heimavelli
í síðustu umferðinni en Stjörnu-
menn sækja Blika heim í Kópavog-
inn. Eyjamenn eru með tveggja
stiga forystu á Stjörnumenn fyrir
lokaumferðina en lakari markatölu.
Ef Stjörnumenn vinna Blika verða
Eyjamenn að sigra Grindvíkinga til
að halda þriðja sætinu. Eyjamenn
gætu síðan með sigri skotist upp
fyrir FH-inga í annað sætið ef FH
vinnur ekki Fylki í Árbænum.
Það er hins vegar öllu meiri
spenna á botninum. Víkingar eru
þegar fallnir en fjögur lið, Keflavík,
Fram, Þór og Grindavík, geta öll
fylgt þeim niður í 1. deild á næsta ári
fyrir lokaumferðina. Staða Grind-
víkinga er sýnu verst. Þeir eru í
næstneðsta sæti, stigi á eftir hinum
liðunum þremur og með lökustu
markatöluna. Til að bæta gráu ofan
á svart eiga þeir síðan erfiðasta
leikinn af liðunum fjórum, gegn
ÍBV á útivelli. Ljóst er að Grindavík
þarf að vinna ÍBV á laugardag til að
halda sæti sínu í deildinni. Ef liðið
gerir jafntefli þarf það að treysta á
að Keflavík vinni Þór með tveimur
mörkum svo að Akureyrarliðið falli.
Ef Grindavík gerir 3-3 jafntefli við
lið geta fallið
með Víkingum4
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
28 fótbolti Helgin 30. september-2. október 2011