Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.09.2011, Síða 15

Fréttatíminn - 30.09.2011, Síða 15
Fáir kaupendur að fasteignunum Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs. Ljósmynd/Hari „Það selst minna en við komum á markað. Markaðurinn kaupir ekki eignirnar,“ segir Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs. Því kemur ekki að sök, að hans sögn, að hægt gangi að setja eignir sjóðsins á sölu. Sjóðurinn á rúmlega 1.400 eignir; 433 standa tómar, þar af 63 á höfuðborgarsvæðinu, og um 40% þeirra eru í útleigu. Einungis 4% eignanna, alls 57, eru í sölu en tveir fasteignasalar sjóðsins koma upplýsingum um hverja íbúð til allt að tíu fasteignasala. Verkið gengur hægt því þeir feraist einn- ig um landið, meta íbúðirnar og setja í sölu. Spurður hvort íbúðirnar séu þá ekki of dýrar svarar hann: „Ég hef verið að taka stöðuna síðustu mánuði og þegar búið er að taka tillit til ástands eignanna, taka frá þær sem eru sérlega auðseljan- legar eða þær sem eru mjög illa farnar, er niðurstaðan samt sú að við séum að selja undir markaðs- verði. Og það er í rauninni óþol- andi fyrir þegna þessa lands og skattgreiðendur sem vilja að ríkið fari vel með sitt fé; þetta er í raun ráðstöfun ríkisfjármuna,“ segir hann. „Við viljum ekki ýta upp verðinu og ekki selja of ódýrt, en hættan er sú að þær fari of ódýrt.“ Þá getur kaupandinn snúið sér við og endurselt á hærra verði. Spurður hvort hann sjái fyrir sér að það hefði áhrif á verð til lækkunar, setti sjóðurinn allar eignirnar á markað í einu, svarar hann: „Þegar við setjum eignir í sölu eru þær ekki aðgreindar sem eignir frá Íbúðalánasjóði, ekki fyrr en menn gera tilboð. Ég er því ekki viss um að það hefði bein áhrif. Þær eru einnig dreifðar um allt land og minnst af þeim á höf- uðborgarsvæðinu.“ gag@frettatiminn.is Helgin 30. september-2. október 2011 arionbanki.is – 444 7000 „Enga verðtryggingu, takk.“ Óverðtryggð íbúðalán Hvað skiptir þig máli? Kynntu þér óverðtryggð íbúðalán Arion banka á arionbanki.is. Tinna Björk Baldvinsdóttir, 38 ára. Við erum flutt! Suðurlandsbraut 2 Hilton Reykjavik Nordica VITA er lífið VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is LETTLANDI Falleg borg með steinlögðum strætum og merkum byggingum frá fyrri öldum. Saga, menning, góðir veitingastaðir og fyrirtaksverslanir. Verð frá 69.900 kr.* og 15.000 Vildarpunktar M.v. 2 í tvíbýli á Hotel Albert í 3 nætur. Innifalið: Flug fram og til baka, flugvallarskattar, gisting með morgunverði og íslensk fararstjórn. *Verð án Vildarpunkta 79.900 kr. 7. okt. 3 nætur RIGA Örfá sæti laus! Þrjár nætur í Riga, Lettlandi Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.