Fréttatíminn - 30.09.2011, Síða 22
Fæðingar-
þunglyndi
veldur miklu
álagi í sam-
búð. Það er
erfitt fyrir
maka að
horfa upp
á konu sína
brotna niður.
Sjálfsmyndin
brotnar,
makinn
reynir að fá
hana út en
hún vill ekki
fara og hitta
neinn. Mak-
inn er farinn
að vinna og
sér konuna
veslast upp
eina heima.
Blúsuð með nýfætt barn
S
jaldgæft er að konur upp-
lifi fæðingarþunglyndi án
þess að eiga sögu um áföll í
lífinu, einhverja erfiðleika,
jafnvel kvíða, depurð eða
þunglyndi. Hlutfall kvenna sem upplifa
þunglyndi í kjölfar barnsfæðingar virðist
heldur ekki vera hærra en meðal ann-
arra kvenna á barneignaraldri. Einnig
er mjög erfitt að tengja fæðingarþung-
lyndi við hormónabreytingar. Hlutfall
kvenna sem finna fyrir fæðingarþung-
lyndi er á bilinu 9 til 12 prósent. Þetta
er vísir að niðurstöðu rannsóknar sem
sérfræðingar innan heilsugæslunnar,
Landspítalans og Háskóla Íslands hafa
unnið að frá haustinu 2006. Spurninga-
listar voru lagðir fyrir 2.500 konur
í mæðravernd á Akureyri og
í Reykjavík og um 500 kon-
ur hafa komið í frekari viðtöl
eftir að barnið var fætt.
Ekki upp úr þurru
„Það sem virðist koma í
ljós er að það er alls ekki
algengt konur fái fæðingar-
þunglyndi alveg upp úr þurru og að
fæðingarþunglyndi sé einhver óværa
sem liggi í leyni,“ segir Linda Bára
Lýðsdóttir, sálfræðingur á kvennadeild
Landspítalans, og bætir því við að það
komi hópnum sem vinni að rannsókn-
inni ekkert sérstaklega á óvart. Að
henni standa þær Linda Bára og Hall-
dóra Ólafsdóttir, yfirlæknir á geðdeild
á göngudeild LSH, ásamt Mörgu
Thome, prófessor í hjúkrunardeild HÍ,
Jóni Friðriki Sigurðssyni, yfirsálfræð-
ingi á LSH, Sigríði Síu Jónsdóttur, ljós-
móður á Akureyri, og Sigríði Brynju
Sigurðardóttur, yfirhjúkrunarfræðingi
heilsugæslunnar í Grafarvogi. Það sem
komi hópnum mest á óvart
sé
hversu
marg-
ar
konur
finni
fyrir
kvíða á meðgöngunni og eftir barns-
burð.
„Og ef ófrísk kona finnur fyrir kvíða
sem fær að grassera óáreittur, aukast
líkur á þunglyndi eftir fæðingu. Orkan
klárast við það að vera alltaf með kvíða-
hnút, alltaf með kökkinn í hálsinum
og kvíða öllu. Móðirin gefst upp á end-
anum. Hún verður döpur. Kvíðinn siglir
því með margar inn í þunglyndið,“ seg-
ir Linda Bára og bendir á að það sé því
merkilegt að fókusinn sé oftast á þung-
lyndi en sjaldan eða aldrei sé talað um
kvíða. „Margar sem leita til mín gera
það vegna kvíða, ekki þunglyndis. Þær
geta haft áhyggjur af fjárhagnum eða
af öðrum börnum sínum, svo dæmi séu
tekin, jafnvel misst fóstur á meðgöngu
og eru kvíðnar. Sumar eru einfaldlega
kvíðnar að eðlisfari og því margt sem
getur spilað þar inn í.“
Með þráhyggju
Það kom sérfræðingunum einnig á
óvart hve margar konur eru haldnar
þráhyggju eftir barnsburð. „Þær hugsa
um hluti sem þeim finnst óhugnan-
legir, hreinlega ógeðfelldir. Það eru
hugsanir eins og að missa barnið. Þær
sjá fyrir sér hvernig barnið slengist í
hornið á sófaborðinu. Þessar hugsanir
vekja svakaleg viðbrögð hjá mæðrum
því þarna sjá þær fyrir sér það versta
sem getur gerst. Sumar hrista
þetta af sér, þá helst þær sem
eru ekki með kvíða fyrir. En
hafi þær tilhneigingu til kvíða
geta þær mistúlkað og farið að
hugsa um allar þær sögur þar
sem greint er frá brjáluðum
mæðrum sem drepa börnin
sín,“ segir Linda.
„Þær velta þá fyrir sér hvort
þær séu slíkar mæður og finna
fyrir ótrúlegri vanlíðan – eru
skelfingu lostnar. Um þetta tala
konur sjaldan því þær skamm-
ast sín fyrir hugsanirnar, en
það kemur í ljós að 20 til 30
prósent kvenna finna fyrir
þessu, jafnvel fleiri, en fáar vilja
viðurkenna það. Sumir erlendir
sérfræðingar segja að jafnvel
karlmenn finni fyrir þessu.“
Linda Bára segir mikilvægt
fyrir konur að vita að þetta
sé ekki óalgengt og valdi
ekki því að konur skaði
ungbörnin sín. Afar fá
dæmi séu um slíkt.
Ekki hormónin
Linda bendir á að í rannsóknum hafi
gengið illa að tengja fæðingarþung-
lyndi við hormónabreytingarnar í kjöl-
far fæðingar en hún sé með varann á,
komi konur sem sjái enga ástæðu fyrir
þunglyndi sínu. „Þess vegna erum við
mjög vakandi fyrir því að skjaldkirtils-
starfsemin geti hafa brenglast, komi
konur án sögu um þunglyndi til okkar,
því einkennunum svipar mjög saman.
Ég sendi því þær konur yfirleitt til
heimilislæknis í blóðprufu til þess
að athuga með skjaldkirtilinn.“ Hún
sjái svo oftast margar ástæður fyrir
þunglyndinu þegar hún taki viðtöl við
konurnar.
„Þá sit ég með þeim og segi: Sjáðu
alla þessa þætti, ég ætla að teikna þá
upp fyrir þig. Er ekki svolítið skiljan-
legt að þú finnir fyrir depurð? En ég
hef þó fengið konur til mín þar sem
þunglyndið virðist koma sem þruma
úr heiðskíru lofti. Þær eru ekki marg-
ar, þannig að það eru hugsanlega ein-
hver prósent sem upplifa þetta hreina,
hreina fæðingarþunglyndi sem getur
hugsanlega orðið til við hormóna-
breytingarnar. En það er afar erfitt að
finna það með rannsóknum.“
Hormónabreytingar leiða þó oft
til vanlíðanar sængurkvenna. „Hinn
svokallaði sængurkvennagrátur er
mjög algengur, svona þremur til fimm
dögum eftir fæðingu. Ég verð alltaf
svolítið frústreruð þegar ég fæ til mín
móður sem þekkir ekki til sængur-
kvennagráts – og skilur ekki vanlíðan
sína, en allt að 75 prósent kvenna
finna fyrir honum. Mjög oft er þetta
einn til tveir klukkutímar, jafnvel
nokkrir dagar. Á þeim tíma er allt í
huga konunnar vonlaust, ömurlegt og
hún veit ekki af hverju. Hún verður
blúsuð en blúsinn hverfur. Séu hins
vegar erfiðleikar hjá konunni; barnið
veikt, kannski með gulu, eða annað
sem veldur áhyggjum; konan veik
eða erfiðleikar með brjóstagjöf, léttir
sængurkvennagráturinn þeim ekki
lífið. Þær sem gera sér ekki grein fyrir
þessu geta lengt þetta ástand, jafnvel
svo að það komi af stað þunglyndi.“
Svefninn segir hún að komi í veg fyrir
margt.
Svefnleysi skaðar
„Ef einstaklingur er vansvefta versnar
allt. Margar konur eiga erfitt með að
sofa eftir fæðingu barns. Þær fylgjast
með barninu, eru stressaðar og hrædd-
ar um að barnið andi ekki. Það er ekki
Hvað er fæðingarþunglyndi? Er það meðgönguóværa, fæðingaróværa eða
tímabil sem fer einfaldlega illa í sumar konur?
Afar algengt er að konur finni
fyrir sængurkvennagráti
eftir fæðingu barns, en
ein af hverjum tíu
finnur einnig fyrir
þunglyndi.
Ljósmynd/Getty
Images
22 fréttaskýring Helgin 30. september-2. október 2011