Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.09.2011, Page 61

Fréttatíminn - 30.09.2011, Page 61
tíska 57 Helgin 30. september-2. október 2011 Tískurisinn H&M tók nýja stefnu í byrjun þessa árs með framleiðslu á nýju línunni Conscious sem er umhverfisvæn og unnin úr lífrænum efnum. Línan kom í verslanir H&M um heim allan í vor, einkum ljós og vandaður fatnaður, og seldist hún upp úr öllu valdi. Nú hefur ný Conscious- haustlína komið í verslanir H&M og er hún öðruvísi en sú síðasta. Fötin eru flest rómantísk með áberandi blómamynstri; kvenlegur og fágaður fatnaður. Einnig er þarna að finna töskur, skart og skófatnað, kodda, teppi og fleiri heimilisvörur. 100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN ÍS LE N SK A S ÍA .IS M SA 5 60 78 0 8/ 11 WWW.MS.IS PRÓTEINDRYKKURINN SEM ÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF KAUPTU 4 OG FÁðU 6 MJÓLKURSAMSALAN HOLL OG UPPBYGGILEG NÆRING EFTIR GÓÐA ÆFINGU. HENTAR VEL FÓLKI MEÐ MJÓLKURSYKURSÓÞOL. Kjóll Verð 10.500 kr. Einlitir og munstraðir Str. 38 - 56 Kápa Verð 7.900 kr. Tveir litir. Str. 40 - 56 Kápur og ermar í mörgum litum frá 5.900 - 13.900 kr. Bæjarlind 6, s: 554-7030 Eddufelli 2, s: 557-1730 Kíkið á heimasíðuna okkar www.rita.is Sendum í póstkröfu. KJÓLAR OG KÁPUR Fyrirsætan Naomi Campbell hefur meira og minna látið fyrirsætustörfin eiga sig síðustu mánuði og vinnur nú að sjónvarps- þáttaröð sem byggð er á ævi hennar. Í viðtali á sjón- varpsstöðinni CNBC, þar sem þættirnir verða sýndir í október, segir Naomi þetta vera einstakt tækifæri til að skoða lífshlaup sitt á þennan hátt. „Það er mikilvægt að muna hvaðan við komum og þessir sjónvarpsþættir hafa hjálpað mér að rifja upp alls kyns augnablik úr fortíðinni.“ Í þáttunum koma einnig fram frægir einstaklingar sem hafa kynnst Naomi í gegnum tíðina, til dæmis meðlimir hljómsveitarinnar Duran Duran og rit- stýrur Vogue. Sjónvarpsþættir um lífshlaup Naomi H jónabandi þeirra Demi Moore og Ashton Kutc-her er lokið ef marka má slúðurblöðin erlendis. Samband þeirra vakti mikla athygli árið 2003 vegna sextán ára aldursmunar og giftu þau sig tveimur árum seinna. 24. september síðastliðinn áttu þau sex ára brúðkaupsafmæli en héldu upp á það með ólíkum hætti. Demi var á frumsýningu í New York á meðan leikarinn var staddur á vest- urströndinni með vinum sínum og skemmti sér konunglega fram eftir nóttu. Tímaritið Us Magazine seg- ir leikarann ekki hafa farið einan heim eftir skrallið og sé þetta ekki í fyrsta skipti sem hann haldi fram hjá eiginkonunni. Tímaritið sagði einnig að hjónabandinu hefði lokið fyrir löngu og að þau hefðu sótt um skilnað fyrir tæplega tveimur mán- uðum. Demi Moore og Ashton Kutcher. Hjónabandinu lauk fyrir löngu Umhverfisvænn haust- fatnaður frá H&M

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.