Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 24
„Ég held að við höfum byrjað að
huga að þessu árið 2004 þannig að
þetta er að verða ansi langt. Maður
hugsar svo sem ekkert mikið um
það,“ segir Gunnar, „en þetta er sér-
kennileg tilfinning. Síðustu ár hef-
ur þetta verið tólf tíma vinna á dag,
hvern einasta dag. Svo er þetta bara
allt í einu búið. Ætli maður leggist
ekki í þunglyndi? Ég veit það ekki.“
Gunnar segir ekki óeðlilegt að
teiknimyndir af þessu tagi taki um
tíu ár í framleiðslu frá því að vinna
við þær hefst. „Það þarf náttúrlega
að búa allt til og þetta er rosaleg
handavinna.“
Myndin byggist á sögu Friðriks
Erlingssonar, Þór – í heljargreipum,
þar sem segir af járnsmiðnum Þór
í Mannheimum. Hann hefur ekki
hugmynd um að hann er sonur Óð-
ins en þegar hann fær hamarinn
Mjölni upp í hendurnar fara hlut-
irnir að gerast fyrir alvöru.
„Við lögðum mjög mikla vinnu
í söguna enda verður hún að vera
góð í framleiðslu sem er svona dýr.
Við förum reyndar mjög frjálslega
með bókina og skrifuðum alveg
upp á nýtt fyrir bíómyndina,“ segir
Gunnar. „Þetta er samt náttúrlega
allt byggt á bókinni en það þurfti að
laga söguna að kvikmyndaforminu.
Það komu margir að þessu og við
erum mjög ánægð með söguna.“
Hetjur Valhallar er fyrsta íslenska
teiknimyndin í fullri lengd og í
henni dreymir hinn unga Þór um
frægð og frama á vígvellinum, fjarri
járnsmiðju móður sinnar. Á meðan
Þór dreymir dagdrauma bruggar
undirheimadrottningin Hel laun-
ráð gegn goðum og mönnum. Hins
vegar vill svo heppilega til að Þór
fær þá óvænt Mjölni upp í hendurn-
ar og skyndilega eru örlög heimsins
undir Þór og hamrinum komin.
Hetjur Valhallar er dýrasta mynd
sem gerð hefur verið á Íslandi en
Gunnar vill ekki gera of mikið úr
kostnaðinum. „Það er búið að selja
hana í bíó til 55 landa enda þýðir
ekkert að hugsa bara um Ísland í
þessu samhengi. Það er mikið talað
um hversu dýr þessi mynd sé en ég
held að hún sé frekar ódýr vegna
þess að hún á áreiðanlega eftir að
skila svo miklu til baka. Hún kost-
ar náttúrlega bara einn tíunda af
því sem þessar amerísku myndir
kosta.“ Gunnar segir mikinn áhuga
á því að gera framhaldsmynd um
Þór. „Til dæmis er ekkert sagt frá
Loka í þessari mynd og við erum í
raun alveg tilbúin með handrit fyrir
næstu mynd.“
Óskar Jónasson leikstýrir mynd-
inni en Gunnar og Toby Genkel eru
meðleikstjórar. „Óskar er sá sem
tekur endanlegar ákvarðanir og ég
ber meiri ábyrgð á útliti myndarinn-
ar og þess háttar.“
Þór lemur á jötnum
Þrívíða tölvuteiknimyndin Hetjur Valhallar – Þór verður frum-
sýnd í dag, föstudag, en myndarinnar hefur verið beðið með
töluverðri eftirvæntingu enda hefur hún verið í framleiðslu í
ein sjö ár. Gunnar Karlsson, hjá Caoz, hefur fylgt verkefninu
frá upphafi og á hvíta tjaldið. Hann er viðbúinn spennufalli nú
þegar þrumuguðinn ungi er loksins kominn á áfangastað.
Persónur og leikendur
Óðinn
Egill Ólafsson
Konungur goðanna, vitur og máttugur en
er full upptekinn af ljúfa lífinu í Ásgarði og
ómeðvitaður um að ill öfl eru að sækja í sig
veðrið. Hann hefur heldur ekki gefið hálf-
mennskum syni
sínum mikinn
gaum í gegnum
árin en þegar
hann kemst að því
að Þór og Mjölnir
hafa náð saman
verður breyting
þar á.
Edda
Ágústa Eva Erlends-
dóttir
Mennska stelpan Edda er
góðvinur Þórs og er oft
rödd skynseminnar í sam-
bandi þeirra.
Hún tekur
hag annarra
fram yfir
sinn eigin, er
alltaf hress
og ósmeyk
við að taka
málin í
sínar
hendur. Og
hún er sko
ekki hrædd
við
þursa.
Hel
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Gengur fyrir hatri á Óðni sem
kastaði henni í undir-
heima. Hún er metn-
aðargjörn og vill ná
sömu stöðu og Óðinn
sem allar skepnur
bæði óttast og
virða. Hún gengur
í bandalag við
þursana og telur sig
þannig hafa myndað
öflugan her helstu
óvina Óðins. Hún
stefnir síðan ótrauð
að því að drottna bæði
yfir mönnum og
þursum.
Freyja
Ester Talía Casey
Sem ástargyðjan
er Freyja
eftirsótt af
karlkyninu, og
þá ekki sýst
þursinum
Þrym.
Hún
er líka
bardaga-
kappi
mikill og
með ljón-
grimmum
valkyrjum
sínum
reynist hún
þursakóng-
inum býsna
erfið bráð.
Þór
Atli Rafn Sigurðarson
Er órólegur unglingur sem þráir annað og
meira en að vera bara þorpsjárnsmiðurinn.
Þegar Mjölnir fellur af himnum ofan í
hendur hans telur móðir hans að þar sé á
ferðinni skýrt teikn um að Þór eigi að vera
járnsmiður en ekki er allt sem sýnist og
Þórs bíða mikil ævintýri.
Mjölnir
Laddi
Töfrahamarinn
Mjölnir kemur úr
smiðju dvergsins
Sindra sem ætlar sér
að græða vel á því að
selja hann Óðni.
Þótt Mjölnir
virðist ekki til
stórræðanna
þá leynir hann á sér og er í raun
öflugasta vopn veraldar. Hann telur
sig hafa fundið fullkominn félaga í
Þór en hlutirnir ganga þó ekki jafn
vel fyrir sig og hann hefði kosið.
Gunnar Karlsson hefur verið vakinn og sofinn yfir Hetjum Valhallar um árabil og er tilbúinn með handrit að framhaldsmynd.
Ljósmynd Hari.
10% af sölu Pink Ribbon
tasknanna rennur til Krabba-
meinsfélagsins til að berjast
gegn krabbameini hjá konum.
töskurnar
Úr endurunnu efni sem tengist „Bleiku slaufunni“
Unnar eftir Fair Trade stefnunni
Fyrir hverja selda tösku er plantað tré
Leggðu þitt
af mörkum!
www.kolors.is
Endursöluaðilar:
Fríhöfnin/Duty Free Fashion Store –
Hrím Akureyri – Póley Vestmannaeyjum
TILBOÐ ELDSNEYTI STAÐIRMITT N1LÍFIÐDEKK
NÁÐU ÞÉR Í
NÝJA N1 APPIÐ
Með nýja N1 appinu geturðu keypt eldsneyti með
símanum þínum, skoðað færslur og punktastöðu,
kynnt þér N1 tilboðin, fundið næstu N1 stöð á korti
og jafnvel réttu dekkin eftir bílnúmerinu þínu. Vertu
með á nótunum og appaðu þig í gang með N1!
24 bíó Helgin 14.-16. október 2011