Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 48
44 bílar Helgin 14.-16. október 2011  AðAlskoðun Sækir fram á öllum Sviðum eftirlitS ALDREI KALT Í VETUR MEÐ WEBASTO BÍLAHITARA BÍLASMIÐURINN HF – BÍLDSHÖFÐA 16, 110 REYKJAVÍK – SÍMI 567 2330 – BILASMIDURINN@BILASMIDURINN.IS BÍLASMIÐURINN HF ÞAÐ ER KOMINN TÍMI Á DEKKJASKIPTI. KOMDu NúNA Og SlEPPTu vIÐ bIÐRöÐINA. uMfElguN fRÁ 5.641 KR. flESTAR STæRÐIR hEIlSÁRS- Og vETRARDEKKJA fyRIR fólKSbÍlA Og JEPPlINgA. fJölDI TEguNDA Á góÐu vERÐI. RAuÐhEllu 11 hJAllAhRAuNI 4 DugguvOgI 10 hJólbARÐAÞJóNuSTA RvK hfJ 568 2020 PITSTOP.IS hfJ www SÍMI Ónegld vetrar- og heilsársdekk – umhverfisvænni kostur a ðalskoðun hf. er faggilt skoðunarstofa, óháð hagsmunaaðilum og sækir fram á öllum sviðum eftirlits. Fyrirtækið var stofnað þann 13. september 1994 af 22 einstaklingum sem sumir hverjir hafa unnið hjá fyrirtækinu frá upphafi og starfa þar enn í dag. Markmiðið með stofnun Aðalskoðunar var að setja á fót hlutlausa, óháða skoðunarstofu á sviði skoðunar ökutækja. Skoðun ökutækja á vegum Aðalskoðunar hf. hófst í janúar 1995 og hefur fyrir- tækið því starfað í 16 ár. Fleiri eftirlitssvið hafa síðan bæst við og sinnir Aðalskoðun í dag markaðs- eftirliti með rafföngum fyrir stjórnvöld ásamt skoð- unum ökutækja. Aðalskoðun er með skoðunarstöðvar á þremur stöðum í Reykjavík en líka í Hafnarfirði, Kópavogi, Reykjanesbæ, Grundarfirði, Ólafsfirði og Reyðar- firði Friðrikka Auðunsdóttir er skrifstofustjóri Aðalskoðunar. Hún segir að þó fyrirtækið sinni nýskráningu ökutækja, eigendaskiptum og taki við bílnúmerum sem lögð eru inn sé alltaf mest að gera við lögbundna skoðun ökutækja. „Það er alltaf fjör rétt fyrir mánaðamót, það er eitthvað landlægt hérna að gera alltaf allt á síðstu stundu, sumir líta á þetta eins og að fara til tann- læknis og fresta því eins lengi og þeir geta,“ segir hún. Samkvæmt reglum um skoðun ökutækja á að skoða bílinn í þeim mánuði ársins sem síðasti stafurinn í númerinu segir til um. Þeir sem eru með númer sem enda á núll hafa þó síðustu þrjá mánuði ársins til að láta skoða og segir Friðrikka þá mánuði mjög rólega í fyrirtækinu. Fellihýsi og tjaldvagna þarf að skoða annað hvort ár, í maí, júní Alltaf fjör rétt fyrir mánaðamót Landlægt að gera allt á síðustu stundu en álagið yfir árið hefur jafnast eftir að sett var á vanrækslugjald. eða júlí og mótorhjól á hverju ári. En hvað með einkanúmer? „Ef þau enda á tölustaf er það sami mán- uður sem gildir en ef þau enda á bókstaf á fólk að koma í maí. Það er þess vegna mikið að gera í maí en það er líka mikið um að fólk vilji hafa bílana í lagi áður en það fer út á land í sumarfrí. En eftir að sýslumaðurinn í Bol- ungarvík tók upp á að sekta þá sem koma of seint með bílana í skoðun, 15 þúsund króna vanrækslugjald, hefur álagið jafnast mikið yfir árið.“ Hefur það gerst að bílar eru svo lélegir að þeir eru kyrrsettir? „Já, við höfum heimild til þess að kyrrsetja bíla. Þá fá þeir niðurstöðuna „notkun bönn- uð“ og eiga þeir að fara beint á verkstæði, til dæmis ef þeir eru bremsulausir eða eitthvað álíka þar sem örygginu er ábótavant.“ Eru Íslendingar ekki hættir að keyra á druslum? „Bílaflotinn hefur auðvitað elst undanfarin ár vegna ástandsins svo það eru sjálfsagt að verða til druslur. Þá er enn mikilvægara að sinna bílunum og hafa þá í lagi.“ En hvað með tísku í bílum? Er hún ein- hver? „Hún er ekki mjög sjáanleg núna en það var mikið á meðan verið var að nýskrá sem flesta bíla á árunum 2005-2007. Þá rúlluðu hér í gegn svartir Range Rover-bílar í röðum. En núna hafa orðið miklar breytingar. Þeir bílar eru vinsælastir sem menga minna og eyða minna, það snýst aðallega um það. Ég veit ekki hvort það er beint tíska eða hvort þetta er bara buddan.“ Bílaflotinn hefur auð- vitað elst undanfarin ár vegna ástandsins svo það eru sjálfsagt að verða til druslur. Þá er enn mikil- vægara að sinna bílun- um og hafa þá í lagi. kynning Friðrikka Auðunsdóttir, skrifstofustjóri Aðalskoðunar. Ljósmynd Hari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.