Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 8
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is Dýraspítalinn í Garðabæ er í viðskiptum hjá okkur Hanna, Jakobína og félagar á Dýraspítalanum í Garðabæ taka á móti yfir þúsund dýrum í hverjum mánuði, stórum sem smáum. Þau eru sérfræðingar á sínu sviði og sinna fjölbreyttum þörfum viðskiptavinanna. Það gerum við líka. Þess vegna er Dýraspítalinn í Garðabæ í viðskiptum hjá okkur. F í t o n / S Í A Erlendar eignir lífeyrissjóða rýrna 7% RýRnun á eR- lendum eignum lífeyRissjóða Ágúst 2011 Seðlabankinn niðurfærsla lána heimilanna alls var búið að færa lán heimilanna niður um 164 milljarða króna í lok ágúst, þar af rúmlega 130 millj- arða króna vegna endurútreiknings gengistryggðra lána, þ.e. 92 milljarða vegna íbúðalána og 38 milljarða vegna bifreiðaviðskipta. í lok ágúst höfðu 15.592 um- sóknir borist fjármálafyrirtækjum og íbúðalánasjóði um að fá eftirstöðvar fasteignaskulda færðar niður að 110% af verðmæti fasteignar með hinni svokölluðu 110%-leið, að því er fram kemur í samantekt grein- ingar íslandsbanka þar sem vitnað er til skýrslu árna Páls árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem hann hefur lagt fyrir alþingi. af þessum umsóknum var búið að samþykkja 8.551 umsókn í lok ágúst og nam heildarfjárhæð niðurfærslu lánanna ríflega 27 milljörðum króna, þar af 24 milljörðum hjá fjármála- fyrirtækjum. áður höfðu bankar og sparisjóðir afgreitt samkvæmt gömlu 110%-leiðinni 1.510 umsóknir og nam sú niðurfærsla tæplega 10 milljörðum króna. - jh Viðtal við framkvæmdastjóra Félags fasteignasala í Fréttablaðinu í september í fyrra varð kveikjan að þeirri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að skoða hvort stærstu bankarnir, Íbúðalánasjóður og Félag fasteignasala hefðu með sér samráð um fjölda fasteigna í sölu. Þar var haft eftir Grétari Jónassyni, framkvæmdastjóranum, að bankarnir yrðu að tryggja hagsmuni sína „sem fara saman við aðra á þessum markaði; að tryggja sölu eigna á sem bestu verði. Þetta verður gert faglega með því að mjatla þessum eignum smátt og smátt inn á markaðinn.“ Grétar segir rannsóknina byggða á fjarlægum ásökunum vegna alvarlegs misskilnings milli sín og blaðamanns og framsetningar hans á viðtalinu. „Það er ekkert samráð í gangi.“ Hann segir Sam- keppniseftirlitið hafa fengið öll gögn sem það hafi óskað eftir. „Við höfum ekkert að fela og hjálpum þeim eftir bestu getu.“ Með einu símtali hefði eftirlitið getað sparað sér þær viðamiklu aðgerðir sem farið var í. Svavar Hávarsson blaðamaður skrifaði fréttina. „Ég fékk aldrei neina athuga- semd vegna þessarar fréttar,“ segir hann en spurður um það segir Grétar að hann hafi rætt við ritstjórann og vakið athygli hans á villandi framsetningu fréttarinnar. Grétar minnir á að samstarf Félags fast- eignasala við bankana og Íbúðalánasjóð hafi verið komið á vegna gagnrýni á að bankarnir seldu eignir beint, án réttinda og aug- lýsinga á almennum markaði. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri félags fasteigna- sala.  SamkeppniSeftirlitið Skoðar meint Samráð á faSteignamarkaði „Alvarlegur misskilningur“ að baki samráðsrannsókn Of fáar tómar eignir til að verð lækki samkvæmt úttekt frétta- tímans fyrir hálfum mánuði er fasteignasala í ár á við það sem var árin 1994 og 1995. salan í ár er þó 40 prósent meiri en í fyrra. greiningardeild arion banka spáir því að verðið hækki á höfuðborg- arsvæðinu næstu tvö ár. fjöldi eigna banka og íbúðalánasjóðs á höfuðborgarsvæðinu lækki ekki fasteignaverð þar sem svo fáar standi þar tómar. íbúðalánasjóður á 63 tómar eignir á höfuðborgar- svæðinu en 433 á landinu öllu. erlendar eignir lífeyrissjóða skruppu saman í ágúst um tæpa 35 milljarða króna eða sem nemur 7%, og hefur hlutfall þeirra af heildareignum lífeyrissjóða ekki verið lægra í ríflega sex ár. á heildina litið minnkaði hrein eign sjóðanna til greiðslu lífeyr- is um 24 milljarða króna í ágúst, en hún nam 2.019 milljörðum króna í ágústlok, að því er seðlabankinn greinir frá. svo mikil hefur lækkun á eign sjóðanna milli mánaða ekki verið síðan í ársbyrjun 2009, að því er fram kemur hjá greiningu íslands- banka, eða síðan sjóðirnir voru enn að súpa seyðið af banka- hruninu. Þar kemur enn fremur fram að ágúst var afleitur á erlendum hlutabréfamörkuðum. auk þess styrktist krónan um 1,5% í ágúst, sem rýrir erlendu eignastöðuna í krónum. erlendar eignir lífeyrissjóða námu alls 454 milljörðum króna í ágústlok, sem samsvarar 22,5% af hreinni eign sjóðanna. - jh mætast á miðri leið Það er dýrt og tímafrekt fyrir fátæk íþróttafélög að leggja í langferðir með keppnisflokka sína. flest láta sig þó hafa það en körfuknattleikslið ungmenna- félags Bolungarvíkur og sindra á Hornafirði, sem leika í 2. deild, gripu til sinna ráða þegar þau sáu fram á 1.800 kílómetra ferðalag; annars vegar frá Bolungarvík til Hafnar og öfugt. Þau ákváðu því að mætast á miðri leið, að því er fram kemur á vef Bæjarins besta á Ísafirði. Báðir kappleikir liðanna í vetur fara því fram í forseta- höllinni svokölluðu á álftanesi en leikið verður helgina 21.-22. janúar næstkomandi. - jh n ú ætti Gunnar Rúnar Sigurþórsson að geta talið dagana þar til hann er laus maður, segir Helgi Gunnlaugs- son, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands: „Það gat hann ekki á Sogni. Þar hefði hann þess vegna getað verið lokaður inni til æviloka.“ Gunnar Rúnar var í gær sak- felldur í Hæstarétti fyrir morðið á Hannesi Þór Helgasyni í Hafnar- firði í ágúst í fyrra og dæmdur í sextán ára fangelsi. Dómurinn taldi hann hafa skipulagt morðið í þaula og ætlað að komast upp með það. Gunnar Rúnar hafði áður verið dæmdur í ósakhæfur í héraði og inn á réttargeðdeildina á Sogni. „Hann getur búist við að losna eftir afplánun 2/3 hluta dómsins, hagi hann sér eins og menn jafnan gera. Það er ekki algengt að menn sitji af sér allan dóminn og ég man ekki eftir slíku dæmi í fljótu bragði.“ Helgi segir að á Sogni sé það í höndum heilbrigðisstarfs- manna að meta hvort brotamenn, sem hafi verið dæmdir ósakhæfir, séu hæfir til að fara út í samfélagið aftur. „Það eru dæmi um það hér á landi að menn sem hafa verið dæmdir ósakhæfir fyrir manndráp sitji lengur inni á stofnun við hæfi en hefðu þeir verið dæmdir. Helgi bendir þó einnig á að heil- brigðisstarfsmenn hefðu getað metið Gunnar Rúnar hæfan til að yfirgefa stofnunina og fara út í samfélagið fyrr en dómsyfirvöld. „Þarna fer hann úr hendi heil- brigðisyfirvalda í hendur fang- elsisyfirvalda. Þar gilda allt aðrar forsendur.“ Verði hegðun hans í fangelsi góð geti hann einnig hugsanlega losnað fyrr en eftir rúm tíu ár, jafnvel farið á betruna- heimili eins og Bitru. Kristín Helgadóttir, systir Hann- esar Þórs Helgasonar, sagði við Vísi fyrir utan Hæstarétt að fjöl- skyldan teldi réttlætið hafa sigrað: „Dómurinn sá í gegnum þennan illskeytta mann.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is  DómSmál HæStiréttur Dæmir mann Sem talinn var óSakHæfur Gunnar Rúnar aftur á götuna eftir rúm tíu ár afbrotafræðingur segir morðingja Hannesar Þórs Helgasonar nú fara úr höndum heilbrigðisyfirvalda til fangelsisyfirvalda. Hann geti nú losnað eftir afplánun 2/3 hluta dómsins en hefði ekki haft nokkra hugmynd um hvenær eða hvort hann losnaði af sogni. Gunnar Rúnar Sigurþórsson er sakhæfur og hefur verið dæmdur í 16 ára fangelsi. fyrir morðið birti hann ástarjátningu til unnustu Hannesar á youtube. 8 fréttir Helgin 14.-16. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.