Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 16
Þegar sæluvíma fyrstu drykkjanna breytist í þrúgandi þörf eftir áframhaldandi drykkju þar til óminnið tekur við hellist skömmin yfir fallna alkann og ekki tekur betra við í þynnkunni. Síðast þegar Þráinn féll var hann leikstjóri og rithöfundur en slíkir virðast í hugum fólks oft hafa meira svigrúm til að vera fyllibyttur en til dæmis stjórnmála- menn. Jók það á skömmina að vera kjörinn fulltrúi í þessu falli? „Mesta sektarkennd gegnum tíðina hef ég sennilega haft gagnvart konunni minni; það var hún sem þurfti að umbera mig þegar fíknin hafði mig á valdi sínu. En ég fékk rosalega sektarkennd við að detta í það núna, fyrst og fremst gagnvart sjálfum mér. Ég var verulega reiður sjálfum mér fyrir heimsku, trassaskap og kæruleysi,“ segir Þráinn. „Ég kann leiðir til að halda þessum sjúk- dómi í skefjum en ég var að eigin áliti vaxinn frá AA-samtökunum, vaxinn upp úr þeirri auðmýkt sem maður þarf að sýna lífinu, og þá var voðinn vís. Ég hef líka mikinn metnað gagnvart minni vinnu og verkefnum sem ég tek að mér og mér fannst skammarlegt að leggjast í koju í staðinn fyrir að fylla áheyrendahópinn á þessari ráðstefnu sem ég var staddur á, þótt hún væri kannski ekkert stórmerkileg. Huggun harmi gegn var að ég komst í gegnum þetta fyllirí án þess að skandalísera vegna þess að ég lokaði mig inni til að drekka. Löngu áður en ég fór í meðferð var ég hættur að þola sjálfan mig drukkinn og þá ekki síður annað fólk undir áhrifum.“ Fall þingmeirihlutans Eftir að Þráinn gekk til liðs við Vinstri græna komst hann í þá stöðu að líf ríkis- stjórnarinnar hékk á eins manns meirihluta og mátti því ekki við forföllum hans. Hann segist þó ekki hafa haft áhyggjur af póli- tískum afleiðingum fallsins í Færeyjum þótt segja mætti að meirihlutinn hefði „fallið“ með honum. „Nei, alls ekki. Sumarfríið var að byrja og engin hætta steðjaði að stjórnar- samstarfinu. Undirmeðvitundin valdi handa mér hárrétt augnablik til að falla. En ég veit ekki hvað hefði gerst ef ég hefði haldið fyll- iríinu áfram og jafnvel drukkið mig í hel. Þá hefði orðið að kalla varaþingmann inn – úr þeim væng Borgarahreyfingarinnar sem styður Hreyfinguna – og þá hefði stjórnar- meirihlutinn minnkað um einn.“ Þráinn bendir einnig á að staðan sé þannig á þingi núna að ekki sé hægt að ganga að því sem gefnu að hann og hans at- kvæði séu eina líflína stjórnarinnar í erfiðum málum. „Annars er erfitt að segja til um hversu margir þingmenn núna myndu verja stjórn ina gegn vantrausti. Guðmundur Stein- grímsson er orðinn gnarristi og ólíklegur til að fella stjórnina. Svo eru óþægu stelpurnar Eygló og Siv sem Sigmundur formaður er að reyna að beita húsaga eins og bændur vinnu- konur forðum. Ég sé ekki að þær myndu fella stjórnina. Og þá er enn eftir að nefna Atla Gíslason og Lilju Mósesdóttur sem yfir- gáfu VG. Ég veit ekki hvað þau myndu gera ef vantrauststillaga væri borin upp á nýjan leik. Það er nú kannski það sem er skemmti- legt við pólitík – eins og hún er leiðinleg – að í henni eru svo margar breytur sem tengjast mannlegri náttúru að flestir spádómar eru út í bláinn.“ Nokkuð hefur verið um það rætt undanfar- ið að Alþingi Íslendinga sé orðið að einkenni- legum vinnustað þar sem einelti sé óhikað beitt. Þráinn segist ekki hafa orðið fyrir slíku sjálfur og einhverjir þingmenn hafi komið að máli við hann og hrósað honum fyrir hugrekki í reikningsskilum sínum í nýju bókinni. „Í þinginu hefur fólk pókerfeis og flestir temja sér svipbrigðalitla umgengni sem skreytt er með brosi af og til þegar við á. En þarna er líka fólk sem hefur komið til mín og hvatt mig og hrósað mér fyrir að sýna kjark því að margir þingmenn óttast almenn- ingsálitið meira en páfinn pokurinn. Þarna á þinginu eru þó nokkrir samstarfsmenn sem ég er glaður yfir að hafa fengið að kynn- ast. Og; nei. Ég hef ekki orðið fyrir einelti, nema ef vera kynni síðastliðið vor eftir að ég kallaði einhverjar þingkonur íhaldsbeljur. Þá tók ég eftir því í nokkra daga að nokkrir sjálfstæðisþingmenn höfðu talað sig saman um að hætta að bjóða mér góðan daginn í hefndarskyni. Það hafði nú ekki sérlega djúp áhrif á mig. En einelti, nei, ég man eftir einelti frá því ég var í skóla og það var ekki skemmtilegt. Núna er ég orðinn fullorðinn og tek vonsku mannanna ekki lengur jafn- nærri mér og ég gerði þegar ég var barn. Og vonska heimsins þekkist jafnt inni í Alþingis- húsinu sem utan þess. Það eru jú fulltrúar þjóðarinnar sem þar eru, og sumir mættu kannski vera ólíkari umbjóðendum sínum.“ Vinnuálagið hafði sitt að segja Þráni hefur orðið tíðrætt um leiðinlegan starfsanda á Alþingi og þreytandi utandag- skrárumræður sem hann hefur kallað „hálf- tíma hálfvitanna“. Það er því ekki alveg út í bláinn að spyrja hvort starf þingmannsins hafi ekki grafið undan óvirka alkóhólistan- um sem tók sæti þar fyrir tveimur árum. „Kannski hefur vinnuálag verið einn þáttur í þessu. Það er dæmigert fyrir fólk sem vinnur mikið að veikjast um leið og um hægist, um leið og það fær frí. Þá er það gjarna einhver varnarmekanismi sem hefur verið spenntur til hins ítrasta lengi sem lætur undan. En það kom fleira til. Eins og ég sagði áðan þá vanrækti ég edrúmennsk- una og var ekki lengur þakklátur fyrir að fá að vera edrú, heldur tók því sem sjálfsögðum hlut,“ segir Þráinn enda er því sjaldnast svo farið að óvirkur alki falli fyrirvaralaust. „Það voru ýmsir samverkandi þættir sem spiluðu saman; enda er alkóhólisti sem er að reyna að vera edrú eiginlega furðuverk ef honum tekst það. Þetta er lífshættulegur sjúkdómur fyrir okkur þessi 20 prósent mannkynsins sem þolum ekki hugbreytandi efni. En það þarf mikla heimsku til að horfa á langt genginn áfengissjúkling sem situr á bekk niðri í bæ í öllum veðrum og reynir að betla fyrir næsta sjúss og halda að hann geri þetta sér til skemmtunar eða vegna þess að hann nenni ekki að vinna. Þetta er hvorki skemmtun né hvíld frá vinnu hjá alkóhólist- anum, en þau 80 prósent fólks sem ekki eru fíkin tengja hugbreytandi efni auðvitað við frí frá vinnu, dagamun, tilbreytingu, skemmtanir.“ Össur til bjargar og fordómar á Vogi Þráinn segir frá því í Fallinu að sér hafi komið á óvart að aðrir sjúklingar á Vogi litu hann hornauga vegna þess að hann væri þingmaður og teldu ekki við hæfi að hann sækti sér hjálp á Vog. „Ég tek yfirleitt ekki svo mjög inn á mig hvað fólki finnst, en fordóma á Vogi meðal sjúklinga í garð síns eigin sjúkdóms tók ég til marks um að það þyrfti að fjalla meira um þann veruleika sem alkóhólistar, fíklar, búa við og ríkjandi skilningsleysi á sjúkdómn- um.“ Talinu víkur í framhaldinu að því þegar hægrivefurinn amx.is ýjaði að því að eitt- hvað athugavert væri við að Össur Skarp- héðinsson sótti Þráin á flugvöllinn þegar hann kom fallinn frá Færeyjum. „Hvað viðvíkur amx.is þá er þjóðfélagið eins og mannslíkaminn að því leyti að þjóð- félagið hefur heila til að hugsa með, en líka endaþarm til að losa sig við saur. AMX er endaþarmur mannlegrar hugsunar á Ís- landi.“ Þráinn var í hópi þingmanna á ráðstefnu í Þórshöfn í Færeyjum þegar hann féll. Sam- fylkingarþingkonan Ólína Þorvarðardóttir var í hópnum og veitti Þráni, ásamt öðrum, fyrstu hjálp. Hún var í sambandi við Össur sem tók á móti Þráni þegar hann kom úr flugi og skutlaði honum nánast beina leið upp á Vog. „Það er gott að eiga góða vini. Ég er ekki mjög mannblendinn og á fáa vini. Þeir fylktu sér mjög þétt um mig þegar ég þurfti á þeim að halda. Ég er þakklátur fyrir að eiga slíka vini. Jafnvel í pólitík er að finna mikið mann- kostafólk. Það finnst mér framganga bæði vinar míns Össurar sýna og sömuleiðis vinsemd og skilningur Ólínu Þorvarðardótt- ur sem er mikill skörungur með fallegt og djarft hjartalag.“ Þegar Þráinn er spurður hvað hafi rekið hann til þess að greina frá falli sínu á bók kemur á daginn að löngunin til að skrifa um alkóhólisma hefur lengi blundað með honum. Reynt að gera ófreskju skil „Ég hef gert margar atrennur að slíku verki síðustu 15 árin, en þegar ég útskrifaðist af Vogi í fjórða sinn núna í júní var þessi bók nokkurn veginn tilbúin í höfðinu á mér,“ segir Þráinn og bætir við að hann hafi horft til þeirrar bókar sem hefur verið ótal alkóhólistum haldreipi áratugum saman. „Ég er auðvitað ekki að líkja bókinni minni við AA-bókina en hún hefur verið mér mikil fyrirmynd, bæði þegar ég var að nálgast þetta verk og eins í mínu eigin lífi. Nógu mörg skáld og rithöfunda hefur alkóhólism- inn drepið eða eyðilagt þannig að mér finnst ósköp eðlilegt að reyna að gera þessari ófreskju skil.“ Þingmannaferð til Færeyja endaði á Vogi Þráinn Bertelsson er alkóhólisti. Það hefur ekki verið neitt leyndarmál. Hann lauk sinni fjórðu meðferð í sumar eftir að hafa fallið í Færeyjum í júní. Hann segir frá þessu falli og drykkjuferli sínum í bókinni Fallið sem kom út í vikunni. Þórarinn Þórarinsson heimsótti Þráin og þar ræddu tveir alkóhólistar um fallið, skömmina sem því fylgir og þetta andlega mein sem hrjáir um 20 prósent mannkyns, fer ekki í manngreinarálit og leggst jafnt á lögfræðinga, lækna, verkamenn og alþingismenn. „Alveg síðan ég fékk fyrst að kynnast starfsemi SÁÁ og þeirri von sem þessi samtök hafa fært fíklum, hefur mig langað til að gera kvikmynd eða skrifa bók til að taka þátt í að svipta leyndar- hjúpnum af alkóhólisma, alkóhólistum og áfengis- og fíkniefnameðferð.“ Ljós- mynd Hari En það þarf mikla heimsku til að horfa á langt genginn áfengis- sjúkling sem situr á bekk niðri í bæ í öllum veðrum og reynir að betla fyrir næsta sjúss og halda að hann geri þetta sér til skemmtunar. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is 16 viðtal Helgin 14.-16. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.