Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 2
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Turninum | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi
Sími 575 7500 | www.veisluturninn.is
Engin tilboð í Perluna
Þ að er engum til góðs og eykur áhættu í kerfinu þegar bankarnir bjóða íbúð-arlán án þess að hafa fjármagnað þau
fyrir fram, segir Árni Páll Árnason, efna-
hags- og viðskiptaráðherra. Hann ætlar að
skerða möguleikann á því. Einnig að banna
uppgreiðslugjald lána svo að fólk geti skipt
um banka þegar betri kjör séu í boði. Fyrir-
myndin sé dönsk.
„Vandinn sem við sáum í aðdraganda
hrunsins var að bankar veittu lán til mjög
langs tíma en voru ekki búnir að fjármagna
þau til jafnlengdar. Það skapaði gríðarlega
áhættu fyrir hagkerfið og fyrir rekstur
bankanna. Fólk læstist í þessum lánum og
þurfti að borga uppgreiðslugjald til að losna
undan þeim. Í ljósi þessarar forsögu tel ég
óhjákvæmilegt að við setjum lög sem tak-
marka lánveitingar til langs tíma án forfjár-
mögnunar. Þannig að þegar verið er að bjóða
almenningi ákveðin kjör sé búið að tryggja
fjármögnun þeirra á almennum markaði,“
segir hann.
Arion fjármagni sig fyrst
Í viðtali í síðdegisútvarpi Sögu í vikunni
sagði ráðherrann að hann tæki eftir því að
Íslandsbanki væri ekki byrjaður að bjóða
óverðtryggð lán „því þeir eiga eftir að fjár-
magna þau“. Hann setti í viðtalinu fyrirvara
við það þegar bankar væru byrjaðir að lána
óverðtryggt án fjármögnunar.
Það gerir Arion banki og í skriflegum
svörum bankans segir að ákveðið hafi verið
að taka til hliðar tiltekna upphæð og nýta
í óverðtryggð íbúðarlán: „Sú tiltekna upp-
hæð var þegar í upphafi fjármögnuð að fullu
með innlánum og eigin fé bankans.“ Arion
stefni hins vegar að skuldabréfaútgáfu en
fyrir henni þurfi, lögum samkvæmt, trygg-
ingar (íbúðarlán) sem nú sé verið að byggja
upp, áður en til fjármögnunar komi. Árni
Páll segir það ekki hans að svara því hvort
vextir óverðtryggðra lána Arion banka séu
óraunhæfir, en Arion býður lánin á 6,45%
vöxtum til fimm ára í 5,7% verðbólgu með
endurskoðun vaxta eftir fimm ár. Hins vegar
sé þetta ekki sú forgangsröðun sem hann
hefði viljað sjá.
Spurður hvort hann sé smeykur um að
bankarnir falli aftur, verði ekki girt fyrir
ófjármagnaðar lánveitingar, segir hann of
djúpt í árinni tekið. „En þessi áhætta er
óþarfi og getur búið til hvata fyrir banka að
bjóða óraunhæf kjör.“
Arion banki telur að svigrúm bankanna
til að bjóða viðskiptavinum sínum hagstæð
íbúðarlán yrði skert til muna, takmarki ráð-
herra lánafyrirgreiðslu banka við fjármögn-
un þeirra. „Yrði bönkunum þannig gert erfitt
um vik í samkeppni við Íbúðalánasjóð og
Lífeyrissjóði. Hugsanlega myndi staðan á
íbúðalánamarkaði einkennast af fákeppni.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Leikkona vill nýjan bílskúr
Söng- og leikkonan Þórunn Lárusdóttir, sem
oftar en ekki hefur komið fram sem andlit Ice-
landair, hefur sótt um hjá skipulagsráði Reykja-
víkurborgar, ásamt eiginmanni sínum, að fá leyfi
til að rífa núverandi bílskúr við heimili þeirra í
Vesturbænum og byggja nýjan úr
steinsteypu. Jafnframt vilja
þau byggja við húsið til
norðurs og suðurs sem og
byggja tvo nýja kvisti og
útbúa íbúð í kjallara. Ein at-
hugasemd barst frá nágrönn-
um eftir grenndar-
kynningu og þarf
Þórunn því
að bíða enn
um sinn eftir
nýjum bílskúr.
-óhþ
Bíladrottning má rífa hús
Erna Gísladóttir, fyrrverandi forstjóri B&L, hefur
fengið leyfi til að rífa einbýlishús á lóð númer 25
við Valhúsabraut á Seltjarnarnesi. Erna, sem er í
nýjum eigendahópi Sjóvár, keypti húsið af Sigurði
Einarssyni, fyrrverandi starfandi stjórnarformanni
Kaupþings, og eiginkonu hans á síðasta ári og
hófst strax handa við að afla sér tilskilinna leyfa til
niðurrifs. Erna hyggst reisa glæsilegt einbýlishús
í stað þess gamla en á enn eftir að fá samþykkta
byggingarumsókn fyrir það. -óhþ
Fjórir lögfræðingar
í fjórum málum
Athafnamaðurinn Jón Ásgeir
Jóhannesson verst nú af krafti í
dómsölum og nýtur liðsinnis hers
lögfræðinga. Þessa dagana eru
tekin fyrir fjögur mál gegn honum,
ýmist einum eða með öðrum. Í gær
fóru fram tvær fyrirtökur gegn
honum. Annars vegar stefna Glitnis
banka gegn honum og hins vegar
stefna þrotabús Fons á hendur
honum til greiðslu eins milljarðs
króna. Á mánudag er aðalmeð-
ferð í margumtöluðu skattamáli
gegn honum, systur hans Kristínu,
Tryggva Jónssyni og Fjárfestinga-
félaginu Gaumi, sem er í eigu
fjölskyldu hans. Á fimmtudag í
næstu viku er síðan fyrirtaka í
skaðabótamáli sem Landsvaki
höfðaði gegn Jóni Ásgeiri, Pálma
Haraldssyni, Magnúsi Ármann og
Þorsteini M. Jónssyni sem sátu allir
í stjórn fjölmiðlarisans 365. Og ekki
dugar einn lögfræðingur fyrir Jón
Ásgeir því Einar Þór Sverrisson ver
hann í málinu gegn Glitni, Sigurður
G. Guðjónsson í málinu gegn Fons,
Gestur Jónsson í skattamálinu
og Gísli Guðni Hall ver hann gegn
Landsvaka. -óhþ
Engin tilboð hafa borist í Perluna
að sögn Þrastar Þórhallssonar,
fasteignasala hjá Mikluborg, sem
hefur umsjón með söluferlinu
fyrir hönd Orkuveitu Reykjavíkur.
Frestur til að skila inn tilboðum
rennur út á þriðjudaginn kemur,
18. október, og segir Þröstur að
reynslan sýni að menn skili inn til-
boðum á síðustu dögunum. „Það eru einhverjir aðilar sem liggja undir feldi og bæði
innlendir og erlendir aðilar sem hafa sýnt þessu áhuga,“ segir Þröstur. Fasteigna-
mat Perlunnar er um tveir milljarðar en Þröstur segir ómögulegt að segja til um
hvort sú upphæð sé raunhæft markaðsvirði. „Þetta er sérstök eign og óvenjuleg
þannig að við rennum blint í sjóinn.“ -óhþ
Skólamál árSreikningur einkaSkóla
28 milljónir í hagnað hjá Hjallastefnunni
Hjallastefnan ehf., sem rekur þrettán
leik- og grunnskóla á landinu undir
styrkri stjórn Margrétar Pálu Ólafs-
dóttur, skilaði 28 milljónum króna
í hagnað eftir skatta og afskriftir
árið 2010, samkvæmt ársreikningi
félagsins sem skilað var inn til Árs-
reikningaskrár nú í lok septem-
ber. Þetta er töluvert verri afkoma
en árið 2009 þegar félagið skilaði
97 milljóna króna hagnaði. Líkt og
áður rennur hagnaðurinn beint inn
í rekstur félagsins enda greiðir það
ekki arð. Margrét Pála sagði í viðtali
við Fréttatímann í fyrra að henni yrði
bókstaflega illt þegar hún heyrði af
menntafyrirtæki sem greiddi eiganda
sínum tugmilljónir í arð og að hún
myndi fyrr dauð liggja en að gera
slíkt.
Rekstrartekjur Hjallastefnunnar
jukust um 74 milljónir, úr 1.444 millj-
ónum í 1.518 milljónir. Viðskipta-
kröfur, sem samanstanda að mestu
leyti af vangoldnum gjöldum, námu
um 53 milljónum í lok árs 2010 og
voru um þrjátíu milljónum hærri en í
árslok 2009.
Hluthafahópur Hjallastefnunnar
hefur stækkað nokkuð. Í lok árs 2009
voru hluthafarnir tólf og þar af var
Margrét Pála sjálf með langstærstan
hlut, 86,25 prósent. Í árslok 2010
voru hluthafarnir orðnir 22 og hafði
hlutur Margrétar Pálu minnkað um
4,05 prósent. Í ársreikningum sést að
hluthafar hafa borgað 18,5 milljónir
fyrir þessa hlutafjáraukningu.
Ekki náðist í Margréti Pálu við
vinnslu þessarar fréttar.
Margrét Pála Ólafsdóttir, skólastjóri
Hjallastefnunnar. Ljósmynd/Hari
ViðSkipti árni páll Vill breytingu
Burt með uppgreiðslugjald
og óraunhæf vaxtakjör
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, horfir á hrun bankanna 2008 og átelur þá
sem enn lána fyrst og fjármagna sig svo. Það segir hann að sé engum til góðs, auki áhættu í
kerfinu og búi til hvata fyrir banka að bjóða óraunhæf kjör. Hann vill þó ekki leggja mat á kjör
óverðtryggðra lána Arion banka. Ráðherrann ætlar að takmarka slíkar lánveitingar og banna
uppgreiðslugjöld.
Árni Páll Árnason vill að bankarnir bjóði raunhæfa vexti. Það geti þeir, hafi þeir fjármagnað lánin fyrir fram. Ljósmynd/Hari
Arion stefni
hins vegar
að skulda-
bréfaútgáfu
en fyrir
henni þurfi,
lögum
samkvæmt,
tryggingar
(íbúðarlán)
sem nú sé
verið að
byggja upp,
áður en til
fjármögn-
unar komi.
2 fréttir Helgin 14.-16. október 2011