Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 39

Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 39
F rumvarp stjórn­lagaráðs um nýja stjórnarskrá var til ítarlegrar umræðu á Alþingi í vikunni. Hér er ekki tóm til að taka á ein­ stökum athugasemdum þingmanna um efnið, heldur verður vikið að því hvernig framhaldið ætti að vera. Vanagangurinn Upphaflega átti stjórn­ lagaþing að starfa í þremur hrinum með umþóttunarhléum á milli. Því mið­ ur náði sú leið ekki fram að ganga. Verði ekki að gert mun framhaldið því verða með eftirfarandi formleg­ um hætti: Formlega leiðin: Stjórnskipunar­ og eftirlitsnefnd Alþingis fjallar um frumvarp stjórnlagaráðs og gerir á því breytingar. Nefndin leggur síð­ an fram frumvarp til samþykktar á Alþingi í síðasta lagi vorið 2013. Síð­ an verður kosið nýtt þing sem stað­ festir frumvarpið svo að úr verður ný stjórnarskrá. Auðvitað er ekkert nema gott um það að segja ef Alþingi getur með þessu móti bætt tillögur stjórn­ lagaráðs. Hættan er fólgin í því að aðeins verði til moðsuðuleg meðal­ mennska um lágmarksbreytingar á núgildandi stjórnarskrá og það án aðkomu þjóðarinnar, eða að málið hreinlega dagi uppi. Það hefur hing­ að til verið venjan! Ný vinnubrögð Að mati undirritaðs þarf önnur vinnubrögð. Verklagið mætti og ætti að vera þetta: Samræðu­ og sátt­ leið: Þingið, en ekki síst almenningur, fjallar ítarlega um tillögur stjórn lagaráðs. Út úr því koma vonandi góðar ábendingar um betrum­ bætur. Stjórnlagaráð verður síðan aftur kallað saman og falið að endur­ skoða frumvarp sitt með hliðsjón af þessari um­ fjöllun. Þannig breytt frumvarp fer í þjóðarat­ kvæðagreiðslu og þjóðin veitir því stuðning, sem vænta má, staðfesti Alþingi vilja hennar eftir hinni formlegu leið. Hvers vegna að blanda stjórnlaga­ ráðinu aftur í málið? Svarið er ein­ falt. Þar er orðin til mikil saman­ lögð þekking á viðfangsefninu sem ætti að nýta. Enn fremur að þetta var upphaflega ætlunin og það stutt góðum rökum. Í þriðja lagi leggja alþjóðlegar ráðgjafarstofnanir áherslu á að unnið sé í áföngum. Þannig verði vinnan hvað vönduð­ ust. Vitaskuld vakna spurningar um þessa málsmeðferð. Næst til dæmis að kalla stjórnlagaráð aftur saman? Efalaust ekki án affalla, en ætla má að það næðist í að minnsta kosti tvo þriðju hluta ráðsfulltrúa. Geta þeir talað í umboði alls hópsins? Vitaskuld ekki en hinir fjarstöddu fengju þó óbein áhrif ef svo væri fyrir mælt fyrir að það þyrfti stuðn­ ing upphaflegs meirihluta, það er að segja 13 af 25, til að samþykktir þessa seinna ráðsþings yrðu mark­ tækar. Þingmannafrumvarp um ámóta málsmeðferð er þegar komið fram á Alþingi. Þjóðin verður að veita fulltingi Hvernig svo sem málinu vindur fram er brýnt að þjóðin komi að því með beinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Ný stjórnarskrá verður að fá full­ tingi hennar. Það er þjóðin sem er að setja stjórnvöldum leikreglur með stjórnarskrá, líka þingmönn­ um. Æskilegt væri að þjóðin gæti tjáð hug sinn þegar á umræðustig­ inu og þannig veitt Alþingi leiðsögn. Enn mikilvægara er að lokagerðin hljóti blessun hennar. Þjóðarat­ kvæðagreiðsla um stjórnarskrána verður því að vera bindandi. Nokkr­ ar leiðir koma þá til greina. Ein er sú að láta atkvæðagreiðsluna fara fram samhliða kosningu til þess nýja þing, sem þarf til að staðfesta stjórnarskrárbreytinguna. Með því móti sparast fé og fyrirhöfn. Í stjórnarskrártillögunni sjálfri gæti í þessu skyni verið hliðstætt ákvæði og 1944 um að hin nýja stjórnarskrá taki því aðeins gildi að hún hafi við þessa kosningu hlotið samþykki þjóðarinnar. Þjóðin fengi þannig neitunarvald, en hið nýkjörna þing hefði það raunar líka. Eru ljón á veginum? Þau eru alltaf tilbúin við vegkant­ inn og hafa þegar látið í sér heyra. Undirritaður trúir því og treystir að þjóð og þing láti ekki úrtöluraddir hrekja sig frá því endamarki að til verði góð stjórnarskrá handa landi og lýð; stjórnarskrá sem verði þjóð­ inni grunnur að traustara samfé­ lagi. viðhorf 35Helgin 14.-16. október 2011 Sveitarfélagið Álftanes var í vikunni skorið niður úr snörunni tveimur árum eftir að það varð gjaldþrota. Framúrkeyrslu stjórn­ enda sveitarfélagsins hafði verið gengdar­ laus. Þegar yfir lauk voru heildarskuldir ríflega sex sinnum hærri en reglulegar tekjur en alls stóð mínusinn í sjö og hálfum milljarði króna. Nú hafa lánardrottnar af­ skrifað fjóra milljarða og Ögmundur Jónas­ son innanríkisráðherra lét Jöfnunarsjóð sveitarfélaga punga út einum milljarði til Álftnesinga. Næsta mál á dagskrá er að koma Álftanesi í skjól með því að sameina það öðru sveitarfélagi þegar hinn tröllvaxni skulda­ baggi hefur verið flysjaður niður. Í tengslum við björgun Álftaness viðraði innanríkisráðherra áhuga sinn á því að sjá höfuðborgarsvæðið allt stokkað upp en nú tilheyra sjö sveitar­ félög svæðinu. Það var gott hjá Ögmundi að minna á þörfina fyrir sameiningu sveit­ arfélaga við þetta tækifæri. Að vísu ræddi hann í þessari atrennu aðeins um höfuð­ borgarsvæðið en auðvitað er ástæða og þörf víðar en þar. Og jafnvel mun brýnni. Sveitarfélögin eru 76 talsins. Þar af eru um 25 með færri en 500 íbúa og 18 með 500 til 1.000 íbúa. Sveitarfélög af þessari stærð eru fæst sjálfbær enda er fjárhags­ staða margra þeirra afar bágborin. Hún er reyndar með slíkum hörmungum að ef ekki kæmi til Jöfnunarsjóður sveitarfélaga væri útilokað að þau gætu sinnt lögbund­ inni lágmarksþjónustu. Í merkilegri skýrslu um Heildarendur­ skoðun Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, sem gefin var út í fyrra, kemur fram að 19 sveitarfélög fá að minnsta kosti 45 prósent skatttekna úr Jöfnunarsjóði, miðað við ársreikninga 2008, og hlutfallið er yfir 50 prósent hjá 13 sveitarfélögum. Sú niðurstaða sýnir að rekstrarhæfi þessara sveitarfélaga byggist á háum framlögum sjóðsins. Í skýrslunni er bent á að sjálf­ stjórnarréttur sveitarfélaganna byggist meðal annars á efnahagslegu sjálfstæði þeirra, sem er ekki fyrir að fara við þessar aðstæður. Fyrir tveimur árum samþykkti ríkis­ stjórnin verkáætlun sem fékk nafnið 20/20 – Sóknaráætlun fyrir Ísland og var kynnt sem liður í efnahagslegri endurreisn þjóðarinnar. Mikilvægur þáttur þar er einmitt hugmynd um róttæka sameining sveitarfélaga: úr 76 í 17. Ef sú tillaga verður að veruleika, verða Vestfirðir til dæmis eitt sveitarfélag og höfuðborgarsvæðið tvö til þrjú, í stað þeirra sjö sem eru þar nú. Tiltölulega fáir útsvarsgreiðendur í þétt­ býli átta sig til dæmis á því að töluverður hluti af útsvarinu þeirra rennur ekki til þess bæjarfélags sem þeir búa í, heldur til minni sveitarfélaga. Útsvar þéttbýlisbú­ anna er þannig notað til að niðurgreiða með beinum hætti þjónustu annars staðar, í stað þess að peningarnir séu notaðir í þágu þeirra sem reiða þá af hendi. Sú hraustlega fækkun sveitarfélaga sem Sóknaráætlunin gerir ráð fyrir getur ekki orðið nema með endurskipulagningu á opinberri þjónustu og verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaganna. En tilgangurinn er að tryggja að sveitarfélögin verði nægi­ lega mannmörg, og þar með burðug, til að standa undir þeim verkefnum sem þeim er ætlað. Það eru verðug markmið, sérstak­ lega þegar fé er af skornum skammti. Fækkun er nauðsyn Ómagasveitarfélögin Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is S Fært til bókar Fyrrum ritari Heimdallar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra setti fyrr í vikunni Benedikt Bogason dómstjóra í embætti dómara við Hæsta- rétt Íslands frá og með 1. nóvember 2011 til og með 31. desember 2014. Umsækj- endur auk Benedikts voru Guðjón Ólafur Jónsson hæstaréttarlögmaður og fyrr- verandi alþingismaður Framsóknarflokks- ins, Ingimundur Einarsson héraðsdóm- ari og Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri. Ráðherrann fylgdi mati dómnefndar sem fjallað hafði um hæfni umsækjenda um embættið en hún mat Benedikt hæfastan. Ögmundur lét sig engu varða við skipun í hið háa embætti að langminnugir þykjast muna eftir því að Benedikt hafi á yngri árum fylgt Sjálfstæðisflokknum að málum og m.a. verið ritari Heimdallar þótt ekki legði hann pólitíkina fyrir sig. Ef vel er leitað í myndasafni Heimdallar má finna mynd af hinum nýja hæstaréttardómara að slá inn fundargerð félagsins í árdaga tölvualdar. Þá var Benedikt formaður Vöku 1987-1988. Faðir Benedikts var Bogi Ingimarsson hæstaréttarlögmaður en hann lést á liðnu ári. Bogi starfaði um áratugaskeið innan Sjálfstæðisflokksins og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Afi Benedikts var Ingimar Brynjólfsson, stórkaupmaður í I. Brynjólfsson & Kvaran, en hann sat með fleiri broddborgurum í fyrstu stjórn Félags íslenskra stórkaup- manna sem stofnað var í Reykjavík í maí 1928. Með Ingimar í þessari fyrstu stjórn sat, auk annarra, Hallgrímur Benedikts- son, faðir Geirs, síðar forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga- stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Ný stjórnarskrá Hvað nú? Þorkell Helgason sat í stjórnlagaráði Sony Center býður 5 ára ábyrgð á sjónvörpum án aukakostnaðar 5 ÁRA ÁBYRGÐ 40” Sony gæði á góðu verði 199.990,- Tilboð Sparaðu 50.000.- Kringlunni 588 7669 www.sonycenter.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.