Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 33

Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 33
Kjúklingabollur í drekasósu www.ora.is ... einfalt, fljótlegt og gott! Smakkaðu nýjung frá ORA Kjúklingabollur í súrsætri sósu samfleytt til að fullvinna viðtölin og er yfirmanni mínum óendanlega þakklát fyrir það. Nokkrir hafa stigið fram, þar á meðal blaðamenn sem skrifuðu um Guðmundar- og Geirfinnsmálin á sínum tíma. Þeir hafa hvatt fólk til að lesa hæsta- réttardóminn yfir sakborningunum sex og haldið því fram að réttir menn hafi verið sakfelldir. Mér finnst svona málflutningur ekki svara verður að öðru leyti en því að við þá sem nú gagnrýna að það eigi að hefja rannsókn á málsmeðferð- inni vil ég bara segja þetta: Ég er búin að lesa blöðin frá þessum tíma og blaðamenn þá spurðu ekki lykil- spurningarinnar: „Er það mann- sæmandi að geyma fólk í einangr- unarklefum í tvö ár?“ Það var engra spurninga spurt um meðferðina á þessu fólki og það var í mörgum blöðum hrein kranablaðamennska í gangi þarna, að mínu viti. Af hverju var málsmeðferðin ekki gagnrýnd, að undanskildum örfáum greinar- höfundum sem gerðu það? Þetta var í miðju dagblaðastríði Vísis og Dagblaðsins og greinarnar gengu út á það hvort væri með stærra skúbb. Flestar greinanna hófust á orðunum: „Lögreglan segir ...“ Gamall blaðamaður sagði við mig um daginn að þeir hefðu gert sömu mistök á þessum tíma og blaða- og fréttamenn gerðu í aðdraganda hrunsins: „Við gleymdum að spyrja veigamestu spurninganna.“ Þeir blaðamenn sem stíga fram núna og stæra sig af því að hafa verið blaðamenn í þessu máli, ættu að gæta sín á sleggjudómum því það eru sannarlega ekki öll kurl komin til grafar í þessu máli. Að því kom- umst við þegar rannsóknarhópur- inn kemur með sína niðurstöðu. Það var ekki gagnrýnin rannsókn- arblaðamennska á þessum tíma. Þetta eigum við enn til í íslensku samfélagi í dag. Þetta Guðmundar- og Geirfinns- mál kennir okkur að halda fast í rannsóknarblaðamennskuna, að spyrja spurninga sem skipta máli. Ég er ekki að taka afstöðu til Guð- mundar- og Geirfinnsmálsins; ég er að taka afstöðu til málsmeðferðar- innar þar sem hver einn og einasti flötur hennar er gagnrýni verður.“ Langar að eignast börn Það trúa því örugglega fáir að þessi glæsilega kona hafi fellt mörg tár í koddann vegna ástar- sorga, en nú hefur hún fundið ástina og er í sambúð með Reyni Erni Þrastarsyni. „Já, ég var óheppin fyrstu árin og andlát pabba hafði mikil áhrif á mig sem manneskju. Ég er ofsalega opin tilfinningalega, ég er ekkert fyrir leiki og það hefur kannski farið fyrir brjóstið á þessum strák- um!“ segir hún og brosir. „Reynir er eldri en ég, hann er með lífs- reynslu og tekur mér eins og ég er með öllum mínum kostum og göll- um. Við eigum ótrúlega vel saman. En vissulega er vinnan mín mikið álag á fjölskyldulíf og Reynir þarf að þola ýmsar sveiflur sem fylgja því. Þetta starf getur tekið mjög á tilfinningarnar, maður heyrir alls konar sögur sem maður tekur inn á sig og þótt maður reyni að brynja sig fyrir öllu, þá bý ég sem betur fer yfir mannlegri samúð og tek inn á mig sorglegar sögur. Ég er alveg uppgefin eftir Guðmundar- og Geirfinnsmálið; því fylgir svo mikill sársauki. Reynir styður dyggilega við bakið á mér, hefur trú á mér og ... já, hann bara ræður við mig, þetta tilfinningabúnt sem ég er! Ég sé mig alveg vinna hin ólíklegustu störf í fjölmiðlum í framtíðinni, hjarta mitt liggur þar. Mig langar að búa í útlöndum í einhvern tíma, helst að vinna hjá erlendum fjöl- miðli – og nú er ég tilbúin að fara að eignast börn og stofna fjölskyldu. Í fyrsta skipti á ævinni finnst mér ég vera hamingjusöm, bæði í starfi og einkalífi.“ Fyrir þremur árum segist Helga hafa verið orðin þreytt og þurrausin. „Ég tók þá skyn- samlegu ákvörðun að fara í nám til Bretlands í september árið 2008!“ segir hún skellihlæjandi. „Rætur mínar lágu einhvern veginn alltaf til Bretlands. Þar lærði mamma leiklist, hafði farið í meistaranám þar og var að auki gift Breta í mörg ár áður en ég kom til sögunnar. Það er mikil aðdáun ríkjandi í garð Breta hjá okkur mömmu,“ segir hún og talar á þessari fínu Ox- ford-ensku. Greinilega góð leikkona líka. „Haustið 2008 fór ég, alveg bláeyg á ástandið, til London – og mánuði síðar hrundi Ísland. Og ég í Bretlandi þegar stærstu viðburðir á Íslandi dundu yfir! Allt í einu var kaffibollinn kominn upp í þúsundkall og ég var farin að öfunda fólk af því að eiga heillega skó. „Asskoti er hann vel sólaður þessi,“ hugsaði maður með sér – eitthvað sem hafði aldrei hvarflað að mér áður. Blankur stúdent? Ónei, í MR og Háskólanum var maður voða grand og drakk rauðvín í öll mál. Ég hef aldrei upplifað annað eins og þenn- an vetur 2008 til 2009. Þetta var mikið strögl og mjög erfitt fjárhagslega. Mér fannst ég svo vön á fyrstu önninni að ég sagði við kennarann minn: „Hvernig heldurðu að mér líði? Landið mitt er að hrynja og hér sit ég á skólabekk að læra að skrifa inngang!“ Hún sagði bara ofur rólega: „Já, ég veit það Helga mín, en haltu út. Ef þú ætlar að komast áfram á erlendum fjöl- miðli verðurðu að hafa þetta próf.“ Ég hef lengi átt mér þann draum að starfa fyrir erlendan fjölmiðil og stefni enn að því. En þessi tími var hræðilegur, ég var japlandi á selleríi! Vegna fjárskorts tók ég þriðju önnina í fjarnámi og vann jafnhliða á Stöð 2. Útskrifaðist svo í fyrra með meistaragráðu í alþjóðafjölmiðlun, Inter- national journalism, með áherslu á rannsóknar- blaðamennsku.“ Í námi í Bretlandi á meðan Ísland hrundi viðtal 33 Helgin 14.-16. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.