Fréttatíminn - 28.10.2011, Side 48
Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson
matur@frettatiminn.is
44 kræsingar Helgin 28.-30. janúar 2011
Franck Millet
Sancerre Sau-
vignon Blanc
Loire, Frakkland, 2009
12,5 %
2.999 kr.
Lýsing á vinbud.is:
Ljóssítrónugult.
Létt fylling, þurrt,
sýruríkt. Ljós ávöxtur,
grænjaxlar. Ferskt.
Elfa: mmmm... mér
finnst þetta gott.
Ólína: Já mér finnst
þetta flott. Það er greip
í þessu og ávaxta-
keimur. Ég gæti trúað
að þetta sé dýrt vín,
það er massíft.
Laufey: Ég finn eikarkeim og pínu súran
keim. Þetta er örugglega gott með mat,
sushi og fiski.
Moselland Ars
Vitis Riesling
Þýskaland
8,5%
1.549 kr.
Lýsing á vinbud.is:
Ljóssítrónugult.
Létt fylling, hálf
sætt, fersk sýra.
Epli, pera, læm.
Ólína: Þetta er mjög
sætt vín, nánast eins
og desertvín. Hlýtur
að vera Riesling.
Laufey: Þetta finnst
mér mjög gott.
Elfa: Mér finnst þetta
ekki gott, bara vont.
Alamos
Chardonnay
Argentína, 2010
13,5%
1.899 kr.
Lýsing á vinbud.is:
Ljóssítrónugult,
meðalfylling, þurrt,
fersk sýra. Melóna,
sítrus, pera, eik.
Elfa: Nú finn ég miklu
betri lykt, eikarkeimur.
Þetta er örugglega
chardonnay. Gott vín
en ég myndi ekki borða
sushi með þessu.
Laufey: Þetta er eitt-
hvað fullorðins, svona
fágað og þykkt einhvern vegin. Aðeins of
þungt fyrir mig.
Ólína: Mér finnst þetta líka þungt og lyktin
betri en sjálft vínið. Of mikil eik fyrir mig.
Bouchard Pere &
Fils Meursault
Búrgúndí, Frakkland, 2007
13%
5.530 kr.
Lýsing á vinbud.is: Sítrónu
gult, mjúk meðalfylling,
þurrt, ferskt. Epli, sítrus,
eik, ljós ávöxtur, mandla.
Laufey: Ég get varla lýst
þessu, einhver hnetu-
keimur í lyktinni. Þetta er
of þungt fyrir mig.
Ólína: Það er rosa smjör-
keimur, þetta er einhver
bomba. Þetta er lykt eins
og mann langar að finna
af víni. Það minnir á silki,
rosa fylling í því. Bragðast eins og hunang,
mjög gott.
Elfa: Já mjög flott vín, greinilega chardonnay,
smá ostalykt af því.
HvítvínSSMökkun
Hvítvín og kvennahittingur
Bolli er ekki bara bolli og rétta útlitið getur
breytt öllu. Smekkur manna er mismunandi
og bollarnir frá Kahla eru misstórir, mislitir
og fjölbreyttir í laginu svo flestir geta fundið
þann rétta fyrir sig. Spáðu í bollana hjá Kokku,
í verslun okkar eða á kokka.is
JÓ
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
j
l.
is
•
S
ÍA
Bollaleggingar
Raimat Abadia
Blanc de Blancs
Spánn, 2010
13%
1.999 kr.
Lýsing á vinbud.is: Ljós
sítrónugult. Létt meðal
fylling, þurrt, fersk sýra.
Melóna, sítrus, pera.
Laufey: Þetta er ekki svona
þungt. Þetta er bragðmikið,
ferskt og mjög gott. Eina
fullorðinsvínið sem ég fíla.
Ólína: Þetta er ferskt og
gott og þurrara megin við
strikið.
Elfa: Þetta minnir á Chablis.
Þetta er svona vín eins og
ég drekk. Mjög gott vín.
El Coto Rioja
Spánn, 2010
12%
1.499 kr
Lýsing á vinbud.is:
Fölgult, lítil fylling,
þurrt, fersk sýra.
Léttur ljós ávöxtur,
möndlur, jörð
Elfa: Svolítið súrt,
fengi hausverk af
þessu. Þetta er ekki
svona vín sem maður
myndi segja mmmm...
eftir sopann
Ólína: Myndi drekka
þetta í miklum hita
Laufey: Mér finnst
þetta ekki gott en jú
kannski ískalt í hita
H vítvín fá ekki alltaf þá athygli sem þau eiga skilið. Þau eru yfirleitt léttari og ferskari valkostur en rauðvín og henta því vel sem söturdrykkur í kvennahittingi því
líkt og bjórinn hefur verið kallaður kalladrykkur þá er hvítvínið
sannkallaður skvísudrykkur. Fréttatíminn hefur áður fengið
karlmenn til að hjálpa við bjórsmökkun og því var upplagt að
fá 3 glæsilegar konur til að hjálpa okkur við að smakka hvítvín.
Smökkunin var blind og gerð eftir kúnstarinnar reglum með
hjálp vínsérfræðingsins Gunna Palla á Vínbarnum við Kirkju-
hvol sem hjálpaði einnig við að velja vínin sem voru allt frá
vinsælum og ódýrum upp í fáguð og rándýr. Þær Elfa, Laufey og
Ólína smökkuðu hvert vín og lýstu sinni upplifun.