Fréttatíminn - 30.12.2011, Síða 10
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Elliðavatn
Hafravatn
Hvaleyrar-
vatn
Geldinganes
Viðey
Langavatn
H öfuðborgarbúar geta valið á milli fimmtán brenna á
gamlárskvöld. Langflestar
brennurnar verða í Reykja-
vík eða tíu allt frá Ægisíðu í
Vesturbænum til Klébergs á
Kjalarnesi. Önnur sveitarfé-
lög bjóða upp á eina brennu
hvert. Tendrað verður í nær
öllum brennum klukkan
hálf níu um kvöldið. Undan-
tekningarnar eru brenna
Fisfélagsins í Úlfarsárdal
sem hefst klukkan þrjú um
daginn og brenna Stjörn-
unnar í Garðabæ sem hefst
klukkan níu um kvöldið.
Flestar brennurnar eru
flokkaðar sem litlar brenn-
ur en í Reykjavík eru fjórar
stórar brennur. Þær eru við
Ægisíðu í Vesturbænum,
Fylkisbrennan við Rauða-
vatn, borgarbrennan við
Geirsnef og á Gufunesi við
gömlu öskuhaugana. Yfir-
völd biðla til fólks að hafa
ekki flugelda meðferðis á
brennurnar en við flestar
þeirra verður flugeldasýn-
ing í lokin.
Áramót Brennur
Fimmtán brennur á
höfuðborgarsvæðinu
Áramótabrennur verða víðsvegar um höfuðborgarsvæðið á gamlárskvöld. Flestar eru þær í
Reykjavík eða alls tíu talsins.
Valhúsahæð
kl. 20.30
Ægisíða
kl. 20.30
Skerjafjörður gegnt
Skildinganesi 48-52
kl. 20.30
Vestan Laugarás-
vegar móts við Val-
bjarnarvöll kl. 20.30
Suðurhlíðar neðan
við Fossvogskirkju-
garð kl. 20.30
Kópavogsdalur við
Smárahvammsvöll
kl. 20.30
Við Arnarnes-
vog kl. 21.00
Ásvellir
kl. 20.30
Rauðavatn
kl. 20.30
Suðurfell
kl. 20.30
Gufunes við gömlu
öskuhaugana
kl. 20.30
Ullarnesbrekka
kl. 20.30
Kléberg á
Kjalarnesi kl. 20.30
Geirsnef
kl. 20.30
Úlfarsárdalur ofan
við Lambhagaveg
kl. 15.00
Einsdæmi meðal
OECD landa
Í hlutfalli við önnur skólastig á Íslandi, eru háskólarnir hér
með helming fjármögnunar að baki hverjum nemanda
á við meðaltal OECD-landanna. Að meðaltali kostar há-
skólaneminn í OECD-ríkjunum næstum tvöfalt meira en
grunnskólaneminn, eða 92 prósentum meira. Hér á landi
er staðan allt önnur því að meðaltali er háskólaneminn
ódýrari en grunnskólaneminn. Er þetta einsdæmi meðal
OECD-ríkjanna.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem OECD gaf út í
haust – skýrslu um menntamál í aðildarríkjum sínum;
Education at a glance 2011 og er efni greinar Guðrúnar
Sævarsdóttur, dósents og nýs deildarforseta tækni- og
verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, á blaðsíðu 36 í
viðhorfskafla Fréttatímans.
Meiri arður af
skoðun en veiðum
„Afstaða Dýraverndarsambandsins
til stórhvalaveiða er skýr. Við viljum
þær ekki. Okkar röksemd er að miklu
meiri arður sé af hvalaskoðun. Hitt
eru bara smámunir,“ segir Ólafur
Dýrmundsson, formaður sambands-
ins. Í Fréttatímanum fyrir viku kom
fram að hvalkjöt fyrir milljarða lægi í
geymslum Hvals hf. „Alþjóðasamtök
hafa verið í sambandi við okkur og
við höfum sagt þeim að þessar veið-
ar muni fjara út af efnahagslegum
ástæðum,“ segir Ólafur. Hann bætir
því við að sambandið líti hrefnuveið-
ar öðrum augum. Þar sé um að ræða
nýtingu eins og af venjulegu búfé
eða fiskveiðum. Hið eina sem sam-
bandið hafi sett á oddinn sé aðferðin
við lógun dýranna, að þær séu ekki
nógu mannúðlegar. - jh
Hænsnarækt
á öldrunar-
heimili
Sigurvin Jónsson,
hænsnabóndi með
meiru á Akureyri,
hefur ákveðið að
gefa íbúum á öldr-
unarheimilinu Hlíð á
Akureyri fjórar hænur með
vorinu. Þar stendur til að hefja
hæsnarækt og fleira,
að því er Vikudagur
greinir frá. Sigurvin mun fá titilinn
ráðgjafi í hænsarækt hjá íbúunum á
Hlíð. Þeir hafa komið í heimsókn til
Sigurvins og skoðað hænurnar sem
hann er með í bakgarði sínum. Þar
er hann með hanann Hrólf og syni
hans tvo, Odd Helga og Böðvar, auk
myndarlegs hænsnahóps. - jh
MATSEÐILL
LEIKHÚS-
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
Fo r r é t t u r
Aða l r é t t i r
Laxatvenna –
reyktur og grafinn lax
Bleikja & humar
með hollandaise sósu
E f t i r r é t t u r
Þriggja rétta máltíð á 4.900 kr.
Jack Daniel’s
súkkulaðikaka
Djúpsteiktur ís og súkkulaði-
hjúpuð jarðarber
Brasserað fennell, kartöflu-
stappa og ostrusveppir
eða...
Grillað Lambafille
Með rófutvennu,
sveppakartöflum
og bláberja anís kjötsósu
Sextíu herbergja
hótel í Húsafelli
Stefnt er að því að byggja sextíu her-
bergja hótel í Húsafelli. Breytt eignarhald
leigulóða í Húsafelli, bygging hótelsins
og samstarf við Landsbankann er meðal
þess sem hjónin Bergþór Kristleifsson og
Hrefna Sigmarsdóttir, eigendur Ferða-
þjónustunnar í Húsafelli, boða í kynningu
sem Skessuhorn greinir frá. Sparisjóður
Mýrasýslu eignaðist leigulóðir í Húsafelli
árið 2003. Eftir að Sparisjóðurinn fór í
þrot eignaðist Nýja Kaupþing, síðar Arion
banki, allt stofnfé sjóðsins. Ferðaþjónustan
Húsafelli ehf hefur nú ákveðið að nýta
forkaupsrétt á lóðaleigusamningum í landi
Húsafells auk 54 eignarlóða og versl-
unar- og þjónustulóðar norðaustan við
núverandi frístundabyggð. - jh
10 fréttir Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012