Fréttatíminn - 30.12.2011, Síða 18
Icesave-lögin
felld úr gildi
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, synjaði svokölluðum Ice-
save-lögum staðfestingar 20. febrú-
ar. Þjóðin gekk því til atkvæða-
greiðslu um lögin 9. apríl. Úrslit
kosninganna urðu þau að 69.462
kjósendur sögðu „já“ eða 40,2
prósent en „nei“ sögðu 103.207 eða
59,8 prósent. Lögin voru þar með
felld úr gildi. Þau voru um heimild
til handa fjármálaráðherra til að
staðfesta samninga sem undirritað-
ir voru í London í desember 2010,
svonefnda Icesave-samninga. Þeir
fjölluðu um ábyrgð íslenska ríkis-
ins á endurgreiðslu Tryggingar-
sjóðs innstæðueigenda og fjárfesta
til breska og hollenska ríkisins
vegna kostnaður ríkjanna tveggja
af greiðslu innstæðutryggingar
til viðskiptavina í útibúum Lands-
banka Íslands hf í Bretlandi og Hol-
landi. Eftirlitsstofnun EFTA ákvað
í framhaldi þessa, nú í desember,
að leggja mál Íslands fyrir EFTA-
dómstólinn. Samkvæmt tilskipun-
inni bar Íslandi að tryggja greiðslu
lágmarkstryggingar til hvers Ice-
save-sparifjáreiganda að lágmarki
sem nemur 20 þúsund evrum.
Frumvarp að
nýrri stjórnarskrá
Stjórnlagaráð afhenti forseta Al-
þingis, Ástu Ragnheiði Jóhannes-
dóttur, frumvarp að nýrri stjórnar-
skrá 29. júlí. Í því er gert ráð fyrir
að breytingar á stjórnarskrá séu
framvegis bornar undir atkvæði
allra kosningabærra manna. Sam-
kvæmt frumvarpinu geta tíu af
hundraði kjósenda krafist þjóðar-
atkvæðis um lög sem Alþingi hefur
samþykkt og tveir af hundraði
kjósenda geta lagt fram þingmál á
Alþingi. Kosningakerfið er tekið til
heildarendurskoðunar. Fram kem-
ur að atkvæði kjósenda alls staðar
á landinu vegi jafnt. Meðal annarra
nýmæla frumvarpsins er að for-
seti sitji ekki lengur en þrjú kjör-
tímabil og enginn ráðherra getur
gegnt sama embættinu lengur en í
átta ár. Þá kýs Alþingi sér forsætis-
ráðherra með beinni kosningu í
kjölfar þingkosninga. Sé alþingis-
maður skipaður ráðherra víkur
hann úr þingsæti á meðan hann
gegnir embættinu og varamaður
tekur sæti hans.
Eldgos í
Grímsvötnum
Eldgos hófst í Grímsvötnum 21.
maí. Gosmökkurinn náði 20 kíló-
metra hæð. Nokkur röskun varð
á flugi innanlands vegna goss-
ins. Erlendis var austurhluta
loftrýmis Grænlands lokað um
hríð. Þá var skoskum og norður-
írskum flugvöllum lokað. Loft-
rými yfir norðausturhluta Dan-
merkur var lokað auk þess sem
flugvöllum í Hamborg, Berlín
og Bremen var lokað. Flugum-
ferð komst þó fljótt í eðlilegt horf
og röskunin var miklu minni
en varð í kjölfar gossins í Eyja-
fjallajökli árið 2010. Þjóðvegi eitt
yfir Skeiðarársand var lokað frá
21. til 24 maí. Gosið hafði engin
teljandi áhrif á bókanir ferða-
manna og tjón ferðaþjónustunn-
ar var lítið.
Fréttir ársins
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson,
miklu betur þekktur sem Mugison, er óumdeildur
gleðigjafi ársins. Hann hefur lyft geði drjúgs hluta
landsmanna með tónlist sinni og tónleikahaldi á árinu
og segja má að hann sé kominn á þann stall að geta
talist ástmögur þjóðarinnar.
Mugison hefur ásamt föður sínum keyrt Rokkhátíð
alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, á Ísafirði áfram með
miklum glæsibrag síðastliðin ár og þeim fer stöðugt
fjölgandi sem vilja leggja leið sína vestur til þess að
skemmta sér undir fjölbreyttu tónleikahaldi.
Mugison gaf út hljómplötuna Haglél í haust. Hann
hélt útgáfutónleika þann 1. október í troðfullri Frí-
kirkjunni þar sem hann heillaði mannskapinn með
tónlist og gríni. Platan hefur selst í bílförmum og af
sinni eðlislægu hógværð og ljúfmennsku ákvað Mug-
ison að þakka fyrir sig með því að bjóða til ókeypis
tónleika undir lok ársins. Færri komust að en vildu
í Hörpu þegar Mugison steig á stokk en hermt er að
þeir sem fengu miða verði ekki samir eftir magnaða
upplifunina.
Gleðigjafi ársins
Framhald á næstu opnu
18 fréttir ársins Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 2012