Fréttatíminn - 30.12.2011, Page 56
Helgin 30. desember 2011- 1. janúar 201256 tíska
Tímalaus tíska á
áramótunum
Ótrúlegt hvað tíminn líður. Enn eitt árið hefur
nú flogið frá okkur og erum við nú komin að því
að fagna nýjum áfanga í lífi okkar. Áramóta-
brjálæðið er handan horns og við þykjumst
vera tilbúin í að sprengja okkur yfir í næsta ár.
Spariklæðnaðurinn er rifinn úr hillunum og
gerum við okkur klár í að fagna fagmannlega í
okkar fínasta pússi með nánustu fjölskyldu og
vinum með kampavín í annarri og stjörnu-
ljós í hinni.
Svo virðist sem þetta kvöld hafi yfir sér
að bera tímaleysi þegar tískan er annars
vegar. Ár hvert eru það einkum
glamúrlegir pallíettukjólar fyrir
stelpurnar og smókingjakkaföt
fyrir strákana sem gilda.
Það skiptir eiginlega ekki
hvaða ár er eða áratugur.
Svo virðist sem þessi sér-
staki áramótafatnaður muni
aldrei víkja fyrir einhverju
öðru þetta tiltekna kvöld. Andlits-
málning kvennanna er óhefðbundnari
en venjulega og skvetta þær glimm-
erfarðanum framan í sig í stíl við kjól-
inn. Himinháir hælar verða svo fyrir
valinu án þess að kvenþjóðin taki
nokkurt tillit til veðurs eða aðstæðna.
Þetta virðist svo vera síðasti dagurinn til
að belgja sig út af hátíðarmat hjá flestum.
Margir landsmenn strengja áramótaheit;
lofa sér því að léttast um nokkur kíló og
reynast reglulegir gestir í líkamsræktar-
stöðinni. Ég veit ekki alveg hvaðan þessi
siður kemur upprunalega, en eitt er víst að
hann er ekkert voðalega áreiðanlegur – ára-
mótaheit flestra virðast eiga það sammerkt
að þau eru brotin fyrr en seinna.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Nú, þegar við erum á lokaspretti þessa árs,
keppast snyrtivörufyrirtækin við að kynna
nýju snyrtivörulínurnar sem væntanlegar
eru á nýju ári. Tískurisinn Chanel er eitt
þessara fyrirtækja en á dögunum var nýja
vorlínan þaðan kynnt; Harmonie de Prin-
temps – sem er sumarleg og sæt lína. Hún
er bleiktóna og samanstendur af varalitum,
augnskuggapalléttu, kinnalitum og þremur
fallegum tegundum naglalakks sem heitir
eftir sumarmánuðunum. Chanel-naglalakk
virðast alltaf fá mestu athyglina þess sem
finna má í snyrtivörulínu fyrirtækisins hverju
sinni og ekki skrítið því naglalakk þaðan er
jafnan valið naglalakk ársins.
Falleg og björt
sumarlína frá Chanel
Hin 53 ára gamla Madonna
undirbýr nú markaðssetningu á
nýjasta ilmi sínum Truth or Dare
sem er væntanlegur á markað í
apríl. Innblástur við gerð ilmsins
fær söngkonan frá móður sinni
en markmið Madonnu er að fanga
líkamslykt hennar í ilmvatnsglas.
Auglýsingaherferð ilmsins átti að
hefjast fyrir alvöru í næstu
viku en lykilauglýsingin lak út á veraldarvefinn
fyrr í vikunni. Þar má sjá söngkonuna ofurfótó-
sjoppaða og nakta en ilmurinn er felldur inn í
myndina. Ekki hefur sést mikið af söngkonunni
síðustu misseri og segja sumir tískuspekúlantar
þetta örvæntingarfullt hróp Madonnu á athygli.
Fangar líkamslykt
móður sinnar
Alþjóðlega snyrtivörufyrirtækið
Revlon kynnti á dögunum tvær
nýjar snyrtivörulínur sem unnar
voru í samstarfi við leikkonurnar
Emmu Stone, 23 ára, og Oliviu
Wilde, 28 ára. Emma tók að sér að
hanna fjölbreytilega varaliti sem
samanstanda af varalitum úr allri
litaflórunni. Olivia Wilde fór aðra
leið og hannaði aðeins dökka augn-
skugga sem einkennast af glamúr
og glæsileika. Báðar línurnar eru
væntanlegar í byrjun árs í verslanir
Revlon og á veraldarvefinn og fylgir
sögunni að þessar snyrtivörur verði
á sanngjörnu verði.
Fjölbreytilegir varalitir
og dökkir augnskuggar
Emma Stone.
Olivia Wilde.
Sigrún Svanhvít
Kristinsdóttir 20 ára
Kjóll: Kiss
Sokkabuxur: Oriblu
Skór: Fókus
„Mér finnst kjóllinn
mjög glamúrús og
áramótalegur. Maður
getur aldrei verið með
nóg að glimmeri og
glamúr á áramótunum.
Kjólinn keypti ég í Kiss
og hann er með opið
bak sem mér finnst
mjög töff.“
Aldís Sif Bjarnhéðins-
dóttir 21 árs
Kjóll: H&M
Sokkabuxur: Oriblu
Skór: Bianco
„Þessi kjóll sem ég
keypti í H&M finnst
mér mjög sætur og
skemmtilegur. Fallegt
snið á honum og
fallegur litur. Fannst
hann upplagður fyrir
áramótin.“
Fjölbreytileg
áramótatíska
Ástrós Erla Benediktsdóttir 20 ára
Skór: Manía
Sokkabuxur: Vila
Pils: Götumarkaður
Blússa: Spúútnik
Hálsmen: Six
Armbönd: Fatamarkaður
„Ég kýs að vera í litríkum fötum á
áramótunum. Finnst það eiga vel við
alla litina sem við sprengjum upp með
rakettunum. Hálsmenið finnst mér
einnig passa vel við þetta kvöld. Fín föt
á nýju ári.“
Veronika Ómarsdóttir
20 ára
Skór. Gallerí Ozone
Sokkabuxur: Oriblu
Kjóll: Dúkkuhúsið
Skyrta: Gallerí Ozone
Skinn: Kolaportið
„Þetta eru þægileg
föt sem eru mátulega
glamúrus fyrir áramótin.
Feldinn valdi ég sér-
staklega til þess að
halda á mér hita í köldu
veðrinu.“
Fimm stúlkur opnuðu fataskápinn sinn fyrir
Fréttatímanum og frumsýndu áramótadressið
í ár. Áramótatískan virðist vera fjölbreytileg,
skemmtileg og allt virðist vera leyfilegt.
María Rún Baldurs-
dóttir 21 árs
Skór: Einvera
Buxur: Forever21
Bolur: Kalda
Hálsmen: Forever21
„Persónulega finnst
mér of mikið að
klæðast stuttum
glanskjólum í kuld-
anum. Ég vil frekar
klæða mig í þægileg
en töff föt sem passa
vel við mig sjálfa.
Þessar buxur sem
ég fékk í Forever21
eru krúttlegar og
passa vel við rokkaða
skóna.“