Prentneminn - 01.01.1970, Blaðsíða 5
Erfitt var að stilla myndavélina.
arnir reyndir á steinhellu Snorra bónda
sem áður bjó þar á bæ. Frá Húsafelli var
haldið skömmu seinna og ekið um traðir
Kalmannstungu. í fótbolta var farið rétt
á eftir og er það sá söguilegasti leikur sem
ég hef augum litið um lengri tíma.
Menn skiptu sér auðvitað í 2 hópa eins
og venja er. Leikurinn byrjaði ,og gekk
boltinn manna á miili eins og gengur og
gerist. En það var eitt sem einkenndi
þennan leik frá öðrum. Menn vita yfir-
leitt með hverjum þeir spila og hverjir
eru mótherjar, en það kom ekki fram í
lei'k þessum, heldur var knettinum
sparkað hingað og þangað, helzt þangað
og enginn vissi hvert sparka átti. Lík-
lega hefur það verið vegna þess að menn
voru orðnir uppþembdir af „mjólkur-
drykkju". En iivað með það, betra liðið,
ef kalla skyldi lið, vann auðvitað. Eftir
þennan ofsa-leik var haldið í flýti mikl-
um niður til Borgarness. Var stanzað á
Hótel Borgarnesi og kvöldverður borð-
aður með gxæðgi mikilli, því menn voru
orðnir svangir.
Úh. — Að loknum kvöldverði var far-
ið að íhuga dansleikinn að Hlöðum fyrir
alvöru og ekki síður líka hinar heitu og
fagurlimuðu heimasætur, sem vaxa eins
og gras þarna á bæjunum. í einum græn-
um — stopp — sauð á bílnium, sótt vatn —
áfram — var blússað inn Hvalfjarðar-
strönd, og slegið upp tjöldum á grasflöt
rétt fyrir ofan dansstaðinn.
Ágætt veður var með úðarigningu inn
á milli, og hjálpaðist ailt að þangað til
öll tjöldin voru risin, sum dálítið s'kökk,
en það gerði ekkert til. Við gáfum bíl-
stjóranum frí til morguns og hélt hann
til Reykjavíkur en lofaði að koma kl. 3
á sunnudag að sækja okkur.
Þá byrjaði gamanið fyrir alvöru. Flest-
ir lauguðust brunnvatninu títtnefnda til
að líta sem karlmannlegast út um kvöld-
ið. Þar sem tjaldstæðið var rétt við veg-
inn urðu margir til að líta við hjá o'kkur
og heilsa upp á mannskapinn. Sérstakar
móttökur og kveðjur fékk hópur frá
„varnarliðinu", sem gjörðist ágengur til
íslenzkra guðaveiga. Þegar þeir fóru öskr-
uðu nokkrir si svona: „Go home from
V-nam, Iceland out of NATO!“ og þar
fram eftir götunum.
Dansleikurinn var ævintýri líkastur.
Reyndi margur svartlistarsonurinn að
vinna hylli heimasætnanna með gorti um
að hann liafi stillt inn 16 síðna form á
10 mínútum eða hann hafi sett 20 línur
upp á 20 cic. á 15 mín. Allt slíkt raus
PRENTNEMINN
5