Prentneminn - 01.01.1970, Page 16
síðan, þar til seinni umræða fór fram sem
3. mál, á sunnudag. Menn virtust ekki
hafa fundið neina alvarlega vankanta á
breytingatillögunum sem lagðar voru
fyrir, því þær voru samþykktar með smá-
vægilegum orðalagsbreytingum. 4. mál
var iðnfræðsian. Eins og menn vita vafa-
laust, þá er búið að tryggja námsefni og
lengja kennslumisseri Iðnskólans. Þetta
er gott svo langt sem það þó nær, við vit-
um að í nökkrum iðngreinum er engin
verkleg kennsla.
Það getur varla talist forsvaranlegt að
auka aðeins bóklega námið, og það verk-
lega hjá sumum, meðan það er ekkert
verknám hjá öðrum, því að sjálfsögðu
hlýtur að eiga að leggja megináherzlu á
verklega kennslu í skóla sem þessum.
Á þinginu var nokkuð fjallað um að
Sambandið gengist fyrir starfsfræðslu,
þar sem kynnt yrði m. a. námsefni Iðn-
skólans, launamál iðnnema og almennar
upplýsingar um einstök iðnnemafélög og
atvinnumöguleika.
Þó nokkrar umræður urðu um þá al-
varlegu staðreynd að iðnnemar gengu at-
vinnulausir á s.l. vetri. Þingið lýsti yfir
megnustu vanþóknun sinni á því sinnu-
leysi er Iðnfræðsluráð hefur sýnt, um að
iðnfræðslulögin séu haldin.
Þingið krafðist þess að iðnfræðsluyfir-
völd komu á vinnudagbókum ,en með
þeim yrði tryggt að nemendur lærðu það
sem tilskilið væri, en þó nökkuð hefur
borið á því að meistarar hugsi meira um
þann gróða sem þeir geta haft af nem-
endum, en að kennslan sé sem víðtækust
og bezt.
Nokkrar nefndir komu til starfa kl. 9
á sunnudagsmorgun út á Hótel Loftleið-
um, en þar var þingið ha'ldið lokadaginn.
Þingfundur var settur kl. 11. Starfsemi
iðnnemafélaganna og iðnnema almennt,
var fyrst tekið fyrir. Eins og við mátti
búast kom fram að sum félög höfðu
starfað vel og önnur illa.
Ýmsum fámennum iðnnemafélögum
úti á landi, verður að telja það til hróss,
að þau skuli halda uppi ágætri félags-
starfsemi ,oft við erfiðar aðstæður, á sama
tíma og önnur, jafnvel fjölmennari félög
hér á liöfuðborgarsvæðinu leggja upp
laupana og sofna. Öil vitum við að starf-
semi Iðnnemasambands íslands byggist
upp út frá aðildarfélögum þess ,því ætti
það að vera öllum iðnnemum kappsmál
að sambandsstjórn liafi sem fjölmenn-
astan og sterkastan hóp iðnnema á bak
við sig.
Síðan var matarlilé og gæddu menn
sér á girnilegum mat, dýrlegum veigum,
eða jafnvel hvorutveggja.
Er fundur liófst aftur upp úr kl. 1, var
tekið fyrir kaupgjaldsmál iðnnema, en
allir vita af eigin raun hvernig kjörin
eru, allflestir vita hvernig reynt er á allan
hátt að níðast á góðmennsku okkar, en
það er hvað helzt þess vegna sem við þurf-
um öll að standa saman og með góða
stjórn.
Næst voru þjóðmál tekin fyrir. Drög
að ályktunum um ýmis þjóðmál lágu
fyrir, svo sem efnahagsmál, verkalýðsmál,
atvinnumál, utanríkismál o. fl.
Eftir að samþykkt hafði verið að færa
einn lið utanríkismálanna yfir á efna-
hagsmál, kom fram sú tillaga að utanrík-
ismál yrðu ekki rædd á þiginu. Eftir að
sú tillaga var samþykkt, að viðhöfðu
nafnakalli, gerðist það að formaður Iðn-
nemasambandsins gekk út af fundi, til að
mótmæla slíkri meðferð mála, hann kom
þó inn aftur, er hann hafði jafnað sig
nægiiega. Nokkuð miidar umræður urðu
um hin ýmsu mál, sumt tekið út úr á-
lyktunum og annað sett inn. Hvet ég
menn eindregið til að reyna að komast
yfir eintak af ályktunum þingsins og
kynna sér þær.
Þá var komið að jrví veigamikla máli
að kjósa inn nýja stjórn. Sérstök uppstill-
ingarnefnd hafði komið sér saman um
16
PRENTNEMINN