Prentneminn - 01.01.1970, Síða 10

Prentneminn - 01.01.1970, Síða 10
Talafi vifi Ola Vestmann Einarsson um prentskólann og iðnfræðsluna Við hittum Óla Vestmann uppi í sikóla fyrir áramótin og fengum liann til að svala fróðleiksfýsn okkar um prentskól- ann og iðnnámið almennt. Geturðu sagt okkur, Óli, hvað' náms- áœtlunin er langt á veg komin? Þið segið nokkuð. Samkvæmt 11. gr. iðnfræðs'lulaganna skipar Iðnfræðsluráð þriggja manna fræðslunefnd hverrar iðngreinar. Skal einn nefndarmanna vera meistari og ann- ar sveinn þeirrar iðngxeinar, sem við á, en hinn þriðji tilnefndur af Sambandi iðnskóla á íslandi, og sé liann að jafnaði kennari í viðkomandi grein. Skipar Iðn- fræðsluráð einn nefndarmanna formann. Fræðslunefndin í setningu er skipuð Guðjóni Sveinbjörnssyni frá Hinu ís- lenzka prentarafélagi, Þorgeiri Baldurs- syni frá Félagi íslenzkra prentsmiðjueig- enda og Óla Vestmann Einarssyni frá Sambandi iðnskóla á ÍSlandi. Fræðslunefndin í prentun er skipuð Jóni Júlíussyni frá Hinu íslenzka prent- arafélagi, Garðari Sigurðssyni frá Félagi íslenzkra prentsmiðjueigenda og Haf- steini Guðmundssyni frá Sambandi iðn- Skóla á íslandi. Hlutverk fræðslunefnda er að vera stjórnvöldum og öðrum til ráðuneytis og gera tillögur um oám og kennsluháttu, enda ber stjórnvöldum að leita umsagnar nefndanna um slík mál, eftir því sem við á. Allt námið er nú í endurskoðun hjá þessum fræðslunefndum og hafa þær haldið nokkra sameiginlega fundi og sent tillögur til Iðnfræðsluráðs. Þú sagðir að nefndirnar hefðu sent frá sér tillögur. Hvers efnis voru þœr? Þær voru um aukið sérnám fyrir prent- iðnaðinn á kostnað hins almenna bók- náms, sem við álítum að eigi að vera að mestu lokið er iðnskólanám hefst, saman- ber námsskrá menntamálaráðuneytisins fyrir nemendur á fræðsluskyldualdri. Þið hafið unnið lengi að þessu. Hvað hefur áunnizt? Nefndirnar voru skipaðar 2. marz 1967. Fræðslunefndin í setningu liélt nokkra fundi skömmu eftir að við feng- um skipunarbréfið, og komum við ok'kur saman um að boða fund með fræðslu- nefndinni í prentun. Gerðu nefndirnar ti'llögur til Iðnfræðsluráðs eins og áður er sagt. Það virðist ljóst, að nýju iðnfræðslu- lögin gera ekki ráð fyrir verklegri kennslu í iðnskólum. Iðnskólarnir eru því hugsaðir sem bóklegir skólar ein- göngu og eiga að annast bóklega kennslu. Telji fræðslunefndirnar hins vegar nauð- synlegt að koma við einhverri verklegri fræðslu í iðnskóla, sem aldrei getur orð- ið ýkja mikil vegna vanbúnaðar skól- anna að tækjum og vélum (tæplega þó átt við okkur), þá verður það að gerast á sérstökum námskeiðum utan hinnar venjulegu námsskrár. Það er því skoðun námsefnisnefndar Iðnfræðsluráðs, að verkleg kennsla skuli 10 PRENTNEMINN

x

Prentneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentneminn
https://timarit.is/publication/950

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.