Prentneminn - 01.01.1970, Síða 17
imenn í hina nýju stjórn og voru litlar
sem engar breytingar gerðar á uppstill-
ingu hennar, en að sjálfsögðu var stungið
upp á fleiri mönnum og fram fóru ‘kosn-
ingar, og væntanlegasta þeir hæfustu
valdir úr. Sérstaklega vil ég geta þess hve
núverandi formaður , Magnús E. Sig-
urðsson var einróma kjörinn, en allir
virtust á sama máli um, að hann væri
hvað hæfastur í þetta vandasama starf.
Þá var komið að síðasta liðnum, en
það var önnur mál. Undir þeim lið
komu menn aðailega upp til að þakka
einhverjum fyrir eitthvað, þó kom fram
boð frá iðnnemum í Neskaupstað um að
halda þar skíðamót í vetur ,og er vonandi
að sambandsstjórn sjái sér fært að halda
Skíðamót þar.
Síðan var 27. þingi I.N.S.Í. slitið. Fljót-
lega fóru menn svo að tínast út úr þing-
salnum, ýmist heim eða fram í danssal-
inn, og hefur ekkert spurzt til þeirra síð-
an.
ss
Breytingar á félagaskrá
Hafa lokið sveinsprófi eða hætt námi af öðrum
orsökum:
Ársæll B. Ellertsson, prentari.
liii-gir A. Fredriksen, offsetprentari.
Einar Valgeirsson.
Garðar J. Guðmundsson, prentari.
Gísli Ingólfsson, setjari.
Grétar Þ. Egilsson.
Guðjón Ingvarsson.
Gunnar Gíslason.
Gunnar Halldórsson, offsetprentari.
Halldór G. Halldórsson, prentm.smiður.
Halldór V. Jóhannesson.
Helgi Siguigeirsson, bókbindari.
Hörður S. Hallgrímsson, prentari.
Ingi Þ. Jóhannesson, offsetprentari.
Jóhannes L. Gíslason, offsetprentari.
Jón S. Hermannsson, setjari.
Kristján Jónsson, setjari.
Kristján Pálsson, prentmyndasmiður.
Lárus P. Ragnarsson, setjari.
Ólafur Emilsson, prentari (áður lært setningu).
Ólafur Þ. Sverrisson, offsetprentari.
Pétur G. Gunnlaugsson, setjari.
Sigurður Ásgeirsson, bókbindari.
Sigurður ísleifsson, setjari.
Þorbjörn Friðrikss., setjari (áður lærl. í prentun).
Örn Ó. Úlfarsson, bókbindari.
Við fögnum þeim nýbyrjuðu.
Garðar Hilmarsson, prentun, ísafold.
Jón Ágústsson, liókliand, Skarð.
Júlfus Brjánsson, prentun, Jón Helgason.
Oddgeir B. Guðfinnsson, prentun, Setberg.
Olgeir SveiTÍsson, setning, Guðjón Ó.
Skúli Marteinsson, offsetprentun, Offsetprent.
Svavar Magnússon, offsetpr., Offsetmyndir sf.
Þorkell Þ. Snædal, prentun, Skarð.
Þórarinn Böðvarsson, prentun, Hagprent.
Iæiðrétting:
Hjörleifur Hjörtþórsson, bókband, Félagsbókb.
Svar til „pressulærlings“
„Er setning kvenmannsverk?“ spyr
„pressuilærlingur“ í síðasta tölublaði
Prentnemans. Því ekki? Öll störf eru
kvenmannsverk ef því er að skipta, líka
jafn klossað og óþrifalegt starf sem prent-
un er, í höndum sumra a. m. k.
I háþróuðustu ríkjum veraldar vinna
konur öll þau störf jafnhliða karlmönn-
um, sem í vanþróaðri ríkjum eru ein-
göngu unnin af 'karlmönnum. Læknavís-
indin hafa sannað að líkamsbygging kon-
unnar er betur úr garði gerð heldur en
karlsins, þannig að erfiðisvinna breytir
þarna engu um. Ég er því sammála
„Pressulærlingi“ um það, að vinna beri
að því að auka starfsemi kvenna í setn-
ingu, sem í öðrum stéttum þjóðfélagsins.
Með vinsemd.
Magnús Einar Sigurðsson, nemi í setningu.
PRENTNEMINN
17