Prentneminn - 01.01.1970, Qupperneq 20
Landsmót iðnnema
Landsmót I.N.S.Í. var haldið helgina
12. og 13. júlí s.l. sumar að Félagslundi í
Gaulverjabæjarhreppi.
Að venju sendi félagið föngulegt lið og
hefur sjaldan áður ríkt eins mikil eining
meðal prentnema sem þá til að njóta
skemmtunar og íþrótta meðal fríðs flokks
ungra íslenzkra iðnnema víðsvegar að af
landinu. — Sumir okkar fóru á föstudag-
inn austur og hugðust nota tímann til
æfinga á ýmsum tegundum íþrótta. Þeir
sem voru rólegri og hógværari fóru um
hádegisbil á laugardeginum, enda reynd-
ist það vera nægilega tímanlega.
Mótið var sett um þrjúleytið, aðeins
kluikkutíma síðar en fyrirfram var áætl-
að. Dagurinn leið við útiveru, t. d. mis-
þyrmdu þó nokkrir gúmmítuðru fylltri
af lofti, ýmist með höndum og/eða fót-
um. Fyrir áhorfendur var þetta býsna góð
skemmtun enda hljómuðu bítlalög og
aðrar symfóníur úr risastórum hátölur-
um inn á milli annarra íþróttaviðburða.
Ekki má gleyma því sprikli, sem Siggi
í útvarpinu nefnir frjálsar íþróttir. Þar
reyndn menn að teygja aðra löppina
fram fyrir Iiina og aðalatriðið var að gera
það nógu helv. . .. hratt, því þá var hægt
að taka tímann hjá þeim. Tókst þetta
misjafnlega. Upp við húsið voru nokikrir
beljakar að kasta járn'klumpi eitthvað út
í loftið, en til liliðar við völlinn stukku
menn ýmist Iiæð sína í loft npp eða
gjörðu tilraun til að fljúga jafnlengd
Skrokksins fram af spítuklumpi.
Og þá hló marbendill.
Hluti af tjaldbúöunum.
Sem betur fór urðu menn þó svangir
og hættu ólætin því nm kvöldmatarleyt-
ið. Hafði þá einn unnið annan og hinn
tapað fyrir öðrum með glæsibrag á ís-
lenzkra manna vísu að sjálfsögðu.
Já, ballið, sko!
Á dansleiknum lék hljómsveitin POPS
fyrir dansi (góðkunn ölilum prentnem-
um), en til þess að lýðurinn trylltist ekki
alveg voru tilkallaðir 4 eða 5 lögreglu-
Jrjónar með alltof stórar húfur og breið
nef til að sefa mannskapinn. Dyraverð-
irnir voru líka eitthvað að hreinsa til og
pata út öngunum (á meðan þeir stóðu á
fótunum).
— Ballið búið —.
Eiginlega er ekki Jrorandi að segja
meira frá kvöldinu. „Da vabara eins og
allsherjar jartípleis mar og det bragede
og knagede imellem" píkuskrækjanna
fram undir lágnættið.
Snemma að morgni helgidagsins gekk
20
PRENTNEMINN