Prentneminn - 01.05.1984, Qupperneq 17
greina
Þegar litmynd er unnin fyrir prentun
liggur oft beinast við að litgreina
frummynd ljósmyndarans. Algengast
er að slík frummynd sé díapósitíf.
Hægt er að litgreina litnegatíf, en það
er óhentugra og sjaldan gert. Með
þróun og auknum gæðum á ljós-
myndavörum hafa opnast nýir mögu-
leikar hvað varðar litgreiningu á ljós-
myndum. Þessir möguleikar felast í
því að nota svokallaðan „orginal nr.
2“ (second genaration orginal), til að
litgreina eftir.
Helstu aðferðir við gerð orginals nr.
2 eru eftirfarandi:
Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að
hentugra sé að litgreina eftir orginal
nr. 2. Þær eru helstar eftirfarandi:
1) Varðveita má frummyndina án
þess að eiga á hættu að hún skemmist
í meðferð eða tapist. Þetta á sérstak-
lega við þegar sama frummyndin er
notuð aftur og aftur í mismunandi til-
gangi.
2) Ef litgreina á margar myndir úr
ýmsum áttum og á mismunandi film-
um getur verið hagkvæmt að búa til
orginala nr. 2 og um leið samræma
liti og tóna.
3) Ef orginal nr. 2 er stækkun eftir
frummyndinni getur verið auðveldara
að skoða og sýna myndina. Auk þess
getur öll vinna við myndina, t.d.
möskun, litun (airbrush), samkóper-
ing eða skeyting verið auðveldari.
Ofangreindar ástæður fyrir notkun
orginals nr. 2 eru um leið kostur
þeirra. Hvaða aðferð er best að nota
fer eftir tegund hvers verkefnis fyrir
sig. Þó er reynslan sú að menn velji
aðferðina af gömlum vana frekar en
af tæknilegum ástæðum. T. d. hafa
margir efast um árangur að stækka
skyggnur á pappír. Það er þó stað-
reynd að þetta er hægt með góðum
árangri og fer notkun þessarar að-
ferðar vaxandi við auglýsingagérð.
Kostir þess að nota pappírsstækkun
sem orginal nr. 2 eru t. d. eftir-
farandi:
1) Hægt er að staðla myndir fyrir
prentun á ákveðnu verkefni. Þetta á
ekki eingöngu við hvað varðar stærð,
heldur einnig liti, tóna og tegund
litarefna í ljósmyndun. Slíkt getur
sparað óhjákvæman tíma í uppsetn-
ingu á scanner.
2) Gerð „layouts“ er auðvelduð.
Hægt er að setja staðlaðar pappírs-
myndir þannig upp að innbyrðis af-
staða og stærð þeirra sé rétt og lit-
greina þannig heilu blaðsíðurnar eða
jafnvel nokkrar blaðsíður í einu.
Þetta getur sparað mikinn tíma við
skeytingu á litgreindum myndum.
3) Það er auðveldara að meta mynd
sem hefur verið stækkuð í þá stærð
sem hún á að prentast í, eða stærri.
Þannig getur viðskiptavinurinn fengið
betri hugmynd um hver loka útkom-
an verður og gert ráðstafanir til að
breyta-því sem hann kýs, áður en lit-
greining fer fram.
Notkun orginals nr. 2 leysir auðvitað
ekki vandann við að prenta litmynd
vel, heldur flytur hluta af vandanum
yfir á fyrra stig í prentferlinum. En á
því stigi getur verið ódýrara og auð-
veldara að gera einhverjar breytingar
sem þörf er á.
Helsti ókostur þess að nota orginal
nr. 2 er kostnaðurinn við gerð hans.
Þetta er þó aðeins ókostur þegar
sparnaðurinn við notkun hans vegur
ekki þyngra á metunum. Tap á gæð-
um á ekki að þurfa að eiga sér stað
ef orginal nr. 2 er vel unninn. Eitt-
hvert tap á skerpu vegna aukastigs í
ferlinum er í flestum tilfellum ekki
sjáanlegt í prentun. Auk þess má
auka skerpuna, með nútíma scanner
tækni.
Reykjavík, febrúar 1984
Einar Erlendsson.
PRENTNEMINN 17
FRUMMYND ORGINAL NR. 2
LITNEGATÍF STÆKKUN Á PAPPÍR
STÆKKAÐ DÍAPÓSITÍF
DÍAPÓSITÍF DUBLIKAT
STÆKKUN (MINNKUN) Á DÍAPÓSITÍF