Prentneminn - 01.05.1984, Page 35
Hafa framleitt vélar
fyrir prentiðnaðinn í 40 ár
Eskofot AS í Danmörku er löngu
heimsþekkt fyrir framleiðslu sína á
tækjum fyrir grafíska iðnaðinn. Upp-
hafsmaður fyrirtækisins og aðaldrif-
fjöður fram til dagsins í dag er Böre
Nielsen. Það var árið 1941 sem Niels-
en hófst handa við tilraunir með ljós-
kópíutæki. A þeim tíma tók 3 mínút-
ur að gera kópíu og þurfti til þess 3
mismunandi vökva-böð. Síðan þetta
var hefur orðið bylting á þessu sviði
og á Eskofot ekki hvað minnstan þátt
í því með framleiðslu sinni á Ijósrit-
unar og stenslagerðarvélum.
Nýlega gerði 3M í Bandaríkjunum
samning við Eskofot um að framleiða
þúsundir stenslagerðarvéla af gerð-
inni Eskofot 1332 sem 3M mun selja
í Bandaríkjunum.
Eskofot framleiðir einnig mjög
margar gerðir grafískra myndavéla,
allt frá litlum vélum sem henta ákaf-
lega vel fyrir auglýsinga og teiknistof-
ur og upp í stórar vélar sem hæfa
öllum stærðum prentiðnaðarfyrir-
tækja.
Flaggskipið í myndavélaflota
Eskofot er 707 OL myndavélin, sem
er alsjálfvirk tölvustýrð myndavél
sem hentar mjög vel til hvort sem er
strika- eða rasta-myndatöku.
Eskofot framleiðir einnig fram-
köllunarvélar fyrir samlokukerfi
hvort heldur sem er fyrir mynda- eða
prentplötugerð í þrem mismunandi
stærðum.
865A og 842A eru Rapid access
framköllunarvélar sem hægt er að
nota hvort heldur sem er fyrir ljós-
setningarpappír eða filmur. Méðal
annars eru þær með sjálvirkan út-
reikning á endurnýjun efna og valsa-
og dælukerfið er afar fullkomið.
Eskofot framleiðir einnig lýsingar-
kassa sem sameina í einu tæki plötu-
ramma,kópíubox og ljósakassa fyrir
samlokjukerfi.
Einkaumboð fyrir Eskofot á íslandi
hefur ACO hf. Laugavegi
168.Reykjavík.
PRENTNEMINN 35