Fréttatíminn - 29.04.2011, Page 22
Við vildum blanda saman
stáli og timbri og hlýleika ...
L eikmyndahönnuðurinn Hálfdán Pedersen og konan hans, Sara Jónsdóttir, eru hönnuðir Kex Hostel
sem opnað verður í gömlu kexverksmiðjunni
Frón við Skúlagötu. Þau lögðu mikið á sig
til að komast yfir réttu munina og hús-
gögnin. „Við lögðum upp með ákveðna hug-
mynd og það var augljóst að iðnaðarlúkkið
sem við vildum skapa væri erfitt að sækja
á Íslandi. Við fórum því á svæði í Banda-
ríkjunum þar sem einu sinni var mikill
iðnaður, eins og Detroit, Pittsburg, Virginia
og Ohio. Þar leigðum við okkur trukk,
keyrðum á milli yfirgefinna bygginga og
söfnuðum í sarpinn,“ segir Hálfdán. Hann
segir þetta vel þekkta aðferð til að komast
yfir tískuhúsgögn á góðu verði og forðast
dýrar antíkverslanir.
„Við vildum blanda saman stáli og timbri
og hlýleika og halda hráu iðnaðarútliti. Til
að verða okkur úti um litrík húsgögn og
tekkmublur og annað sem ekki er framleitt
í dag og erfitt er að finna, þræddum við flóa-
markaði í Þýskalandi.“ –ÞT
Leikmyndahönnuður hannar Kex Hostel
www.rumfatalagerinn.is
OPIÐ Á
SUNNUDAG
1. MAÍ
SUMARBÆKLIN
GURINN
OKKAR ER KOM
INN ÚT!
Lj
ós
m
yn
di
r/
H
ar
i
22 innlit Helgin 29. apríl-1. maí 2011