Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.01.2011, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 28.01.2011, Blaðsíða 10
Sumir eru eilífðarstúdentar. Hvað ert þú orðinn? -er svarið Árlega fletta Íslendingar 100 milljón sinnum upp á Já.is og Símaskráin kemur út í 150 þúsund eintökum. Ef þú vilt breyta skráningu þinni hafðu þá samband við þjónustufulltrúa okkar í síma 522 3200, farðu inn á Já.is eða sendu tölvupóst á ja@ja.is. Skráningum í Símaskrána lýkur 31. janúar. E N N E M M / S ÍA / N M 4 4 2 5 8 Marie Amelie, öðru nafni Madina Salamova, var vísað úr landi í Noregi fyrr í vikunni. Norska útlendingastofnunin varð ekki við ósk um að fresta því að senda hana úr landi. Hún var því handtekin, flutt til Gar- dermoenflugvallar við Ósló og send til Moskvu. Með henni fór norskur unnusti hennar, Eivind Trædal. Hann getur dvalið í Rússlandi fram í miðjan febrúar. Hann vinnur að því að unnustan komist til Noregs á nýjan leik. Mál Marie Amelie hefur vakið mikla athygli og deilur í Noregi, eins og fram kom í Fréttatímanum síðastliðinn föstudag. Hún kom ólöglega til Noregs sem ólögráða unglingur í fylgd með foreldrum sínum. Fjölskylda hennar flúði frá Norður-Ossetíu, í hinum rússneska hluta Kákasusfjalla, til Finnlands þegar Maria Amelie var tólf ára og síðar til Noregs árið 2002. Hún er nú 24 ára. Fjölskyldan fékk aldrei landvistarleyfi í Noregi. Maria Amelie talar norsku og hefur lokið háskólaprófi í Noregi. Á síðasta ári gaf hún út bók um líf ólöglegra innflytjenda í Noregi og byggði hana að nokkru leyti á eigin lífi. Í kjölfarið fór útlendingastofnunin fram á það að hún yrði handtekin. Fréttaskýringaritið Ny tid valdi Mariu Amelie Norðmann ársins vegna bókarinnar. Rússneska útlendingaeftirlitið tók á móti Marie Amelie og veitti henni landvistarleyfi til bráðabirgða. Blaðamaður netútgáfu norska dagblaðsins VG ræddi við hana og kærastann á kaffihúsi eftir fyrstu nóttina í Moskvu. Hún sagðist hreinlega vera í áfalli. Í viðtali um borð í rússnesku flugvélinni á leið til Moskvu kvaðst hún vera niðurbrotin. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is  Noregur Marie aMelie var seNd til rússlaNds „Er hreinlega í áfalli“ Marie Amelie, öðru nafni Madina Salamova, sem valin var Norð- maður ársins var send úr landi til Rúss- lands. Sundlaugargestum fjölgar milli ára í Hafnarfirði, ólíkt því sem gerist í Kópavogi. 44.500 fleiri en árið á undan heimsóttu allar laugar í bænum utan einnar í fyrra og voru 526.874 komur skráðar. Ferðum gesta fjölgaði mest í Ásvallalaug, eða um 31.640 á milli ára. Þeim fækkaði lítillega í Lækjarskólalaug; um 2.170. Gestakomum í sundlaugar Kópavogs fækkaði um níu prósent milli áranna 2009 og 2010 en fjölgaði í Reykjavík um 4,5 prósent og um 8,5 prósent í Hafnarfirði. - gag Tugþúsundum fleiri í sund í Hafnarfirði Hannes í mál vegna kyrrsetningar Athafnamaðurinn Hannes Smárason hefur ákveðið að höfða mál gegn fjármálaráðu- neytinu á grundvelli ólögmætrar kyrrsetn- ingar sem skattrannsóknarstjóri fór fram á snemma á síðasta ári vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum FL Group. Skatt- rannsóknarstjóri fór fram á kyrrsetningu hjá fjórum einstaklingum; Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Skarphéðni Berg Steinarssyni, fyrrverandi stjórnarfor- mönnum FL Group, og forstjórunum fyrrverandi, Hannesi og Jóni Sigurðssyni. Dómstólar úrskurðuðu kyrrsetning- arnar ólöglegar og hefur Skarphéðinn Berg þegar hafið málarekstur gegn íslenska ríkinu. -óhþ L jó sm yn d/ Pa x fo rl ag . s jö af fimmtán kvikmyndum sem RÚV hefur sýnt síðustu átta laugardagskvöld hafa þegar verið sýndar allt að þrisvar á Stöð 2 og einhverjar þeirra tíu sinnum í kjölfarið á Stöð 2 bíó, þá dreift á tveggja til þriggja ára tímabil. Þetta staðfestir Skarphéðinn Guð- mundsson, dagskrárstjóri Stöðvar 2. Önnur kvikmyndanna sem RÚV sýndi á jóladag, Sögur frá Narníu – Kaspían prins, var síðast sýnd á Stöð 2 í apríl í fyrra og kvikmynd RÚV á nýársdag, Þjóðargersemi: Leyndarmálabókin, var síðast sýnd á Stöð 2 í nóvember 2009. Hinar myndirnar tvær þessi kvöld voru endursýnd- ar. Þess má einnig geta að af laugardagskvikmyndunum fimmtán voru þrjár franskar. Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að þegar RÚV þurfi að spara og draga saman í kostnaði séu sýndar ódýrari myndir en þegar betur ári. „Nú hefur staða RÚV batnað og bíómyndaframboðið, sérstaklega á föstudögum og laugardögum, mun batna.“ Hann bendir á að minni- hluti heimila á landinu sé áskrifandi að læstri dagskrá Stöðvar 2. „Við getum ekki, sem almannaþjónustustöð, verið að dagskrársetja okkur eftir því hvað hefur verið sýnt og hvað ekki á dagskrá Stöðvar 2. Það er útilokað. Við þjónum allri þjóðinni, öllum landsmönnum.“ Páll blæs á þær fullyrðingar Skarphéðins að Ríkissjón- varpið kjósi að sýna þekktar afþreyingarmyndir til þess að fá fyrirtæki til að kosta sýningu þeirra. „Nei, nei, nei, nei, nei,“ segir hann og að vart geti verið auðvelt að fá kostun á margsýndar myndir. „Það eru lögmál sem hann þarf að hugsa um en við gerum ekki.“ Páll bendir á að kvikmyndir fari fyrst í sýningu í bíóhúsum, þá á DVD-diska, loks í læsta sjónvarps- dagskrá og svo bjóðist opnum frístöðvum að kaupa þær. „Þetta er sölugoggunarröðin og ekkert séríslenskt fyrirbrigði. Þetta á við um allan heim.“ Skarphéðinn bendir á að þótt Stöð 2 sýni margar myndir rati fjöldi mynda ekki inn í dagskrá áskriftarstöðvanna. „Við kaup- um því miður ekki myndir sem ekki þykja nógu auglýsingavæn- ar því þær fá ekki eins mikið áhorf og aðrar. Við vitum þó að væru þær sýndar á RÚV fengju þær fínt áhorf,“ segir hann og vísar til að mynda til breskra kvikmynda. „En það skaðar ekki Stöð 2 þótt RÚV endursýni myndirnar.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is RÚV lofar betri helgardagskrá Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að nú þegar fjárhagur RÚV hafi vænkast megi búast við því að helgardagskráin batni. Helmingur kvikmynda RÚV á laugardagskvöldum síðustu átta vikur hafa verið sýndar á Stöð 2 og endursýndar allt að tíu sinnum á kvikmynda- stöðinni Stöð 2 bíó. Bíómynda- framboðið, sérstaklega á föstu- dögum og laugardög- um, mun batna.  sjóNvarp sjö af fiMMtáN síðustu laug- ardagsMyNduM þegar verið sýNdar á stöð 2 RÚV Stöð 2 22. jan Good Will Hunting Síðast sýnd á Stöð 2 2005 15. jan. Along Came Polly Síðast sýnd á Stöð 2 2007 München/Munich Síðast sýnd í maí 2009 1. jan. National Treasure: Book of Secrets Síðast sýnd á Stöð 2 í nóv. 2009 25. des. The Chronicles of Narnia: Prince Caspian Síðast sýnd á Stöð 2 í apríl 2010 11. des. The Holliday Síðast sýnd á Stöð 2 í des. 2009 4. des. There Will Be Blood Síðast sýnd á Stöð 2 í des. 2009 Úr myndunum Good Will Hunting, The Holliday og Along Came Polly sem sýndar voru á Stöð 2 og Stöð 2 bíó áður en þær sáust í Sjónvarpinu. 10 fréttir Helgin 28.-30. janúar 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.