Fréttatíminn - 28.01.2011, Síða 17
Góð lýsing er gulli betri í umferðinni. Öll ættum við að blikka ljóslausa og eineygða bíla sem við
mætum í akstri. Með því móti gefum við til kynna að gleymst hafi að kveikja ljósin eða skipta þurfi um
peru. Þannig hugsum við um hag allra vegfarenda. Auk ljósa skoðar Frumherji 166 önnur öryggis atriði
í almennri skoðun. Frumherji – örugg bifrei›asko›un.
EN
N
EM
M
/
SÍ
A
/ N
M
41
49
4
Eineygður?
Frumherji hf - sími 570 9000 - fijónustuver og tímapantanir 570 9090 - www.frumherji.is
world class.is
SKRÁÐU ÞIG NÚNA
á worldclass.is og í síma 55 30000
Tabata
Spinning
Yoga
Styrkur
Latin Fit
Hot Yoga
Freestyle Step
Kviður og bak
Þol og styrkur
OPNIR TÍMAR
Arnarungar aldrei
fleiri en á liðnu sumri
Fyrsta árið er örnum erfitt
og sama gildir um þá sem
ná ekki að helga sér óðal í
kringum kynþroskaaldur
Arnarvarp gekk vel á liðnu sumri
og hafa aldrei fleiri ungar komist
á legg en arnarstofninn stendur
í stað og telur um 65 pör. Fleiri
pör verptu en nokkru sinni fyrr
eða 48. Hreiður með ungum voru
einnig fleiri en áður, eða 27, og
aldrei hafa ungarnir verið fleiri,
eða 38. „Þessi góði varpárang-
ur er athyglisverður í ljósi þess
hversu varp gekk illa á Vestfjörð-
um norðan Látrabjargs en aðeins
eitt af sjö pörum á því svæði kom
upp ungum,“ segir Kristinn
Haukur Skarphéðinsson í grein
í Fuglum, ársriti Fuglaverndar.
Þar kemur hins vegar fram að
varp við norðanverðan Breiða-
fjörð var með besta móti og
komust þar ungar á legg úr níu
hreiðrum. „Enginn augljós skýr-
ing er á þessum landfræðilega
mun. Tíðarfar á arnarslóðum
vestanlands um varptímann var
örnum einkar hagstætt en það
er sterkasti ávitinn á gott arnar-
varp,“ segir Kristinn Haukur.
Fyrsta árið er örnum erfitt
en ungir ernir halda til á heima-
svæði foreldra sinna fram eftir
hausti og jafnvel fram á útmán-
uði. Þá eru þeir reknir burt og
þurfa að sjá sér farborða. Einnig
eiga ernir, að því er fram kem-
ur hjá Kristni Hauki, erfitt upp-
dráttar í kringum kynþroska-
aldurinn er þeir ná ekki að helga
sér óðal. Ernir verða kynþroska
fögurra til sex ára. Örninn parar
sig fyrir lífstíð en fuglinn getur
orðið meira en 30 ára gamall.
Drepist annar fuglinn tekur hinn
sér yfirleitt annan maka. Margt
getur þó gerst í sambúð arna.
Þannig greinir Kristinn Haukur
frá þriggja ára karlfugli sem sést
hefur í slagtogi með móður sinni
á æskuóðalinu. „Þessi skötuhjú
urpu ekki og verður tíminn að
leiða í ljós hvað verður úr þessu
ókristilega sambandi.“ -jh
Arnarungar á hreiðri við Breiðafjörð.
Ljósmynd/Kristinn Haukur Skarphéðinsson.