Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.01.2011, Page 43

Fréttatíminn - 28.01.2011, Page 43
H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA / A C TA V IS 0 1 1 1 4 2 Af litlum neista… Omeprazol Actavis - öflugt lyf við brjóstsviða og súru bakflæði 20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur ómeprazól sem hemur seytingu á magasýru. Omeprazol Actavis er notað við tilfallandi brjóstsviða og súru bakflæði. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum, samtímis notkun lya sem innihalda claritrómýcín hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, samtímis notkun lya sem innihalda atazanavír. Varúð: Gæta skal sérstakrar varúðar: Ef verulegt og óvænt þyngdartap verður, við endurtekin uppköst, ef erfiðleikar eru við að kyngja, við blóðuppköst eða blóð í hægðum, ef lifrar- eða nýrnastarfsemi er skert, ef þú færð niðurgang eða ef þú hefur fengið fylgikvilla (blæðingar eða sár í meltingarfærum) vegna bólgueyðandi verkjalya. Láta skal lækni/lyafræðing vita ef bólgueyðandi verkjalyf eru notuð. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið nema að ráði læknis. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga/brjóstagjöf: Leitið ráða hjá lækni áður en lyfið er notað. Akstur og notkun véla: Aukaverkanir, svo sem þreyta, svimi og sjón- og heyrnartruflanir, geta komið fram og geta haft áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Algengar aukaverkanir eru niðurgangur, hægðatregða, vindgangur, ógleði, uppköst, svefntruflanir, sundl, höfuðverkur eða þreyta. Þessar aukaverkanir verða yfirleitt vægari við áframhaldandi meðferð. Skammtastærðir: Fullorðnir: 1 sýruþolið hylki eftir þörfum. Ekki má nota meira en 20 mg á sólarhring. Ef einkennin hverfa ekki eftir að Omeprazol Actavis hefur verið notað í 14 daga skal hafa samband við lækninn vegna þess að einkennin gætu verið af öðrum orsökum. Gleypa á sýruþolnu hylkin með glasi af vökva. Sýruþolnu hylkin ætti að taka fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Hvorki má tyggja né mylja sýruþolnu hylkin. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lynu. Geymið lyð þar sem börn hvorki ná til né sjá. Júlí 2010. Guða­ veigar í gamla daga Bjórinn var líka súr M jöður er heiti á ævagömlum drykk og eflaust hafa verið til margar útgáfur af honum í gegnum aldirnar og í fyrnd- inni þótti mjöðurinn vera mun fínni drykkur en vín úr þrúgum. Sam- kvæmt nú- tíma skil- grein- ingu er mjöður ekki það sama og bjór. Mjöður er bruggaður úr hunangi, vatni og geri og er eiginlega hunangsvín sem á meira skylt með léttvíni en bjór. Það eru helst Pólverjar sem hafa haldið áfram að brugga hefðbundinn mjöð. Það verður hins vegar að teljast ólíklegt að þessi hunangsútgafa af miði hafi verið það sem Íslendingar drukku hér á árum áður. Mun líklegra er að þeir hafi einungis notað orðið mjöð yfir göróttari drykk sem líklega var bruggaður úr byggi sem menn skildu eftir í opnu íláti og biðu eftir guðunum til að gerja hann enda höfðu menn á þessum tíma ekki ger og urðu að treysta á náttúrulega gerjun. Það þarf því ekki að koma á óvart að mjöðurinn var kallaður drykkur guðanna. Þessi drykkur hefur eflaust verið miklu meira í ætt við bjór en hinn eiginlegi mjöður úr hunangi og væntanlega frekar súr á bragðið sem Íslendingum fyrr á tímum hefur eflaust ekki þótt verra. Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.