Fréttatíminn - 28.01.2011, Page 54
54 tíska Helgin 28.-30. janúar 2011
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Úreltur
hugsunarháttur
Nýlega uppgötvaði ég að lífið er svo miklu
meira en eignir. Það tók mig þó langan
tíma að átta mig á því. Í hverjum mánuði
hurfu peningarnir mínir í ekki neitt. Ég
fjárfesti til dæmis í nokkrum skópörum,
fatnaði eða öðru slíku og peningarnir sem
ég hafði unnið mér inn brunnu upp. Með
tímanum varð ég skynsamari; gerði fjár-
hagsáætlanir og áttaði mig á því að allt fór
að ganga upp.
Í okkur öllum býr vottur af einhverri
söfnunaráráttu. Þetta er ömurleg árátta
sem við fylgjum eftir ómeðvitað; teljum
okkur þurfa fleiri liti eða aðrar gerðir en
við raunverulega þurfum. Þetta er úreltur
hugsunarháttur sem við tileinkuðum
okkur fyrir tíma kreppunnar.
Fyrir ekki svo löngu lifði ég fyrir skó-
kaup. Það var persónulega mín versta
árátta. Ég taldi mig þurfa allar gerðir. Há-
hælaða, flatbotna, opna eða lokaða. Notk-
unarhlutfallið er því miður gríðarlega
lágt. Flest standa þessi skópör óhreyfð
og bíða eftir að verða notuð. Það sorglega
er þó hve miklir peningar hafa farið í
skókaupin. Hversu mikið hefði ég getað
upplifað og gert fyrir nákvæmlega sömu
upphæð?
Það er kannski ekki ein niðurstaða í
þessu öllu. Að sjálfsögðu er alltaf gaman
að eiga skó til skiptanna, úlpur í tugatali
og endalaust úrval af buxum. En væri lífið
ekki auðveldara ef við ættum aðeins eitt
af hverju? Við myndum bæði spara tíma
og peninga og valkvíðinn væri enginn.
Miðvikudagur:
Skór: All Saints
Buxur: Levi’s
Skyrta: Anderson og Lauth
Jakki: All Saints – Prentið
eigin hönnun
Fimmtudagur:
Skór: All Saints
Buxur: Anderson og Lauth
Skyrta: Anderson og Lauth
Jakki: Zara
Trefill: Andersen & Lauth
Hendi mér í það sem ég á
Guðmundur Hilmar Tómasson er 20 ára og hefur mikinn áhuga á öllu sem
tengist hönnun. Íþróttir eru stór partur af lífi hans því hann stundar frjálsar
íþróttir af miklu kappi og stefnir hátt. Hann er mikill langhlaupari, bæði inni á
vellinum og í lífinu sjálfu. Með íþróttunum tekur hann íhlaupastörf hér og þar
og reynir að ná sem mestri reynslu út úr þeim.
„Ég klæði mig mikið eftir skapinu; tíni flíkurnar út úr skápnum og hendi mér í
það sem ég á. Pæli ekki mikið í samsetningunni, hún verður bara til. Fötin fæ
ég úr öllum áttum en All Saints er í miklu uppáhaldi. Uppáhaldsbúðin mín er þó
Paris Texas sem er í Danmörku en ég fæ sjaldan tækifæri til þess að versla þar.
Þegar kemur að fatavali stendur Will Smith alltaf fyrir sínu. Ég fæ mikinn inn-
blástur frá honum, bæði þegar kemur að tísku og lífsstíl.
Mánudagur:
Skór: Converse
Buxur: Levi’s
Bolur: Eigin hönnun, væntanleg í búðir.
Jakki: Forever21
Peysa: Adidas
Þriðjudagur:
Skór: All Saints
Buxur: All Saints
Bolur: Cheap Monday
Jakki: H&M
Keðjur: Eigin hönnun
Föstudagur:
Buxur: All Saints
Skyrta: Anderson og Lauth
Jakki: Spúútnik
Hálsmen: Eigin hönnun
Skór: All Saints
5
dagar
dress
Heimatilbúinn
kjötbúningur
Hinn eftirminnilegi kjötbúningur
sem söngkonan Lady GaGa klæddist á
MTV-hátíðinni í september, hefur aldeil-
is fengið sína athygli. Hann hefur kom-
ist í sögubækurnar og mikið er deilt um
hann. Nú hefur Anna Chong, nemandi
í einum virtasta fatahönnunarskóla í
Englandi, hannað sams konar búning
á sjálfa sig. Í kjölfarið hefur Anna búið
til kennslumyndband þar sem almenn-
ingur getur lært að gera kjötbúninginn
fræga úr parmaskinku. Myndbandið er
hægt að nálgast á Youtube.com
ný lína frá H&M
Við Íslendingar erum
líklega meðal dyggustu
aðdáenda H&M-verslan-
anna og ættum að vera al-
sæl með velgengni þeirra.
Fataúrval þeirra jókst ört
á síðasta ári og gerði það
útslagið þegar haustlínan,
hönnuð af Lanvin, kom í
búðirnar. Flíkurnar voru
eftirsóttar og mynduðust
langir biðlistar eftir þeim.
Í byrjun febrúar er von á
enn einni nýrri línu frá
H&H. Heitir sú Waste og
eru fötin aðallega gerð úr
afgangsefnum frá Lanvin-
línunni. Waste-vörurnar
eru í takmörkuðu upplagi
og aðeins ein H&M-verslun
í hverju landi mun selja
þær. Það má búast við að
slegist verði um hverja flík
með kjafti og klóm. -kp
Búin
til úr
afgöngum