Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.01.2011, Síða 60

Fréttatíminn - 28.01.2011, Síða 60
60 dægurmál Helgin 28.-30. janúar 2011 Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16 rúm rúmgaflar kojur púðar sófaborð borðstofuhúsgögn skrifstofuhúsgögn Patti Húsgögn 10-50 %afsláttur sófar tungusófar sófasett hornsófar relax stólar stakir sófar Landsins mesta úrval af sófasettum Lokadagar útsölunnar LEÐUR SÓFASETT 3+1+1 - 199.950 BORÐ FRÁ 34.950 HEILSUKODDAR BORÐ FRÁ 19.950 Gildir til 31.janúar STÓLAR FRÁ 7.950  Iglo Sumarlínan kynnt í bIblíu barnatíSkunnar Börnin sáu um herferðina Barnafatamerkið Iglo var stofnað árið 2008 og hefur þegar náð miklum vinsældum meðal íslenskra foreldra. Auk þess er fyrirtækið að taka sín fyrstu skref erlendis. Nýjasta lína þess, sumarlínan 2011, er væntanleg í mars og hefur hún þegar vakið verðskuldaða athygli, jafnt hér á landi sem erlendis. Ú rvalið í sumar-línunni er meira en verið hefur, fjölbreytnin er í fyrirrúmi og ungbarnalínan mun stækka mikið. Ígló hefur náð góðri fót- festu og það var okkur mikill heiður þegar eitt virtasta barnatíma- rit í heimi, hið ítalska Collezioni Bambini, fjallaði um okkur í nýj- asta tölublaði sínu. Það fjallar um ný fatamerki og sumarlínan okkar var eitt af þeim,“ segir Helga Ólafsdóttir, eigandi og hönnuður Iglo. Á tískuviku í Kaup- mannahöfn Iglo selur fatnað sinn í níu verslunum hér á landi og þremur öðrum löndum, Dan- mörku, Svíþjóð og Frakklandi. Þýska- land bætist svo við í febrúar. Í byrjun næstu viku mun Iglo kynna nýjustu línu sína, vetur 2011/2012, á sýningunni CPH kids sem haldin er í Kaup- mannahöfn. „Þetta er barnasýning sem er hluti af tískuvikunni í Kaupmannahöfn,“ segir Helga. „Þangað kemur innkaupafólk, helst úr Norður-Evr- ópu, sem er að kaupa inn fyrir búðirnar sínar. Blaðamenn koma alls staðar að og fjalla um sýninguna í heild sinni og taka viðtöl við hönnuðina. Það er mikill heiður að fá að taka þátt í svona stórri sýningu þar sem við erum rétt að stíga okkar fyrstu skref erlendis.“ Börnin sáu um herferðina „Herferð okkar fyrir veturinn 2011/2012 var umfangsmikil og gríðarlega skemmti- leg. Við fengum til liðs við okkur tólf börn, fórum með þau í stúdíó og þau fengu alls konar myndavélar; ein- nota, gamlar vídeóvél- ar eða stafrænar. Þau fengu algjörlega að leika lausum hala og tóku myndir hvert af öðru. Sjálf handskrif- uðu þau textann með tússlitum og gerðu eins mikið í kynning- unni og þau höfðu tök á. Þau skemmtu sér konunglega og voru bæði áhugasöm og dugleg. Þetta heppnað- ist rosalega vel,“ segir Helga. -kp Helga Ólafsdóttir Eigandi og hönnuður Iglo á góðri stund með fyrirsætum við gerð auglýsinga- herferðarinnar. É g starfaði sem lífsráðgjafi í Bandaríkjunum meira og minna í tuttugu ár og hannaði þar kerfi sem Kaninn fór að kalla Rope Yoga,“ segir Guðni Gunnarsson sem hefur safnað saman hugmyndum sínum um hæfingu sálar og líkama í bókina Máttur viljans en hann fagnaði útkomu bókarinnar á fimmtu- daginn. Guðni er einna þekktastur fyrir Rope Yoga en eftir að hann flutti aftur til Íslands árið 2006 og opnaði Rope Yoga-setrið hélt hann áfram að þróa hugmyndir sínar yfir í það sem hann kallar í dag GlóMotion. „Þetta hefur alltaf byggst á heimspeki og mér fannst tímabært að gera þetta efni, sem byggist á reynslu minni, aðgengi- legt fólki án þess að tengja það sérstaklega Rope Yoga eða GlóMotion. Þetta er í raun og veru lífsstíll eða lífs- speki og ef fólk tileinkar sér þetta er gríðarlegt frelsi fólgið í því,“ segir Guðni. „Í bókinni kynni ég til sögunnar sjö skref sem eru hugsuð sem ferli í því sem við getum kallað hæfingu því ég vil ekki tala um endurhæfingu. Maður byrjar á því að vakna til vitundar um það ástand sem maður hefur skapað sjálfur. Ef fólk vill fá frelsi verður það að taka ábyrgð á tilvist sinni. Við erum bara orka sem við getum ráðstafað viljandi eða óviljandi en maður kemst ekkert undan því að ráðstafa henni og heldur ekki und- an ráðstöfuninni. Það sem er kannski nýtt við þessa bók er að hún sýnir lesandanum fram á af hverju hann hefur ekki leyft sér hingað til að laða að sér velsæld,“ segir Guðni sem boðar leið til betra lífs í Mætti viljans.  guðnI gunnarSSon bók um mátt vIljanS Þetta er í raun og veru lífsstíll eða lífs- speki. Sjö þrep til velsældar Guðni segir að bókin sé brött en kærleiksrík og markviss. „Hún lætur þig ekki í friði. Hún segir þér ekkert sem þú veist ekki en margt sem þú ert búinn að gleyma og sumt sem þú vilt ekki muna.“ Tímalaus fegurð frá Chanel „Nútíminn er ekki til“ var haft eftir tískuhönnuðinum Karl Lagerfeld á tískusýningu Chanel síðastliðinn þriðjudag. Nýjasta línan frá Chanel er öðruvísi en allt annað sem er í boði og einkennist einmitt af tímalausri fegurð sem náði tökum á áhorfendum. Inn- blástur frá ýmsum tímabilum var sýnilegur í flíkunum, pastellitir áberandi og mikill glamúr fylgdi þeim. Aðalfyrirsæta sýningarinnar var fyrrverandi módelið Kristin McNenamy, 47 ára. Á níunda áratugnum sat hún fyrir hjá Chanel og lét hún hafa eftir sér að það væri mikill heiður að fá að taka þátt í sýningunni í ár. Sérstaklega fannst henni mikilvægt að gráa hárið hennar fékk að njóta sín. -kp

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.