Fréttatíminn - 08.07.2011, Síða 4
K attholt er eina athvarfið á höfuðborgarsvæðinu sem hýsir ketti. Reykjavíkur-
borg greiðir Kattholti fast mánaðar-
gjald. Kópavogur, Hafnarfjörður
og Garðabær gera það hins vegar
ekki, telja sér það ekki skylt, en
heilbrigðisnefnd þessara þriggja
sveitarfélaga er sameiginleg. Katt-
holt stríðir við rekstrarvanda svo að
það munar um öll framlög.
Árni Stefán Árnason lögfræðing-
ur segir að forráðamenn Kattholts
hafi talið sig eiga rétt til greiðslu
frá Kópavogi, Hafnarfirði og Garða-
bæ fyrir þá þjónustu sem veitt sé,
samkvæmt reglugerðarákvæði.
Það sé ekki rétt en hefð hafi hins
vegar skapast þar sem Kattholt hafi
í 25 ár tekið við köttum frá þessum
sveitarfélögum sem þau hafi nýtt
sér en ekki viljað greiða fyrir.
„Það stendur í samþykktum
Kópavogs og Hafnarfjarðar að það
eigi að færa óskilaketti í ákveðna
geymslu. Þessa geymslu hafa sveit-
arfélögin ekki heldur hafa þau nýtt
sér Kattholt án þess að greiða fyrir
þjónustuna sem er í hæsta máta
óeðlilegt. Ég vil halda því fram að
það sé verið að misnota Kattholt
er þar er aldrei neitað að taka við
köttum. Almenningur í þessum
sveitarfélögum hefur farið með
ketti í Kattholt í stórum stíl enda
er það í samræmi við skyldu fólks,
samkvæmt dýraverndarlögum, að
sjá til þess að vel sé farið með dýr.
Þegar krefja á sveitarfélögin um
eitthvert gjald fyrir þessa þjónustu
þá neita þau,“ segir Árni Stefán.
Lögfræðingurinn segir að Guð-
mundur Einarsson, yfirmaður
sameiginlegrar heilbrigðisnefndar
þessara sveitarfélaga, telji þeim
það ekki skylt og vinni þar eflaust
samkvæmt fyrirmælum frá yfirboð-
urum sínum. Reykjavíkurborg leigi
hins vegar herbergi í Kattholti og
greiði fyrir það 55 þúsund krónur á
mánuði. „Slíkt framlag hefur ekki
komið frá hinum sveitarfélögunum,
sem er miður,“ segir Árni Stefán.
„Frá því að Kattholt var opnað
hefur það tekið á móti dýrum frá
þessum sveitarfélögum. Það er
því komin venja á að fara með þau
þangað. Af þeirri ástæðu ættu
sveitarfélögin að sjá sóma sinn í því
að styðja við þessa starfsemi. Það
er verið að nota ákveðna þjónustu
og óvenjulegt að menn geti nýtt sér
hana án þess að greiða fyrir.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
ÓsKilaKettir KÓpavogur, Hafnarfjörður og garðabær
Erum ekki með þjónustusamning við Kattholt
Ekki sjálfgefið að önnur sveitarfélög gangi inn í samning eins og Reykjavík gerði við Kattholt,
segir heilbrigðisfulltrúi.
„Við erum ekki með þjónustu-
samning við Kattholt, það er
ekki í okkar verkahring,“ segir
Páll Stefánsson, heilbrigðis-
fulltrúi hjá Heilbrigðisnefnd
Hafnarfjarðar- og Kópavogs-
svæðis, staðgengill Guðmundar
Einarssonar sem er í sumarfríi.
Páll segir heilbrigðiseftirlitið
ekki hafa nýtt sér þjónustu
Kattholts, það hafi ekkert með
óskilaketti að gera. Fólk hringi
þó stundum vegna þeirra og þá
séu því gefin ráð.
„Ég kannast við það að kettir
úr þessum sveitarfélögum
hafi farið í Kattholt en ekki á
vegum heilbrigðiseftirlitsins.
Það er þó ekki ólíklegt að ein-
hverjir einstaklingar hafi farið
þangað upp eftir,“ segir Páll.
„Fjöldi fólks er með alls konar
væntingar um hvað heilbrigðis-
eftirlitið geri en mér er ekki
kunnugt um að okkur hafi verið
falið að veiða ketti.“ Páll segist
þó vel geta skilið að ef einhver
annast einhverja þjónustu geti
sá hinn sami hugsað sér að fá
greiðslu fyrir en það sé ekki
sameiginlegrar heilbrigðis-
nefndar þessara sveitarfélaga
að gera það.
„Þetta er bara einhver
þjónusta sem tekin var upp í
Reykjavík þar sem einkaaðili
samdi við borgina um ákveðið
verkefni. Mér finnst það ekkert
sjálfgefið að önnur sveitarfélög
gangi inn í svona samning, að
það sé bara einhver aðili sem
taki þetta að sér fyrir hönd
sveitarfélaganna. Bæjarfélögin
eiga ekki kettina.“
Hafa þessi þrjú sveitarfélög
geymslu fyrir ketti?
„Það er mér ekki kunnugt
um.“ - jh
KattHolt eina KattaatHvarfið á Höfuðborgarsvæðinu
Árni Stefán Árna-
son lögfræðingur.
Ljósmynd/Hari
Segir sveitarfélög mis-
nota þjónustu Kattholts
Reykjavíkurborg greiðir fast mánaðargjald fyrir geymslu óskilakatta. Kópavogur, Hafnarfjörður
og Garðabær telja sér ekki skylt að greiða fyrir þjónustu Kattholts.
Það er verið
að nota
ákveðna
þjónustu og
óvenjulegt
að ekki sé
greitt fyrir
hana.
Framleiðsluvörur 666 milljarðar
Verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2010 var 666 milljarðar króna
sem er aukning um tæplega 92 milljarða króna eða 16% frá árinu 2009.
Á sama tíma hækkaði vísitala framleiðsluverðs um 11,7% og hefur því
verðmæti seldra framleiðsluafurða aukist um 4,3% að raungildi, að
því er segir í Hagtíðindum sem Hagstofa Íslands gefur út. Framleiðsla
fiskafurða og framleiðsla á málmum vega sem fyrr þyngst; þannig nam
framleiðsla málma 37,1% af heildarverðmæti árið 2010 og framleiðsla
fiskafurða 32,5%. Verðmæti seldra framleiðsluvara án fiskafurða og
framleiðslu málma nam tæpum 203 milljörðum króna á síðasta ári og
jókst um rúma 19 milljarða eða um 10,5% frá fyrra ári. - jh
Gistinóttum fjölgaði í maí
Gistinætur á hótelum voru 119.500 í
maí síðastliðnum og fjölgaði um 12%
frá sama tíma í fyrra þegar þær voru
106.400, að því er Hagstofa Íslands
greinir frá. Gistinætur erlendra gesta
voru um 79% af heildarfjölda gistinátta
í mánuðinum en þeim fjölgaði um 13%
milli ára. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði
um 12% á sama tíma. Á höfuðborgar-
svæðinu voru 85.510 gistinætur í maí,
sem er 18% aukning frá fyrra ári.
Gistinætur á Suðurnesjum voru 5.450,
sem er 34% aukning frá maí í fyrra.
Á samanlögðu svæði Vesturlands og
Vestfjarða fjölgaði gistinóttum úr 3.550
í 4.780 eða um 35% samanborið við
maí 2010. Gistinætur á Norðurlandi
voru svipaðar milli ára eða um 8.100. Á
Austurlandi, sem og Suðurlandi, fækk-
aði gistinóttum um 13% frá því í maí
2010. Fyrstu fimm mánuði ársins voru
gistinætur 463.000 en 422.200 á sama
tímabili í fyrra. Gistinóttum erlendra
gesta fjölgaði um 10% fyrstu fimm
mánuði ársins en gistinóttum Íslendinga
um 8%. -jh
Hagstæður vöru-
skiptajöfnuður
Vörur voru fluttar út í maí fyrir 56,7
milljarða króna og inn fyrir 49,9 milljarða.
Vöruskiptin voru því hagstæð um 6,8
milljarða króna. Í maí 2010 voru vöru-
skiptin hagstæð um 16,5 milljarða króna
á sama gengi, að því er Hagstofa Íslands
greinir frá. Fyrstu fimm mánuðina 2011
voru fluttar út vörur fyrir 240,8 milljarða
króna en inn fyrir 199,7 milljarða. Afgangur
var því af vöruskiptum við útlönd sem
nam 41,0 milljarði en á sama tíma árið
áður voru þau hagstæð um 51,6 milljarða
á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn
var því 10,6 milljörðum króna lakari en á
sama tíma árið áður. Fyrstu fimm mánuði
ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings
25,5 milljörðum eða 11,9% meira á föstu
gengi en á sama tíma árið áður. Sjávaraf-
urðir voru 35,8% alls útflutnings og var
verðmæti þeirra 5,2% meira en á sama
tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru
57,4% alls útflutnings og var verðmæti
þeirra 11,5% meira en á sama tíma árið
áður. -jh
CINTAMANI
WWW.CINTAMANI.IS
Sól í heiði
Vertu samt í einhverju
hlýju svo það slái
ekki að þér.
LéttSkýJað um mikinn HLuti LandSinS,
en þoka með norður- og auStur-
Ströndinni. SumarHLýindi Sunnan-
LandS og veStan.
HöFuðborgarSvæðið: SólRÍKt oG
HæGuR ViNduR. HAFGolA lÍKlEG SÍðdEGiS.
enn bJart og FaLLegt veður um mikinn
HLuta LandSinS þó Áberandi verði SvaL-
ara norðanLandS og auStan. Hiti aLLt að
16-18 Stig Sunnan og veStantiL.
HöFuðborgarSvæðið: HæGViðRi EðA
HAFGolA oG ÁFRAM lÉttSKýjAð.
víðaSt Hægviðri. HLýtt og SóLríkt tiL
LandSinS og einS inni Á veStFJörðum,
en þokuSLæðingur víða við SJóinn.
SíðdegiSSkúrir Á SuðurLandi.
HöFuðborgarSvæðið: lÉttSKýjAð, EN
EF til Vill SÍðdEGiSSKÚRiR. Hiti 12-15 StiG.
Sannkölluð sumarveðrátta
jákvætt er að sjá hvað mildara loft er að
festa sig í sessi hér. Vindáttin verður reynd-
ar aðeins NA-læg og þar með frekar svalt
norðaustan- og austanlands, en spáð er
hægviðri um land allt á sunnudag. Sólríkt
verður um land allt, sérstaklega þó vestanlands,
á Vestfjörðum og eins á hálendinu. Á Suðurlandi
aukast líkur á síðdegisskúrum, sér-
staklega á sunnudag. Þoka verður
við norður- og austurströndina og
eins sums staðar með suður-
ströndinni. Hiti í sólinni verður
allt að 15 til 19 stig.
12
11
15 15
10
14
15 17
11
12
13
12 18
11
12
Föstudagur laugardagur sunnudagurveður
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 8.-10. júlí 2011