Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.07.2011, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 08.07.2011, Blaðsíða 10
Þarft þú heyrnartæki? Pantaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 Að láta mæla heyrnina er einföld leið til að ganga úr skugga um hvort kominn sé tími til að nota heyrnartæki. Erum með mikið úrval vandaðra heyrnartækja sem eru búin fullkomnustu tækni sem völ er á. Einföld og þægileg í notkun og nánast ósýnileg bak við eyra. Í tilefni af 10 ára starfsafmæli Heyrnartækni þá ætlum við að styrkja KRAFT í sumar með ákveðinni upphæð af hverju seldu heyrnartæki. KRAFTUR er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hugo Þórisson barnasálfræð- ingur greindist með krabbamein í lok nóvem- ber í fyrra. Það fyrsta sem hon- um kom í hug, þegar læknirinn færði honum þær þungbæru fréttir, var að hann yrði að koma ævistarfi sínu á prent. Á meðan hann hefði heilsu til. Sjá viðtal bls. 24 A ðbúnaður á hjúkrunarheim-ilinu Holtsbúð er skelfilegur,“ segir Jón Fr. Sigvaldason en í nýlegri skýrslu Landlæknis kom fram, eins greint hefur verið frá í Frétta- tímanum, að mörgu er ábótavant á heimilinu. Eiginkona Jóns, Mary Alberty Sigurjónsdóttir, dvaldi í Holts- búð í Garðabæ og lést þar í ágúst árið 2009. Komið var að líki hennar köldu og stirðnuðu að morgni dags, þrátt fyrir að sólarhringsgæsla eigi að vera á heimilinu. Jón ritaði Geir Gunnlaugs- syni landlækni bréf í maí á liðnu ári þar sem farið var fram á úttekt á Holtsbúð. Úttekt Landlæknisembættisins á  Holtsbúð lágmArksmönnun, getur bitnAð á þjónustu og öryggi Komið að líki konu köldu og stirðnuðu að morgni dags Vistin í „kjallara- kompunni“ eins konar niðurlægj- andi félagsleg og andleg pynting. Jón Fr. Sigvaldason Vist eiginkonu minnar í kjallara Holtsbúðar er fyrir mér eins konar niðurlægjandi félagsleg og andleg pynting og stjórnunarlegt slys. Ljósmynd/Hari  lAndlæknisembættið álitsgerð Lækninum þykir miður hvernig til tókst Í álitsgerð Landlæknis- embættisins frá því í október 2009 vegna kvörtunar Jóns Fr. Sigvaldasonar varðandi samskipti við lækni í tengslum við andlát eiginkonunnar Maryar A. Sigurjónsdóttur, sem undirrituð er af Kristjáni Oddssyni aðstoðar- landlækni, kemur fram að lækninum þyki mjög miður að Jón sé honum reiður eftir að hann hafði tilkynnt honum andlát eiginkonu hans. Hann hafi reynt að fara varfærnislega í samtali við Jón en það hafi ekki gengið betur en raun ber vitni. Þá þykir lækninum miður hvernig til hafi tekist í samtalinu varð- andi dánarorsök og lýkur hann bréfi sínu með því að hann sé tilbúinn að hitta Jón hjá Landlæknis- embættinu og ef til vill fleiri fjölskyldumeðlimi ef það mætti verða til að leysa málið. Í bréfi Jóns var enn fremur kvartað undan seinkun á greiningu sama læknis á broti á lærleggshálsi eiginkonu hans í Holtsbúð árið 2007. Í álitsgerð Land- læknisembættisins eru gerðar athugasemdir við að ekki skuli vera til frekari skráning varðandi byltu konunnar. „Þá ber að harma að greining á innkýldu broti skyldi hafa dregist um fjórar vikur,“ segir enn fremur. Í niðurlagi álits- gerðarinnar kemur fram að embættið telur ekki ástæðu til frekari að- gerða „og er málinu lokið nema til komi andmæli frá málsaðilum.“ Sólarhringsgæsla á að vera á heimilinu en eiginmaður konunnar, Jón Fr. Sigvaldason, spyr um ábyrgð og sættir sig ekki við eftirlitsleysi. Hann segir eiginkonu sína hafa verið vistaða í „kompu“ í kjallara. Jón spyr enn fremur hvort vinnuregla sé að aðstandendur taki þátt í sjúkdómsgreiningu. Maryar hafi ekki verið sagt frá grunsemdum hjúkrunarfólks um að hún ætti stutt eftir. „Við vorum vissulega tilbúin að vera á sólar- hringsvakt hjá henni,“ segir Jón meðal annars í yfirlitinu. Vildi fá dánarorsök samþykkta símleiðis Jón er heldur ekki sáttur við fram- komu læknis sem tilkynnti dóttur hans, og síðan honum sjálfum, andlát Maryar þar sem farið var fram á að þau samþykktu símleiðis uppástungu hans um dánarorsök- ina heilablóðfall. Hann spyr því hvort það sé almenn vinnuregla í Holtsbúð að aðstandendur taki þátt í sjúkdómsgreiningu. Í greinargerð til Landlæknisembættisins segir viðkomandi læknir að klínískt hafi sér þótt lang líklegast að konan hafi fengið heilablóðfall og dáið í svefni enda hafi hún áður fengið heila- blóðfall. Í símtali læknisins til Jóns, eftir krufningu, tilkynnti hann hins vegar að hjarta hennar hefði gefið sig. Jón óskaði eftir svari við tveimur spurningum: dánarstund og dánarorsök. Í bréfi til hans í apríl 2010 segir að ekki sé getið um inn- lit til Maryar nóttina sem hún dó en vinnuregla sé að litið sé inn til allra sjúklinga að minnsta kosti tvisvar á nóttu og oftar ef tilefni er til. „Í nótu morgunvaktarinnar kemur fram að um klukkan 9 hafi verið litið inn til Mary og er hún þá látin. Í nótunni er nefnt að liðir séu stirðir. Stirðnun þýðir venjulega að meira en þrjár klukkustundir eru frá andláti. Nákvæmasta svarið sem hægt er að gefa er því að dánarstund hafi verið fyrir klukkan 6 að morgni 3. ágúst. Að því gefnu að litið hafi verið inn til hennar milli klukkan 4 og 5 þennan morgun, sem þó er hvergi skráð, má álykta að dánarstundin hafi verið milli kl. 4 og 6.“ Í sama svari segir að samkvæmt krufningarskýrslu hafi dánarorsök- in verið hjartabilun. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is starfsemi Holtsbúðar veturinn 2010- 2011 sýndi að hegðunarvandamál, þung- lyndiseinkenni, þvag- og hægðaleki og þvagfærasýkingar voru algengari en al- mennt á íslenskum hjúkrunarheimilum. Fram kom meðal annars að mönnun fagfólks væri í lágmarki sem gæti bitnað á þjónustunni og öryggi íbúa. Andleg pynting Jón orðar það svo að Mary hafi verið vistuð í „kompu“ í kjallara Holtsbúðar þar sem henni hafi liðið mjög illa „inni- lokaðri í kjallaraholu“. „Vistin í kjallar- anum er fyrir mér eins konar niðurlægj- andi félagsleg og andleg „pynting“ og stjórnunarlegt slys,“ segir meðal annars í yfirliti sem Jón skráði um samskipti sín við Holtsbúð. Hann spyr um ábyrgð og sættir sig ekki við eftirlitsleysið, sem og aðferð við andlátstilkynningu. Jón leitaði til embættis landlæknis síð- ar á árinu 2009. Þar sagðist hann ekki hafa fengið upplýsingar frá Holtsbúð um eftirlit með stofu konu sinnar nóttina sem hún dó, hvort um eftirlit hafi verið að ræða eða hve lengi hún hafi verið látin liggja dáin og umhirðulaus. Sá grunur hafi læðst að sér að eftirlit hafi verið lítið eða ekkert þessa nótt enda hafi læknir lýst því svo að stofan væri „afskekkt“. „Við höfum staðfestar upp- lýsingar um að starfsmaður hafi ráðið sig á næturvaktir í Holtsbúð, þar sem hann gat sofið á næturvaktinni,“ segir í punktum Jóns eftir lestur hans á úttekt landlæknis á hjúkrunarheimilinu. „Ég vil frekar næturvaktir en skiptar vaktir þar sem ég get sofið á launum á nótt- unni,“ hefur Jón eftir umræddum aðila. Þá gagnrýnir Jón að aðstandendum 10 fréttir Helgin 8.-10. júlí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.