Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.07.2011, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 08.07.2011, Blaðsíða 16
S igrún Daníelsdóttir er sálfræðingur og for- sprakki Megrunarlausa dagsins sem haldinn er árlega hér á landi. Hún hefur helgað störf sín átröskunum og baráttunni fyrir líkamsvirðingu og bloggar reglulega um þessi mál á Eyjunni. Hún segir faglegar hug- myndir um hvernig eigi að sporna við átröskunum ólíkar þeirri hug- mynd að fræðsla leysi allan vanda. Einnig sé útbreiddur misskilningur að átraskanir séu ólæknandi. „Það er helber vitleysa. Engar forsendur eru fyrir því að halda þeirri hugmynd á lofti að átröskun sé ólæknandi. Það væri alveg eins hægt að segja að allar geðraskanir væru ólæknandi og það er hug- myndafræði sem flestir eru sem betur fer búnir að kasta fyrir róða,“ segir Sigrún og bætir því við að því fyrr sem gripið sé inn í ferlið, því meiri séu batalíkurnar. Sigrún segir að rannsóknir og reynsla fagfólks hafi leitt til breyttrar nálgunar að forvörnum. Rannsóknir hafi leitt í ljós að for- varnir sem byggjast á fræðslu séu árangursminni en aðrar forvarnir. Það stafar af því að til þess að breyta viðhorfum og hegðun þarf að gera meira en að tala yfir hausamót- unum á fólki. Vandinn að baki flestri áhættuhegðun er ekki vanþekking, heldur ýmsir sálfélagslegir þættir og gildi sem þarf að vinna með í heild. Því er ástæða til að efast um forvarnargildi þess að fyrr- verandi átröskunarsjúklingar segi frá reynslu sinni en víða hefur verið boðið upp á slíka fræðslu í skólum á Íslandi. Fræðsla ekki svar við öllu „Það er núorðið viðurkennt meðal fagfólks og fræðimanna um heim allan að forvarnir gegn átröskun- um eiga ekki að felast í fræðslu eða reynslusögum sjúklinga. Þessi að- ferð hefur verið margreynd en ekkert bendir til þess að hún skili árangri. Það sem við vitum um þessa nálgun segir okkur að hún skilar ekki ár- angri og getur valdið skaða. Ég segi ekki að hún valdi alltaf skaða en þess eru dæmi að krakkar hafi upplifað þessa fræðslu allt öðruvísi en tilgang- urinn með henni var,“ segir Sigrún og bendir á að ástæðulaust sé að eyða tíma og peningum í úrræði sem ekki hafi gefið von um árangur. Sigrún segir það algenga ranghug- mynd að til þess að koma í veg fyrir vandamál þurfi bara að upplýsa fólk betur. Það sé ekki alltaf rétta leiðin. „Við gerum alltaf ráð fyrir að vandamál stafi af vanþekkingu. Eins og að allur vandi sem fólk lendir í líf- inu sé vegna þess að það veit ekki betur. Þá þurfi bara aukna fræðslu svo að fólk hætti að gera vitleysur. Núna vitum við að vandamál eins og átraskanir eiga sér margþættari orsakir. Við vitum að það er hættu- legt að reykja og það er hættulegt að svelta sig en af einhverjum ástæðum gera sumir þetta samt.“ Fiktið háskalegt Er þá eitthvað annað sem vegur þyngra en þekkingin um hvað sé skaðlegt? „Já. Lengi vel snerust forvarnir gegn reykingum fyrst og fremst um skaðlegar afleiðingar þeirra, um hvað þetta væri hættulegt og hvað maður fengi ljótar tennur. Samt héldu krakkarnir áfram að byrja að reykja. Síðar áttaði fólk sig á því að það sem skiptir höfuðmáli um hvort unglingar byrja að reykja eru fyrir- myndir og stemningin í félagahópn- um. Hvort það þykir töff að reykja. Það eru miklu sterkari áhrif. Ungt fólk vill falla í kramið hjá félögum sínum. Hugmyndir um afleiðingar einhvern tíma löngu seinna eru fjarlægar. Það eru allir sannfærðir um að ekkert komi fyrir þá og þess vegna virkar hræðsluáróður ekki sem skyldi.“ Sigrún segir það hins vegar skila árangri að vinna með viðhorf ung- linga til reykinga, hafa fyrirmyndir sem taka afstöðu gegn reykingum, minnka aðgengi að tóbaki og gera það að fjarlægum og lítt eftirsóknar- verðum kosti að reykja. „Svipað starf þarf að vinna gegn átröskunum. Á meðan það er töff að vera grannur og ávísun á félagslega útskúfun að vera talinn feitur, er ekki skrítið að margir leitist við að vera grannir. En það er áhættuhegð- un að reyna að grenna sig. Þetta þarf að taka alvarlega því sumir missa tökin á svona fikti. Við viljum koma í veg fyrir að krakkar fikti við megrun. Við viljum í staðinn að þau lifi heilbrigðu lífi og öðlist sjálfsvirð- ingu eins og þau eru.“ Gildi alltaf að breytast Er ekki óðs manns æði að ætla sér að breyta upplifun fólks af því hvað telst fallegt og ljótt? „Einu sinni þóttu reykingar mjög smart. Það var velmegunarmerki að hafa vindlareyk í stofunni og reyk- ingar þóttu sjálfsagðar. Fólk reykti ofan í vöggur í skírnarveislum og það þótti fullkomlega eðlilegt. Við- horfið hefur hins vegar algjörlega snúist við. Mér finnst það síður en svo fjarstæðukennt að við getum lært að viðurkenna þá eðlilegu stað- reynd að við erum öll mismunandi í laginu. Að við sjáum hvað það er fáránlegt að enginn megi að vera þéttvaxinn þegar það er óhjákvæmi- legur hluti af fjölbreytileika mann- kyns. Umhverfið og lífsvenjur okkar geta vissulega haft áhrif á líkams- þyngdina og við eigum auðvitað að vinna að því að gera lífið heilbrigð- ara og ánægjulegra. En hugmynda- fræðin um að enginn megi vera utan við ákveðin þyngdarmörk er bæði skaðleg og ósanngjörn. Ég sé ekk- ert því til fyrirstöðu að okkur takist að breyta þessum viðhorfum eins og mörgu öðru. Gildi í samfélögum eru alltaf að breytast. Fyrir fjörutíu árum var útilokað að fá að lifa í friði sem opinberlega samkynhneigð manneskja og njóta virðingar sam- ferðamanna sinna. Það hefur gjör- breyst á frekar stuttum tíma. Ósann- gjörn samfélagsgildi lifa ekki til lengdar.“ Sigrún segir að úrræði við átrösk- unum hér á landi hafi breyst mjög til batnaðar á undanförnum árum og séu nú svipuð því sem gerist annars staðar. Hvað varðar umræðuna um þörf fyrir meðferðarheimili hér á landi hafi þær hugmyndir breyst í takt við aukna áherslu á svokallaðar samfélagsgeðlækningar. „Þróunin í geðlækningum al- mennt hefur verið á þá leið að lögð er áhersla á að endurhæfing fari ekki fram á sérstökum meðferðar- heimilum eða stofnunum heldur fái sjúklingar frekar faglega þjónustu heim til sín á eigin forsendum. Með því að taka fólk út úr umhverfi sínu eru meðal annars slitin náin tengsl Börn eiga að vaxa og dafna – ekki léttast Átröskunar- hugmyndir í leikskóla Sigrún segir að helstu ástæður þess að fólk fái átraskanir á Íslandi séu svipaðar og í öðrum löndum. „Ástæðurnar eru líklega þær sömu og annars staðar í heiminum. Við höfum öll ákveðna erfðafræðilega tilhneigingu til að eiga við einhvers konar vandamál að stríða. Sumir eru viðkvæmir fyrir kvíða, þunglyndi eða sykursýki. Aðrir fyrir átröskunum. Við lifum í samfélagi þar sem er gríðarlegur þrýstingur varðandi útlit og holdafar. Í útlöndum sýna rannsóknir að börn í kringum þriggja til fimm ára eru búin að meðtaka þá hugmynd að það sé ljótt að vera feitur en fallegt að vera grannur. Við höfum einnig haft sjúklinga sem rekja sínar átröskunarhugmyndir allt aftur í leikskóla. Stelpur sem eiga minningar af sér að reyna að halda inni maganum fimm ára gamlar. Það þarf að verða mjög mikil vitundarvakning innan sam­ félagsins til að sporna við þessu.“ Sigrún Daníelsdóttir, formaður Félags fagfólks um átrask­ anir, segir að börn séu strax á leikskólaaldri búin að meðtaka þá hugmynd að fallegt sé að vera grannur en ljótt að vera feitur. Á meðan þessi viðhorf eru ríkjandi eru átrask­ anir óhjákvæmilegar aukaverkanir og því þarf hugarfars­ breytingu í sam félag­ inu ef ætlunin er að vinna gegn þessum vanda. Þóra Tómas- dóttir ræddi við Sigrúnu. Ljósmynd/Hari við fjölskyldu og vini sem eru mikilvæg, ekki síst þegar fólk er á erfiðum stað í lífinu. Ef við fengjum fjármagn til að bæta við þjónustuna myndum við frekar vilja sjá slíkt úrræði líta dagsins ljós en að koma á fót meðferðarheimili sem er afar dýr kostur en nýtist fáum,“ segir Sigrún og bætir því við að reynsla fag- aðila af meðferð sjúklinga sem hafa leg- ið lengi inni á stofnunum styrki trúna á þessa nálgun. „Það er miklu betra að raska sem minnstu í lífi fólks en veita því engu að síður þá hjálp sem það þarf. Það á ekki að taka fólk úr umferð nema algjöra nauðsyn beri til.“ Stelpur í meiri hættu Sigrún segir flesta sem þjást af át- röskun vera stelpur og algengast sé að þær veikist á unglingsárum. „Flestar eru á aldrinum fjórtán til átján ára þegar þær veikjast. Strákar eru engu að síður ekki ónæmir fyrir át- röskunum og það er mikilvægt að vera einnig vakandi fyrir slíkum merkjum meðal þeirra.“ Hvað ráðleggur þú foreldrum að gera þegar unglingarnir þeirra sýna áhættu- hegðun? „Að leita sér hjálpar sem fyrst; byrja á að fara til heimilislæknis, skólasál- fræðings eða annars fagfólks. Þessir að- ilar senda tilvísun á BUGL eða átrösk- unarteymi LSH ef þörf er á. Einnig eru sálfræðingar á stofu sem sérhæfa sig í meðferð átraskana. Eitt af verkefnunum hjá okkur í fagfélaginu er að hefja reglu- lega fræðslu fyrir foreldra og aðstand- endur og koma á fót heimasíðu þar sem upplýsingar um átraskanir og meðferð þeirra er að finna. Það er mikilvægt að úrræðin séu þekkt.“ Hvað eru einkenni sem þarf að taka alvarlega? „Ef barnið virðist vera óhóflega upp- tekið af mataræði eða holdafari. Ef það talar neikvætt um holdafar sitt. Ef barnið ver undarlega löngum tíma á baðherberginu. Ef það hættir að mæta í kvöldmat og segist oft vera búið að borða. Ef matvæli hverfa úr ísskápnum eða eldhússkápum eða ef barn hrapar af óútskýranlegum ástæðum niður í þyngd. Það er risastórt rautt flagg og fólk ætti að leita hjálpar undir eins. Börn eiga ekki að léttast, þau eiga að vaxa og dafna.“ Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is „Mér finnst það síður en svo fjarstæðukennt að við getum lært að viðurkenna þá eðlilegu staðreynd að við erum öll mismunandi í laginu,“ segir Sigrún Daníels­ dóttir, formaður Félags fagfólks um átraskanir. Gildi í samfélögum eru alltaf að breyt- ast. Fyrir 40 árum var útilokað að fá að lifa í friði sem opinberlega sam- kynhneigð mann- eskja og njóta virðingar sam- ferðamanna sinna. Einu sinni þóttu reykingar mjög smart. Það var velmegunarmerki að hafa vindlareyk í stofunni og reykingar þóttu sjálfsagðar. Fólk reykti ofan í vöggur í skírnar- veislum og það þótti fullkomlega eðlilegt. 16 fréttir Helgin 8.­10. júlí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.