Fréttatíminn - 08.07.2011, Blaðsíða 46
Helgin 8.-10. júlí 201142 tíska
Óheilbrigðar
fyrirmyndir
Í glanstímaritunum þar sem horuðu fyrirsæt-
urnar bjóða okkur lesendurna velkomna, tala
frægu leikkonurnar um megrunarkúrana sína.
Hvað fjórtán tímar í ræktinni skiluðu sér vel
og loftið sem þær borðuðu í morgunmat heldur
þeim í fjörutíu kílóunum. Minnimáttarkenndin
heltekur okkur. Við hendum frá okkur kleinu-
hringnum, skundum í ræktina og kaupum
okkur líkamsræktarkort. Líkamsræktarkortið
var notað einu sinni þennan mánuðinn.
Það var á unglingsárunum sem útlitsdýrkunin
fór af stað. Við byrjuðum að safna plak-
ötum með uppáhalds hljómsveitun-
um okkar, hengdum upp myndir af
frægum leikkonum og þráðum að
vera alveg eins og þær. Mjótt mitti,
stór brjóst, frægð og flott föt. Þær höfðu allt.
Markmiðið var að komast á þeirra stað í lífinu.
Alveg frá því að við munum eftir okkur höfum
við átt einhverja fyrirmynd sem við höfum litið
upp til. Þegar við vorum lítil óskuðum við þess
að geta flogið eins og Súpermann eða orðið jafn
sterk og Leðurblökumaðurinn. En þegar við
fórum að eldast gerðum við okkur grein fyrir
því að þetta voru óraunhæfar fyrirmyndir sem
aldrei höfðu verið til í raun og veru.
Eftir allt saman held ég þó að Súpermann hafi
ekki verið svo slæm fyrirmynd. Við létum
okkur dreyma, sveipuðum okkur skikkjum
og brugðum á leik sem Súpermann. Það
er erfiðara að bregða á leik sem
fjörutíu kílóa Hollywood-
stjarna sem á allt, getur
allt og fær allt. Óheilbrigð
fyrirmynd sem Súpermann
er ekki.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Mánudagur
Skór: Kaupfélagið
Buxur: H&M
Bolur: Hagkaup
Axlabönd: Nærvera
Fimmtudagur
Skór: Kaupfélagið
Buxur: Vero Moda
Bolur: Monki
Jakki: Nærvera
Skart: Urban Outfitters
Elísabet Weisshappel Vilhjálmsdóttir er
24 ára, lærður stílisti og eigandi verslunarinnar
Nærveru.
„Stíllinn minn er mjög fjölbreytilegur og ég
blanda gjarna saman nýjum og gömlum fötum;
elska til dæmis að róta á flóamörkuðum og
finna eitthvað sniðugt og blanda svo dýrum
fötum saman við. Hérna heima kaupi ég að
sjálfsögðu mest í Nærveru og svo Gyllta kett-
inum, Spúútnik og Topshop. Þegar ég kemst út
þá eru líklega Urban Outfitters, Monki og H&M
með mesta aðdráttaraflið á mig.
Ég fæ mestan innblástur þegar kemur að
tísku frá fólkinu í kringum mig. Skoða líka mikið
fatasíður og kíki í blöð. Kate Moss, Olsen-systur
og Sienna Miller eru í miklu uppáhaldi þegar
kemur að fatavali; töff fatastíll, blanda af fjöl-
breytilegum fatnaði.“
Blandar saman gömlum fötum og nýjum
Þriðjudagur
Skór: Gyllti kötturinn
Sokkabuxur: Oroblu
Stuttbuxur: Kolaportið
Bolur: Nærvera
Hattur: Spúútnik
Föstudagur
Skór: Kaupfélagið
Buxur: Nærvera
Bolur: Gina Tricot
Jakki: Nærvera
Gleraugu: Urban Outfitters
Hálsmen: Nærvera
Kvenmenn
komast nær
himnum
Franski skóhönnuðurinn
Christian Louboutin tilkynnti á
dögunum að balletdansarar hjá
English National Ballet kæmust
nær himnum en aðrar konur.
Þær myndu dansa í nýjustu
hönnun kappans, ballettskóm
með tuttugu sentimetra háum
hælum, skreyttum Swarovski-
kristalsteinum. Skórnir hafi vakið
mikla athygli meðal Hollywood-
stjarnanna en þær munu því
miður ekki fá afnot af þeim fyrr
en eftir nokkra mánuði þegar
þeir verða til sölu í verslunum
Louboutin. -kp
Handbókin Style Your-
self, sem kom út í síð-
ustu viku, hefur farið
sigurför um heiminn
meðal tískuaðdáenda.
Bókin var skrifuð sem
kennslubók og gefur
Black Honey-línan endurgerð
Árið 1971 setti
snyrtivörufyrirtækið
Clinique á markað
gloss sem kallaðist
Black Honey og
varð á einni nóttu
eitt vinsælasta gloss
allra tíma. Árið 1989
endurbættu þeir
glossið sem var hluti
af Almost Lipstick-
línunni þeirra. Núna,
sumarið 2011, hefur
Clinique hafið sölu á
nýrri línu sem byggð
er á Black Honey-
glossinu.
Nýja Black Honey-
safnið inniheldur fjóra
augnskugga, varalit,
kinnalit og maskara,
allt í svipuðum litatón.
Safnið er til sölu bæði í
Nordstrom-verslunum
og á vefverslunum
þeirra og fer verðið
á vörunum ekki yfir
3.500 krónur. -kp Kennslubók um klæðaval
nákvæma ráðgjöf um hvernig eigi að
klæða sig rétt. 95 þekktir tískublogg-
arar um allan heim voru fengnir til að
skrifa kafla í bókina, þar á meðal Tavi
Gevinson og Jane Aldridge sem skrif-
uðu formálann. Bókin fæst meðal
annars á Amazon. -kp
Miðvikudagur
Skór: Kaupfélagið
Sokkabuxur: Oroblu
Stuttbuxur: Nærvera
Skyrta: Urban Outfitters
Gleraugu: Urban Outfitters
Dúnmjúkar
brúðargjafir
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Sendum frítt
www.lindesign.is