Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.07.2011, Blaðsíða 15

Fréttatíminn - 08.07.2011, Blaðsíða 15
E kki var talið að barnaníð-ingurinn í Vestmanna-eyjum gæti spillt rannsókn málsins. Ástæðulaust væri að fara fram á gæsluvarðhald til að vernda brotaþola. Frá árinu 2007 hefur Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, lagt fram sex kröfur um gæsluvarðhald yfir grunuðum kynferðisbrotamönnum. Í öllum tilvikum óskaði hann eftir gæslu- varðhaldi til að koma í veg fyrir að meintir brotamenn gætu spillt rannsókn málanna. Samkvæmt lögum geta dóm- stólar heimilað gæsluvarðhald af fjórum ástæðum; til að vernda rann- sóknarhagsmuni, ef grunur leikur á að afbrotamaður fari úr landi, ef um síbrotamann er að ræða og til að vernda almannahagsmuni. Þá er sérstaklega tekið fram að telja megi gæsluvarðhald nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakborn- ings. Kynferðisbrot barnaníðingsins í Vestmannaeyjum varða þrjár stúlk- ur, þar á meðal stjúpdóttur hans. Meðal sönnunargagna í málinu var myndbandsupptaka af manninum nauðga stjúpdóttur sinni. Gríðar- legt magn barnakláms fannst í fórum mannsins. Sýslumaður taldi ekki ástæðu til að krefjast gæslu- varðhalds yfir honum. Af þeim sex kröfum sem sýslu- maður hefur lagt fram undan- farin fimm ár féllst Héraðsdómur Suðurlands á fjórar þeirra. Þrjár krafnanna sem voru samþykkt- ar vörðuðu rannsókn á meintri hópnauðgun. Frá árinu 2007 hefur embættið alls farið fram á gæslu- varðhald yfir 47 einstaklingum. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Í þeim kynferðisbrotamálum þar sem sýslumaðurinn á Selfossi hefur farið fram á gæsluvarðhald, hefur það í öllum tilvikum verið til að vernda rannsóknarhagsmuni.  kynfErðisbrot fáir í gæsluvarðhald Gæsluvarðhald ein- göngu til að vernda rannsóknarhagsmuni Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, hefur verið gagnrýndur fyrir að krefjast ekki gæsluvarðhalds yfir manni sem sást á myndbandi nauðga stjúpdóttur sinni. Skráning er hafin á marathon.is Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður að morgni Menningarnætur, 20. ágúst. Vegalengdir við allra hæfi, allt frá Latabæjarhlaupi fyrir börnin og upp í heilt maraþon. Boðhlaup – hlauptu maraþon með félögum þínum Gerðu Reykjavíkurmaraþonið þitt enn skemmtilegra. Í boðhlaupi taka 2-4 sig saman og skipta heilu maraþoni á milli sín. Nánar á marathon.is. Hlaupastyrkur – hlaupum til góðs Þú getur látið gott af þér leiða með hlaupinu. Á hlaupastyrkur.is getur þú safnað áheitum til stuðnings góðgerðarfélagi að eigin vali með því að fá vini og vandamenn til að heita á þig. - Stoltur bakhjarl hlaupsins síðan 1997 ALLIR SAMAN NÚ TIL GÓÐS HLAUPUM ... og ef við hlaupum fjórir saman ... Það er lítið mál að hlaupa tíu kílómetra ... ... þá náum við heilu maraþoni ... ... og söfnum fyrir Barnaspítala Hringsins á meðan H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 1 -0 7 3 3 HEIMSENDING á höfuðborgarsvæðinu alla daga frá kl. 15–19 eða á smellugas.is Hafðu samband í síma 515 1115 Vinur við veginnSmellugas Smellugas smellugas.is PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 11 71 2 Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is Helgin 8.-10. júlí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.