Fréttatíminn - 08.07.2011, Blaðsíða 34
Síleska skáldkonan Isabel Allende fær í ár
hin virtu dönsku bókmenntaverðlaun sem
kennd eru við H.C. Andersen. Verðlaunin
sem eru myndarleg peningaupphæð,
hálf milljón danskra króna eða rúmar 11
milljónir íslenskra, hafa lengi verið veitt en
þetta er í annað sinn sem kona hlýtur þau.
Rowling Potter-drottning fékk þau í fyrra.
Það sem af er sumri hafa Danir verið
ákafir í verðlaunaveitingum til skáldsagna-
höfunda. Fyrir utan H. C.-verðlaunin voru nýlega veitt verðlaun sem
kennd eru við danska ríkisútvarpið og hlustendur eiga stóran þátt í að
velja hver fær. Í ár fékk dansk-serbneska skáldkonan Birgithe Kosovic
verðlaunin fyrir skáldsöguna Det Dobbelte land sem byggist á sögu
fjölskyldu hennar frá dögum stríðsins í gömlu Júgóslavíu. Fimmtíu
bókasöfn eiga hlut að vali sex bóka sem tilnefndar eru en lesendur
velja um síðir verðlaunahafann. -pbb
Af dönskum verðlaunum
Bókadómur 100 ára saga Íslandsmótsins Í knattspyrnu
g unnlaugssaga Akraness er þegar orðin þekkt, einkum fyrir þá gífurlegu fjármuni sem skattgreiðendur
þar hafa mátt punga út í verkefnið, hátt í
120 milljónir, og sér ekki fyrir endann á því
dæmi. Sveitarstjórn vill gera sögu sveitar
sem mesta og ræður til þess mann. Hann
skrifar tvö bindi, það fyrra kemur út en
með miklum afskiptum ritnefndar sem er
ekki sérfróð um sagnfræðiritun, byggða
rannsóknir né útgáfu, týpísk kallanefnd
amatöra eins og þær gerast verstar í stjórn
sýslunni, bitlingaráð. Sú nefnd ræður
nýjan mann og honum dugar ekki annað
en nýtt upphaf. Það er nú komið út á bók
í stóru broti, 25x35 604 bls. prentað á 150
gramma pappír. Stærð og fyrirferð er slík
að bókina er aðeins hægt að lesa á borði.
Lesmál er 10 punkta letur, því er skipað
í 5,5 sentimetra dálka sem eru langir, en
rofnir með númeruðum undirkaflaheitum
og millifyrirsögnum. Neðanmálsgreinar
eru nýttar undir athugasemdir og tilvitn
anir í heimildir.
Sönnunargagn um lágt
siðferðisstig í bókaútgáfu
Þetta er torlesin bók, bæði sökum spalta
lengdar og eins vegna stíls og efnistaka.
Bókin er byggð upp af meginmáli með
miklu smátextauppbroti undir lituðum
römmum. Umbroti er ætlað að vera skraut
legt og mikilúðlegt, þetta er stíll sem
virðist eiga sér upphaf í dagblaðslíkingum
á umbroti Aldanna um 1950. Myndefni
er mikið; kort, töflur, súlurit, smámynda
skraut og nýjar og gamlar ljósmyndir.
Höfundur og útgefandi þverbrjóta reglur
um myndrétt, elta uppi myndir og afrita í
mislitlum gæðum af vef og úr bókum. Þó
segja þeir sjálfir: „Bók þessa má ekki afrita
með neinum hætti ...“ en stela sjálfir ótæpi
lega sem skilar sér í illa unnu myndefni,
muskulegum eftirtökum, svo grófkvörðuð
um að mynd eftir mynd er ónýt í prentun.
Bókin er merkilegt sönnunargagn um
lágt siðferðisstig íslenskrar bókaútgáfu og
ætti að verða fyrsta verk sýslumannsins á
svæðinu að gera eintök bæjarstjórnarinnar
á Akranesi upptæk í svo stóru þjófnaðar
máli. Er ekki lögregla á Akranesi?
Fyrsta bindið hefst á 140 síðna örnefna
tali, sem á ekki erindi í bók í svo smámuna
samri upptalningu. Uppnefni á skúrræflum
sem stóðu fáa áratugi eru dregin til, staðir
nefndir sem ekki verða fundnir. Langloka
þessi er bæði staglsöm, óljós í lestri og til
þess fallin að lesandi þarf verulega að taka
á til að komast í gegnum torfið. Af þessum
síðum má ráða að bókinni er ekki ritstýrt.
Efni sem þetta á heima á heimasíðum með
merktum kortum og ísettum gönguleiðum,
leyfi landeigendur ferðir um þau svæði.
Einbeittur brotavilji
Fyrsta bindið er um sögu hins forna land
náms: hundrað síður fara undir þá spekúla
sjón og setur það höfundinn í nokkurn
vanda. Á hann að trúa skáldskap í lausu
máli um hina fornu byggð eða ekki? Svo
að barn verði úr brók gerir Gunnlaugur
það og gott betur. Hann spinnur í rituðum
heimildum af öllu tagi skemmtilega sögu
um hið kristna/gelíska samfélag umhverfis
Akrafjallið sem er nærri því eins hug
vitssamleg og saga Skugga af Krýsum.
Fabúlasjón sem af miklum innblæstri
gerir byggðina uppi á Skaga að hæli fyrir
konungborna eyjabúa af keltneskum upp
runa. Tilgangurinn skýrist ekki fyrr en um
síðir. Dást verður að einbeittum brotavilja
höfundarins til að koma þessari landnáms
sögu heim og saman; heimurinn sem hann
býr til úr litlum gögnum er heillandi skáld
skapur og á ekkert skylt við varfærna gagn
rýna sagnfræði, enda þyrfti hún að vera
styrkt skýrum heimildum sem ekki eru til,
fornleifum sem ekki hafa fundist, stórupp
greftri með skipulegum hætti á öllum þeim
byggðastöðum sem hann tilgreinir.
Tesan er þessi: Umhverfis Akrafjall var
mikil byggð, nánast þéttbýli sem byggði
lífsafkomu sína á sjávarfangi, jarðrækt
og búfjárrækt. Þetta var kristið keltneskt
samfélag og hafði víðtæk áhrif inn í
Borgar fjarðarbyggðir og suður á Reykja
nes. Það hnígur síðan eins og aðrar blóm
legar byggðir vegna veðurfarslegra þátta,
hallæris og umgangspesta. Þessi kenning
er nýstárleg en brýtur í bága við eldri og
nýrri kenningar að hluta.
Háskaleg umgengni við heimildir
Umgengni höfundar við heimildir er því
háskaleg; hann hefur víða farið en skipar
heimildum sínum, sem flestar eru sóttar
í prentuð rit og sumpart í handrit, ekki í
veldisröð eftir trúverðugleika. Keltneska
kenningin er sumpart sótt í Hermann Páls
son og Helga Guðmundsson en dýpkun
hennar byggist á óskhyggju. Þegar á líður
fyrsta bindið sjást þess glögg merki að
höfundurinn leggur sig fram um að gera
mikið úr litlu: Saga atvinnuhátta verður
ítarleg og fer langt út fyrir efnisramma. Nú
skal lopinn teygður. Margt er þar athyglis
vert en fátt á erindi í rit sem þetta.
Hér hefur tekist herfilega til um fram
kvæmd og hafi þeir skömm fyrir sem
að stóðu. Margt mætti til færa um hvar
ranglega er staðið að ályktunum, hlaupið
í æsilegum rökleysum að veikum niður
stöðum en rými á þessari síðu dugar ekki
til. Það þarf heilt hefti af Sögu eða Skírni til
að skoða þetta bindi að gagni og þá munu
margar aðleiðslur Gunnlaugs falla eins og
spilaborg.
Akurnesingum var nær að kjósa yfir
sig svona dómgreindarlausa stjórnendur
og leyfa þeim að komast upp með svona
vitleysu. Saga Akraness Fyrsta bindi er
merkilegur minnisvarði um vanhugsaðan
undirbúning, óvandaða vinnu og ósvífna
tilraun til að smíða sögukenningu sem
ekki er fótur fyrir.
30 bækur Helgin 8.-10. júlí 2011
samBÍó sýna leiklist og óperur
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Það sem af er þessu ári eru komnar út vestanhafs tvær bækur um Bobby
Fischer. Frank Brady sendi frá sér bók í febrúar sem heitir Lokataf l:
Bobby Fischer’s Remarkable Rise and Fall – from America’s Brightest
Prodigy to the Edge of Madness. Undirtitillinn segir allt sem þarf.
Þá er komin út bók með ljósmyndum Harrys Benson sem vann fyrir
Life og komst í tæri við Fischer árið 1971, fyrst heima í Brooklyn og svo í
áskorendaeinvíginu í Argentínu í aðdraganda þess að hann kom hingað
1972. Það fór vel á með þeim og fyrir bragðið ávann Benson sér traust
snillingsins og komst nær honum en flestir aðrir á þessum tíma.
Þá var nýlega frumsýnd vestanhafs 90 mínútna heimildarmynd Liz Garbus um Fischer sem
hún vann á áralöngu tímabili. Garbus á að baki nokkrar merkar heimildarmyndir og er HBO
framleiðandi verksins. Garbus kom hingað og var viðstödd blaðamannafundinn þegar Fisc-
her var flogið hingað í einkaþotu. Hún er búin að fínkemba myndlegar heimildir og sökum
þess hve þær eru fátæklegar frá löngum pörtum í ævi hans er einkum dvalið við einvígið
og uppruna snillingsins. Væntanlega verður þessi mynd í innkaupapakka Stöðvar 2 sem er í
sambandi við HBO. Í kynningarefni fyrir myndina er þess getið að Bobby hafi verið 64 ára
þegar hann lést. Ár hans hafi á endanum orðið jafn mörg og reitirnir á skákborðinu.-pbb
Fischer eykst enn frægð
Beinar útsendingar
í Kringlubíói Saga Akraness eitt
Þyngsta verk ársins er komið út í tveimur bindum eftir tíu ára undirbúning.
Um það leyti sem Fréttatíminn var að
smella inn í prentvélar á fimmtudaginn
var, hófst í Sambíóunum í Kringlunni
bein útsending síðustu sýningar
vetrarins frá breska þjóðleikhúsinu
í London. Það var grátlega fátt fólk
í salnum. Kirsuberjagarðurinn eftir
Tsjekhov, í sviðsetningu Howards
Davies, skartaði ekki neinum stórnöfn-
um utan Zoë Wanamaker í hlutverki
frúarinnar sem snýr heim á sveitasetur
sitt til þess að horfa á upplausn hins
forna landaðals – sannarlega and-
styggileg persóna, dregin skýrum en
djúpum myrkum dráttum. Þetta var
stórsýning, römmuð inn af dramatískri
tónlist, stóru setti og miklum fjölda
aukaleikara sem gáfa verkinu aukið
vægi. Og í túlkun Davies, sem á að baki
fjölda sýninga, var hinn pólitíski undir-
tónn verksins sterkur í annars nokkuð
frjálslegri þýðingu og leikgerð.
Á liðnum vetri hafa nokkrar merkar
sýningar verið í beinni útsendingu
frá National og tengdum leikhúsum:
Frankenstein í leikstjórn Dannys
Boyle verður líkast til í huganum ein
af þessum tíu stóru leiksýningum sem
ég hef séð.
Í útsendingunni fyrir viku var sýnt
teipað viðtal við Nicholas Hytner um
komandi verk í beinni: Tveggja þjónn
eftir Goldoni í sviðsetningu hans sjálfs
verður sendur út í september, þá er
von á Allt í misgripum með Lenny
Henri er líður á veturinn, nýtt verk
eftir John Hodge um Bulgakov og
Stalín og Eldhúsið eftir Wesker sem
hefur ekki sést lengi þótt það sé leiks-
ögulega mikilvægt verk í vestrænni
kanónu og henti einkar vel í útsend-
ingu af þessu tagi.
Samfélagið hefur staðið vel að
þessum beinu útsendingum í Kringlu-
bíói. Frá Metropolitan verða á þessum
komandi vetri ellefu útsendingar sem
komnar eru á dagskrá: byrja í október
með Netrebko í hlutverki Önnu
Boleyn, Don Giovanni verður sendur
út 24. október, Sigfried í leikstjórn
Lepage 5. nóvember, Satyagraha eftir
Glass hinn 19. Og í desember verða
í Kringlubíói Rodelinde eftir Händel
með Renée Fleming og Faust eftir
Gounod. Í janúar verður sýnt samsett
verk af barokktónlist við bók sem
byggist á Ofviðrinu og þar kemur
Domingo fram í hlutverki Neptúns.
Ragnarök Wagners í Niflungahring
Lepages eru á dagskrá í febrúar,
Ernani Verdi skömmu síðar, Manon
og La Traviata í apríl. Það er mikil
ásókn áhugasamra um óperur í miða
á þetta prógramm Metropolitan þar
sem heimsþekktir kraftar koma fram í
viðamiklum og glæsilegum sýningum.
Vonandi halda áfram beinar útsend-
ingar frá National. Hytner sagði Ind-
landsmarkað vera að opnast og nefndi
að Frankenstein hefðu hundrað þúsund
séð í útsendingu frá Suðurbakkanum.
Synd að svo fáir skyldu njóta Kirsu-
berjagarðsins á fimmtudaginn var. -pbb
Sokkaprjón eftir hann-
yrðakonuna Guðrúnu
S. Magnúsdóttur fer
beinustu leið á topp
Eymundsson-listans.
Þetta er fyrsta bók
Guðrúnar sem hefur
strax stimplað sig inn
sem einn af óvæntari
metsölubókahöfundum
ársins.
sokkaprjón
á toppnum
saga akraness
Fyrsta bindi –
frá landnáms-
tíð til 1700.
Gunnlaugur Haraldsson
Uppheimar – Akranesbær
604 bls. 2011
Isabel
Allende.
Zoë Wanamaker í hlutverki frú Ranjevs-
kaju.
Bókin er
merkilegt
sönnunar
gagn um lágt
siðferðisstig
íslenskrar
bókaútgáfu
og ætti að
verða fyrsta
verk sýslu
mannsins á
svæðinu að
gera ein tök
bæjarstjórn
arinnar á
Akranesi
upp tæk í svo
stóru þjófn
aðarmáli. Er
ekki lögregla
á Akranesi?
... Hér hefur
tekist herfi
lega til um
framkvæmd
og hafi þeir
skömm
fyrir sem að
stóðu.Gönguferðin þín er á utivist.is
Skoðaðu ferðir
á utivist.is