Fréttatíminn - 08.07.2011, Qupperneq 44
40 bíó Helgin 8.-10. júlí 2011
B lómaskeið film noir stóð í 17 ár og þá er miðað við að það hafi
hafist árið 1941 með The Mal-
tese Falcon í leikstjórn Johns
Huston. Í þeirri mynd fór
Humphrey Bogart á kost-
um í hlutverki hins kald-
rifjaða einkaspæjara Sams
Spade sem lét sér ekkert fyrir
brjósti brenna. Fimm árum
síðar setti Bogart upp hatt
Philips Marlowe, sem er hinn
eini sanni riddari regnvotra
skuggastræta Los Angeles og
fyrirmynd ótal einkaspæjara í
bókum, bíómyndum og sjón-
varpsþáttum.
Þegar Bogart hafði leikið
þá báða, Spade og Marlowe,
var hann búinn að gera tvær
öflugustu persónur tveggja
höfuðpáfa harðsoðnu hefð-
arinnar í bandarískum bók-
menntum að sínum, en Spade
er hugarfóstur Dashiells
Hammett og Raymond
Chandler skóp Marlowe.
Þessar persónur renna oft
saman í einn mann í hugum
fólks með Humphrey Bogart
sem samnefnara.
Þessir tveir menn óðu spill-
inguna í Los Angeles upp að
öxlum en í heimi þeirra fer
lítið fyrir heiðarlegu og góðu
fólki. Hins vegar er allt mor-
andi í fjárkúgurum, morðingj-
um, varasömum tálkvendum,
morðingjum, fjárhættuspil-
urum, þjófum, lygurum og
glæpamönnum sem svífast
einskis; skjóta fyrst og spyrja
svo. Sam Spade var enginn
engill; útsmoginn, baneitr-
aður og fyrst og fremst í liði
með sjálfum sér. Marlowe er
hins vegar stálheiðarlegur og
sanngjarn maður og fer eftir
eigin siðalögmálum sem ekki
eru alltaf í samræmi við lögin
en hann snýr hins vegar að-
eins upp á reglurnar fyrir fólk
sem hann telur eiga skilið að
sleppa.
Karlpersónur film noir -
myndanna skiptast frekar
skýrt í tvo hópa: annars
vegar harðsoðnu spæjarana,
lögreglumenn eða aðra sem
eru virkir og öflugir fulltrú-
ar hins sterka einstaklings
sem gengur oftar en ekki í
verk sem eru yfirvöldum og
þunglamalegu kerfinu of-
viða. Persónur Hammets og
Chandlers eru dæmigerðir
fulltrúar þessarar manngerð-
ar. Síðan eru það karlræflarn-
ir; ístöðulaus gauð sem tál-
konur vefja um fingur sér og
fá oftar en ekki til að myrða
ríka eiginmenn sína – þó alls
ekki til að njóta auðsins með
lánlausum morðingjanum.
Rithöfundurinn James M.
Cain skipar svipaðan sess
í þessari grein film noir og
Chandler og Hammett á hin-
um ásnum en meðal rökkur-
mynda sem gerðar hafa veirð
eftir bókum Cains eru The
Postman Always Rings Twice
og Double Indemnity.
Í fræðunum er rökkur-
myndaskeiðið sem hófst
með Möltufálkanum talið
enda árið 1958 með A Touch
of Evil eftir Orson Welles.
Þarna er þó vitaskuld ekki
um eiginleg endalok að ræða
þar sem krimmar undir
sterkum áhrifum hefðarinn-
ar birtast reglulega en hafa
fengið stimpilinn Neo Noir til
aðgreiningar frá klassíkinni.
Blood Simple, Blade Runnar,
Last Seduction, L.A. Confi-
dential, Sin City og U Turn
eru á meðal ótal mynda sem
falla í þennan flokk.
Kvikmyndatímaritið Emp-
ire birti nýlega á vef sínum
tíu dæmigerðar film noir -
myndir sem mælt er með að
fólk horfi á til að ná góðri til-
finningu fyrir hefðinni. Til-
efnið er að Neo Noir-bylgja er
að rísa eina ferðina enn með
Drive eftir Nicolas Wind-
ing Refn, endurgerð The
Thin Man eftir sögu Ham-
metts með Johnny Depp,
frönsku spennumyndinni À
bout portant (Point Blank).
Að ógleymdum tölvuleiknum
L.A. Noire.
rökkurmyndir Sígild Stemning 1941-1958 frumSýndar
Harðjaxlar og heybræk-
ur í skúmaskotum
Dimmu og drungalegu glæpamyndirnar sem bera merkimiðann film noir eru margar hverjar í
algerum sérflokki þótt þær hafi oftar en ekki verið gerðar af vanefnum og talist á sínum tíma til
B-mynda. Andrúmsloftið í þessum myndum er í samræmi við útlit þeirra og þar er kafað ofan í
innstu myrkur mannssálarinnar þar sem græðgi, losti og spilling keyra persónurnar áfram.
Zookeeper
Kevin James hefur reynt að ná
fótfestu í kvikmyndum með því
að leika alls konar lúða. Í Zoo-
keeper leikur hann Griffin Keyes,
góðhjartaðan dýragarðsvörð
sem kemst að þeirri niðurstöðu
að eini möguleiki hans á að næla
í draumaprinsessuna sé fólginn í
því að hætta í dýragarðinum.
Dýrunum líst ekkert á blikuna
og geta ekki hugsað sér að
missa þennan góða félaga og í
örvæntingu ákveða þau að rjúfa
þagnarheit sitt og upplýsa Griffin
um að þau kunni að tala manna-
mál. Dulda hæfileika sína ætla þau
síðan að nota til þess að kenna
vini sínum að krækja sér í dömu.
Þessir tveir
menn óðu
spillinguna í
Los Ange-
les upp að
öxlum en í
heimi þeirra
fer lítið fyrir
heiðarlegu
og góðu
fólki.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Í The Beaver leika vinirnir Jodie
Foster og Mel Gibson hjónin
Walter og Meredith Black en
Foster er jafnframt leikstjóri
myndarinnar. Walter hefur verið
farsæll framkvæmdastjóri og
fjölskyldumaður en þegar hann
sekkur á kaf í þunglyndi og
vesaldóm gefst eiginkonan upp
á honum og vísar honum á dyr.
Hvernig sem Walter reynir kemst
hann ekki á beinu brautina en
líf hans tekur stefnuna upp á við
þegar hann eignast handbrúðu í
líki bjórs. Þá byrjar hann að tjá sig
en eingöngu með hjálp brúð-
unnar sem hann talar í gegnum.
Eiginkonunni og unglings-
syni þeirra líst mátulega á
blikuna en reyna að sætta
sig við hinn nýja sálufélaga
fjölskylduföðurins, ekki síst
vegna yngri sonarins sem
kolfellur fyrir bjórnum.
The Beaver hefur fengið ágætis
dóma ytra og Foster þykir hafa
góð tök á tilfinningaríku efninu og
Gibson hefur fengið mikið lof fyrir
frammistöðu sína og er jafnvel
sagður aldrei hafa verið betri.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,0, Rotten
Tomatoes: 63%, Metacritic:
60/100.
Humphrey Bogart varð holdgervingur hins harðsoðna einkaspæjara
strax árið 1941 í fyrstu film noir-myndinni, The Maltese Falcon.
Tíu rökkurmyndir sem Empire
mælir með fyrir byrjendur
The Maltese Falcon 1941
Double Indemnity 1944
Detour 1945
Out of the Past 1947
Odd Man out 1947
The Big Heat 1953
Kiss me Deadly 1955
Le Doulos 1962
The Long Goodbye 1973
Blood Simple 1984
Gibson berst grjótharður fyrir fyrri
stöðu sinni í Hollywood en það er á
brattann að sækja.
mel giBSon er mættur aftur
Sýnir stórleik í skugga skandals
Mel Gibson hefur ekki átt sjö dagana sæla
í Hollywood undanfarin ár og það er af sem
áður var þegar nafn hans var gulltrygging
fyrir góðri aðsókn á bíómyndir. Það tók að
fjara undan þessum rammkaþólska Ástrala
fljótlega eftir að hann leikstýrði blóðugri
mynd um píslir Krists. Áfengisneysla hans
fór úr böndunum og hann var stöðvaður
draugfullur undir stýri og brást hinn versti
við með því að ausa yfir lögregluþjón svívirð-
ingum sem gengu aðallega út á að laganna
vörður væri gyðingur.
Svona uppákomur eru yfirleitt afgreiddar
sem kusk á hvítflibba fræga fólksins, Gibson
var dæmdur í meðferð og hefði hæglega átt
að geta rétt snarlega úr kútnum.
En leikarinn hélt ótrauður áfram sína
heljarslóð og enn er ekki ljóst hvort honum
tekst að laga almenningsálitið og miðasölu-
þokka sinn eftir að hann gekk af göflunum í
fyrrasumar, barði á ungri barnsmóður sinni,
Oksönu Grigorievu, og fylgdi barsmíð-
unum eftir með skuggalegum símtölum þar
sem ætla mátti að myrkrahöfðinginn sjálfur
væri á línunni að baula hótanir og svívirð-
ingar á Oksönu.
Gamla Lethal Weapon-kempan naut lítillar
samúðar í kvikmyndaborginni en þó kom
gömul vinkona hans, Jodie Foster, honum til
hjálpar og lýsti því yfir að hann væri ljúfmenni
sem yrði vinur hennar alla tíð. Þau léku saman
í Maverick árið 1994 og hafa haldið tryggð
hvort við annað í gegnum súrt og sætt.
Foster varð einnig fyrst til að gefa Gibson
tækifæri til að leika eftir Oksönu-skandal-
inn og afraksturinn má sjá í The Beaver en
í þeirri mynd leikur Gibson einmitt mann
sem á í bölvuðu basli með sjálfan sig og sál-
arlíf sitt. Goðið fallna þykir standa sig með
mikilli prýði í The Beaver, undir leikstjórn
Foster, og sumir gagnrýnendur ganga jafn-
vel svo langt að fullyrða að hann hafi aldrei
leikið jafn vel á ferli sínum.
Aðsóknin á myndina hefur engu að síður
valdið framleiðendum vonbrigðum sem
bendir til þess að áhorfendur ætli að vera
lengur að fyrirgefa en Foster. Það er því
alls óvíst hvort Gibson nær nokkru sinni að
tjasla saman mannorði sínu.
Mel Gibson
tekst varla að
láta bjórinn
kjafta sig út úr
skandölum í
einkalífinu.
Talar í gegnum bjór
Undarlegur orðrómur
um Batman
Nýjasti orðrómurinn um næstu
Batman-mynd Christophers
Nolan gengur út á að sjálfum
Adam West,
sem lék Batman
í gömlu sjón-
varpsþáttunum,
muni bregða fyrir
í smáhlutverki í
myndinni. Þessi
saga er þó tæpast
talin eiga við rök
að styðjast, bæði
vegna þess að
West er orðinn
83 ára og ekki jafn sprækur
og hann var, og ekki síður þar
sem Nolan er ekki þekktur
fyrir uppátæki eins og að draga
gamalmenni á flot til þess að
vísa í þætti sem meirihluti
áhorfenda man varla eftir eða
kannast ekki við.
Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laug. 11-16.
Niðurföll
og rennur í
baðherbergi
PROLINE NOVA 60 cm
21.900,-
COMPACT 30cm
8.900,-
AQUA 35cm
12.900,-
EVIDRAIN
Mikið úrval
– margar stærðir