Prentarinn - 01.01.1987, Blaðsíða 8

Prentarinn - 01.01.1987, Blaðsíða 8
Vaxvélar, hafa sína galla Undanfarin ár hefur oft veriö benf á ýmsar hættur, sem eru sam- fara vinnu í prentiðnaði, t. d. lífræn leysiefni og ýmiss konar mengun af þeim, hávaða og slæmar vinnu- stöður o. fl. Allt eru þetta atriði sem eru víðar í þjóðfélaginu og á fleiri vinnustöðum en í bókagerð. Vegna nýrrar tækni eru samt allt- af að koma í Ijós nýir áhættuþættir, sem manni sýndust áður kanski sárasaklausir. Eða svo þótti mér þegar ég rakst nýlega á þátt í danska blaðinu „Dansk Grafia" nr. 25 á þessu ári. Þar er fjallað um vaxvélar, sem notaðar eru í papp- írs-umbroti. Þetta er t. d. algengt í umbroti á dagblöðum og eins í venjulegu umbroti texta og mynda, bóka og tímarita. Pappírs-sátrið er þá sett í vélarnar og bakhlið þess vaxborin, sem gerir það að verkum að hægt er að festa það lauslega þar sem það á að vera í forminum, en hægt er að hreyfa það til ef nauðsynlegt er. Þessi umfjöllun í „Dansk Grafia" eru raunar upplýsingar frá Det grafiske Branchesikkerhedsrád (BSR 3), sem við höfum oft fengið upplýsingar frá áður og höfum við birtingarrétt á öllum þeirra niður- stöðum. Hér á eftir er lausleg endursögn á þessum upplýsingum: Vegna gruns danskra prentara um að vax innihaldi ýms hættuleg efni fóru fram rannsóknir hjá ekki minna en 4 rannsóknarstofnunum í Danmörku, um hvaða efni væri þarna að ræða. Niðurstöðurnar voru þannig: 1. Heilsufræðileg-vandamál 2. Vinnuverndar-vandamál 1. Heilsufræðilega vandamálið. Samkvæmt upplýsingum fram- leiðenda er uppistaðan í skeyting- arvaxi þrenns konar: 1) „fyllingarefni" - venjulega para- fínvax. 2) „mýkingarefni" - venjulega parafínolía. 3) „límefni" - gervi - eða náttúru- legt harpix (trjákvoða). Parafínvax og parafínolía Það er mælt með því að í vaxi, sem notað er í skeytingu, sé hreinsað (rafineret) parafín og parafínolía. Þetta er grundvöllur þess að PAH: Polycykliske aromat- iske hydrocarboner sé sem minnst í efninu. í nefndum efnaflokki getur verið um að ræða efni eins og t. d. benzpyren. Hættan á myndun aukaefna við upphitun er mjög lítil ef parafínið inniheldur ekki „ómett- að alafatiske carbonhydrider". Með því að krefjast þess af fram- leiðendum og innflytjendum, að parafínið sé sérmeðhöndlað og parfínolían sé hreinsuð, getur mað- ur verið öruggari um að innihaldið sé ekki: 1) PAH (polycykliske aromatiske kulbrinter) 2) ómettað kolvetni (ath. að joð- innihaldið á helst að vera 0) Gervi- eða natturlegt harpix Gerviharpix er plastefni. Þegar plast storknar (herðist) við fram- leiðsluna bindast smá sameindir (einliða) saman á efnafræðilegan hátt sem líkja má við keðju eða neti (polymere=fjölliða). Afgangurinn af einliðunum sem ekki bindast saman geta virkað ertandi á húð og slímhimnu. Venjulega er ein- liða-innihaldið svo lítið (fá ppm), að gerviharpix er tekinn fram yfir nátt- úrulegan harpix, sem er í mörgum tilfellum ofnæmisvaldandi. 2. Vinnuverndar- vandamálið Heitt vaxbað getur myndað óþægilegar gufur. Þetta orsakast oftast af vitlaust stilltum eða biluð- um hitastillum. Það verður að vera tryggt með öryggishitastilli, að vax- baðið sé ekki hitað meira en 80 - 90° C. Þegar vax er sett í karið verður að gæta þess, að ekkert fari útfyrir það, vegna þess að snerting þess við heitan líkamann getur or- sakað magnaða gufu og reyk. Það ber að hreinsa vaxkörin reglulega. Gamalt botnsfalls-vax getur mynd- að slæmt loft eins og af gamalli óhreinni olíu. Þetta þýðir að skipta verður reglulega um nýtt vax, en ekki bara að bæta á karið. Ef þessar einföldu reglur bæta ekki ástandið verulega, verður að setja útsog við vaxkarið sem get- ur fjarlægt hugsanlegan reyk og gufu. Svanur Jóhannesson 8 PRENTARINN 1.7. ’87

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.