Prentarinn - 01.01.1987, Blaðsíða 13
I
I
Hér má sjá Heidelbergvél í notkun, en því miður eru margar sllkar ónothæfar vegna þess að varahluti
og/eða pappír vantar.
settur í blý á Linotype setn-
ingarvélar eða handsettur.
Þegar um offsetprentun er
að ræða er tekið afþrykk af
blýsátrinu og síðan ljós-
myndað. Á ljósmyndasvið-
inu ber mest á stórum amer-
ískum ljósmyndatækjum.
Vinnuumhverfi
Almennt er vinnuum-
hverfismálum lítið sinnt.
Hvergi sáum við notaða
hanska, eyrnahlífar and-
litsgrímur, loftræstikerfi;
svo mörgu var semsagt
ábótavant á þessum sviðum.
Hervæðing-
Herkvaðning
Með hliðsjón af stuðningi
Bandaríkjanna við „contra“
hryðjuverkamenn í landa-
mærahéruðum við Hond-
uras og Costa Rica er um
auknar herkvaðningar að
ræða. í flestum þeim prent-
smiðjum sem við komum í
vantaði fólk vegna tíma-
bundinnar herkvaðningar.
Efnahagsþvinganir
Bandaríkjanna (USA)
Þó stjórn landsins, Sand-
inistarnir, hafi yfirtökin á
hernaðarsviðinu í barátt-
unni við hefndarverkamenn
kostar það sitt og ekki eru
efnahagsþvinganir Reagan-
stjórnarinnar til að bæta
ástandið. Þær efnahags-
þvinganir ásamt því mikla
fjármagni sem fer í að verja
landið (u. þ. b. 57% af
þjóðarframleiðslu) hefur
haft í för með sér skort á
vörum og varahlutum.
Hvað prentiðnaðinn
snertir er stöðug vöntun á
pappír, prentlitum, filmum
og varahlutum. Sem dæmi
um þetta urðu 3 dagblöð að
halda sig við 36 síður á viku
frá því í febrúar til og með
apríl, eftir það fjölgaði þeim
í 60 síður á viku. Bóka-
smiðjurnar fá oftast ekki
annað en dagblaðapappír á
rúllum sem skorinn er niður
með hjólsögum. Fjöldi
prentvéla er ekki notaður
vegna þess að varahluti
vantar. Svo alvarlegt er
þetta að háskólaprentsmiðj-
an í Leon hefur staðið hljóð
í tvö ár vegna vöntunar á
vatnsvölsum.
Menntunarmálin
Mikill skortur er á
menntuðum bókagerðar-
mönnum í Nicaragua.
Hrikalegasta dæmið um
þetta upplifðum við í
ríkisprentsmiðjunni „Natio-
nal“. Þar vantaði a. m. k.
24 útlærða bókagerðar-
menn, það voru einungis 6
útlærðir bókagerðarmenn af
100 manna starfsliði. Á nær
öllum stöðum virtist vanta
menntað fólk og kunnáttu
við stjórnun véla.
I landinu er einn prent-
skóli og er hann í Leon
(Næststærstu borginni í Nic-
aragua). Skólinn er í einka-
rekstri, en er studdur af rík-
inu. eigandi skólans er hins
vegar afar andsnúinn stjórn-
völdum svo samstarfið er
stirt. Skólinn er rekinn langt
undir þeirri getu sem hann
gæti haft, þar eru fáir nem-
endur, auk þess sem dýrt er
að ganga í skólann, náms-
gjöld afar há.
Bókagerðarfélagið telur
að höfuðvandamálið sé
hversu erfitt það er að verða
sér út um menntun og hin
lágu laun sem viðgangast í
landinu. Það er álit þeirra
að hin lágu laun verði á viss-
an hátt rakin til þess hve
menntunin er takmörkuð og
möguleikar til menntunar
litlir. í stuttu máli má segja
að mikilvægasta hagsmuna-
málið sé að koma á fót fag-
skóla. Til þess skortir hins
vegar fjármagn í Nicaragua,
svo miklar vonir eru bundn-
ar við þá hjálp sem hugsan-
legt er að Nordisk Grafisk
Union láti í té í þessu sam-
bandi. Alls staðar sem við
komum var spurt um þetta
mál og þá samstöðu sem í
því felst. Vonin við þessa
lausn og samstöðu verka-
fólks er afar mikil.
Við svöruðum þessum
vonum félaga okkar í Nicar-
agua í hvert skipti á þann
veg að hvað við best vissum
væri ætlunin að fylgja þessu
verkefni eftir innan NGU
og að við sem félagar í DTF
vonuðum að svo yrði, enda
þörfin mikil.
Uppbygging verka-
lyðshreyf ingarinnar
í Nicaragua eru 7-8
sambönd verkafólks og
skiptast þau nokkuð eftir
pólitískum skoðunum.
Kjara- og launamal
Mánaðarlaunin í ríkisprentsmiðjum í Nicaragua eru sem
hér segir:
Offsetljósmyndarar .................. 47.700 Cordobas
2 lita offsetprentvélar ............. 33.450 —
1 lita offset- og hæðaprentun ....... 30.600 -
Vélsetjarar ......................... 30.600 —
Handsetjarar ........................ 27.750 -
Bókbindarar.......................... 24.900 -
100 Cordobas eru u. þ. b. 4,50 ísl kr.
í þeim fyrirtækjum sem rekin eru af einkaaðilum eru
launin að jafnaði hærri en á móti kemur að í ríkisfyrirtækj-
um fylgja tvær máltíðar á dag og greidd eru tvö sérstök
mánaðarlaun í desember og 2ja vikna orlof.
PRENTARINN 1.7. '87
13