Prentarinn - 01.01.1987, Blaðsíða 14
Hin tvö Sandinisku lands-
sambönd, CST og ATG eru
lang stærst en í þeim er ann-
ars vegar verkafólk í borg-
um og bæjum og hins vegar
landbúnaðarverkamenn.
Hvað bókagerðarmennina
snertir eru þeir allir skipu-
lagðir í CST. Á stærri vinnu-
stöðum er fólkið sjálfstæðir
aðilar að CST. í prent-
fyrirtækjum í einkarekstri
sameinast menn í félaginu
„Arnold Real Spinosa"
(heitir í höfuðið á gömlum
félaga og Sandinista), í fé-
laginu eru um 900 félagar og
á félagið aðild að CST.
Um þessar mundir á sér
stað umræða um að sameina
alla bókagerðarmenn í einu
félagi. Liður í þessu starfi
var sameiginlegur fundur
sem haldinn var 12. aprfl
s. 1. Þar var nauðsyn sam-
einingarinnar rædd og að-
ildin að CST.
Fátæk samtök
Bókagerðarmenn borga
1% af launum sínum til fé-
lagsins og þar sem launin
eru ekki sérlega há þýðir
það að félagið er fátækt. Fé-
lagið hefur því einungis ráð
á að hafa einn launaðan
starfsmann, það er ritarinn,
Luis Lopes og er það lán
félagsins að maðurinn er af-
burða duglegur og starfs-
samur. Á hverjum degi
gengur hann á milli 15 - 20
km í 35 - 40 stiga hita á
milli prentsmiðja. Hann fer
reglulega til allra fyrirtækja
og ræðir um hin ýmsu mál
sem uppi eru svo sem
launamál, matinn, fundar-
tíma, hvort óskað er eftir að
skipta um vinnustað eða
hvort einhverjir samstarfs-
örðugleikar eigi sér stað við
stjórnendur. Ef svo er
reynir hann að miðla mál-
um. Félagið hefur aðstöðu
heima hjá formanninum,
Caramellos í einu herbergi.
Á hverjum laugardags-
morgni eru haldnir stjórnar-
fundir. Á hverju miðviku-
dagskvöldi er svo opið hús
fyrir félagsmenn í húsi CST.
Félagið hefur ekki efni á að
reka bfl, sem er þó afar að-
kallandi í höfuðborginni
Managua þar sem fólks-
flutningar eru afar slæmir.
Þátttaka er nú alger
meðal þjóðarinnar í þjóðar-
átaki varðandi kaffi- og
bómullarræktina og bólu-
setningu þjóðarinnar. Sams-
konar þjóðarátaki og gert
var fyrir nokkrum árum
gegn ólæsi með ótvíræðum
árangri. mes þýddi
14
PRENTARINN 1.7. '87