Prentarinn - 01.10.1999, Blaðsíða 3

Prentarinn - 01.10.1999, Blaðsíða 3
Stjóm Prenttœknistofnunar f.v. Guðmundur Kristjánsson, Georg Páll Skúlason, Sœmundur Arnason og Guðbrandur Magnússon, Guð- mundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambands íslands og Ómar Hannesson formaður Samtaka atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði við undirritun samnings um hinn nýja Margmiðlunarskóla. Prenttæknistofnun og Rafiðnaðar- skólinn hafa stofnað nýjan skóla, Margmiðlunarskólann, þar sem kennd verður margmiðlun. Samn- ingur þess efnis var undirritaður 14. desember 1999. Þó að stuttur tími sé liðinn síð- an Prenttæknistofnun og Rafiðn- aðarskólinn fóru að bjóða upp á sérstakt margmiðlunarnám hafa orðið gífurlegar breytingar á bún- aði, jafnt vélbúnaði og hugbúnaði í margmiðlunarumhverfmu. Há- tæknileg þekking og skilningur á vélbúnaði eru að verða sífellt veigameiri þættir í umhverfi margmiðlunar. Ekki síður eru að verða umfangsmiklar breytingar á útgáfuiðnaði; útgáfa á netinu og geisladiskum fer ört vaxandi og mörg tækifæri til nýsköpunar í augsýn. Mörg fyrirtæki í útgáfu- iðnaði standa nú frammi fyrir því að sinna samhliða útgáfu sams- konar efnis fyrir marga miðla; prentmiðla, net, diska o.s.frv. Þetta gerir miklar og síauknar kröfur urn búnað og verkferli. Hið nýja tæknilega umhverfi læt- ur sig engu skipta gömul starfs- greinamörk, forsenda fyrir áfram- haldandi þróun fyrirtækjanna er að þau hafi fólk með sérfræði- kunnáttu á sviði upplýsinga-, tölvutækni og gagnavinnslu. Tilgangur Prenttæknistofnunar og Rafiðnaðarskólans með stofn- un Margmiðlunarskólans er að svara þessari þörf og örva með því nýsköpun í atvinnulífinu. Eigendur Prenttæknistofnunar og Rafiðnaðarskólans töldu rétt að nýta sér þá sérþekkingu og þann árangur sem skólarnir hafa á markaðnum, hvor á sínu sviði, til þess að byggja upp nýjan Marg- miðlunarskóla í samvinnu. Markmið skólans eru: • Að vera ávallt í forystu í ný- sköpun náms og námskeiða á margmiðlunarsviði fyrir ein- staklinga og fyrirtæki. • Að kennsla, námsgögn og að- búnaður nemenda verði eins og best verður á kosið. • Að nám í skólanum svari ætíð þörfum atvinnulífsins fyrir menntun á sviði margmiðlun- ar, þannig að atvinnutækifæri nemenda að loknu námi séu góð. Boðið verður upp á tveggja ára metnaðarfullt nám í margmiðlun og ýmis námskeið sem tengjast margmiðlun; upplýsinga- og tölvutækni og gagnavinnslu. Kennsla hefst 31. janúar 2000. Stjóm skólans skipa átta full- trúar Prenttæknistofnunar og Raf- iðnaðarskólans. Fulltrúar Prenttæknistofnunar í stjórn em Georg Páll Skúlason, Sæmundur Arnason, Guðmundur Kristjánsson og Guðbrandur Magnússon sem jafnframt er for- maður stjórnar. Skólastjóri Margmiðlunarskól- ans verður Jón Arni Rúnarsson. Samhliða þessum breytingum mun Prenttæknistofnun flytja að- setur sitt í nýtt húsnæði Marg- miðlunarskólans að Faxafeni 10, 1. hæð, eftir áramót. Um þessar mundir vinnur stjóm Prenttæknistofnunar að því að endurskipuleggja starfsemi stofnunarinnar í ljósi breytinga sem að ofan eru kynntar. Við væntum mikils af þessu samstarfi við Rafiðnaðarskólann. Jafnframt þessum samningi hefur verið gerður samningur um að- gang og afslátt af námskeiðum sem era á vegum Rafiðnaðarskól- ans og skóla í eigu þeirra s.s. Við- skipta- og tölvuskólans ofl. og verður það kynnt nánar síðar. Georg Páll Skúlason PRENTARINN ■ 3 prentarinn ■ MÁLGAGN félags bókagerðarmanna Ritnefnd Prentarans: Georg Páll Skúlason, ritstjóri og ábyrgðarmaður. Jakob Viðar Guðmundsson, Kristín Helgadóttir, Sævar Hólm Pétursson, Þorkell S. Hilmarsson. Ábendingar og óskir lesenda um efni í blaðið eru vel þegnar. Leturger&ir í Prentaranum eru: Helvitica Ultra Compress, Stone, Times, Garamond o.ll Blaðið er prentað á 135 g Ikonofix silk. Prentvinnsla: Filmuútkeyrsla: Scitex Dolev 4press, Slembirasti 100 Iwres, kúrfa normal. Prentvél: Heidelberg Speedmaster 4ra lita. Svansprent ehf. Forsíban Sæmundur Haraldsson bókagerðarmaður í Hvítu Örkinni er hönnuður forsíðunnar sem hann nefnir 10110. Forsíðan er hans framlag í forsiðukeppni Prentarans og var meðal fjögurra verka sem valin voru af dómnefnd til birtingar.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.