Prentarinn - 01.10.1999, Blaðsíða 21
menningar á þjóðfrelsisöld og ber
í látleysi sínu öll einkenni sannrar
byggingarlistar.
SKRÚÐI OC ÁHÖLD
Liklega er elsti gripur Miðdals-
kirkju patína úr silfri sem á er
grafin dextra domini eða hægri
hönd drottins ásamt krossi á
barmi. Hún gæti verið frá miðöld-
um. Ahöld kunna þó að vera um
hvor er eldri, patínan eða önnur
klukka í tumi. Hún er mjög fom-
leg. Telja má víst að hún sé ein
þeirra klukkna sem getið er 1623.
Næstur að aldri er kaleikur úr
silfri í renessansstíl frá 1633,
merktur Kaupmannahafnar-
stimpli, gefinn kirkjunni skömmu
fyrir 1644 af staðarhaldaranum
séra Gottskálk Oddssyni. Hin
klukkan gæti verið næst í röðinni,
komin í kirkjuna skömmu fyrir
1723. Altaristaflan sú minni, með
mynd af kvöldmáltíðinni og inn-
setningarorðum fyrir neðan, var
gefín af séra Þorvarði Auðunssyni
í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
skömmu fyrir 1770, sennilega
danskt verk. Einn merkasti gripur
kirkjunnar er prédikunarstóllinn.
Hann var gefinn 1840 af séra Páli
Tómassyni staðarhaldara í Miðdal
en gerður og skreyttur af Ofeigi
Jónssyni sem löngum var kenndur
við Heiðarbæ í Þingvallasveit.
Frá jólamessu í Miðdal árib 1995.
Yfir verk Ófeigs var búið að
margmála en litskreyti var sett til
upprunalegs horfs. Söngtafla og
númerakassi eru einnig eftir
Ófeig, gerð um svipað leyti ásamt
ljósbera sem nú er á byggðarsafn-
inu á Selfossi. Árið 1852 gaf
maddama Halla Ingvarsdótdr,
kona séra Guðmundar Torfasonar
er hélt Miðdal 1847 til 1860, pat-
ínudúk úr flaueli með baldýruðu
verki. Sóknarfólk gaf kirkjunni
árið 1874, að frumkvæði Guð-
mundar bónda Jónssonar í Mið-
dal, ljósastjaka tvo úr silfurpletti
og altarisklæði úr rauðu damaski.
Þremur árum síðar gaf Guðmund-
ur sjálfur ljósakrónu og ljósasöx.
Árið 1907 var altaristaflan sú
stærri keypt frá Kaupmannahöfn
en orgelið kom í kirkjuna 1913, í
öndverðu gert í Stokkhólmi. Þrí-
arma koparstjaka gáfu hjónin Ing-
unn Eyjólfsdóttir og Böðvar
Magnússon 1929. Glerflösku und-
ir vín gaf Þorbjörg Þorkelsdóttir
1926. Altarisdúk vann og gaf
Arnheiður Böðvarsdóttir 1988.
Sœmundur Arnason
PRENTARINN ■ 21