Prentarinn - 01.10.1999, Blaðsíða 12

Prentarinn - 01.10.1999, Blaðsíða 12
Prentiönaöurinn verö- ur ab horfa til margra átta, sá tími er libinn ab einungis var um ab ræba hinar hefb- bundnu ibngreinar. Þú hefur verid í öryggisnefud prentiðnadarins. Hvernig er staðan í þeim efnum? Öryggisnefnd í prentiðnaði er eina nefndin sem starfað hefur óslitið frá því að lög voru sett þar um. Eg veit ekki til að það hafi starfað öryggisnefndir hjá öðrum iðngreinum svo lengi. Það hafa verið sett í gang ýmis verkefni, sem ég held að hafi stuðlað að mun betra upplýsingaflæði til fyr- irtækja og bókagerðarmanna og ég vona, að okkur takist að halda því starfi áfram, því ef eitthvað er þá þarf stöðugt að vera að bæta um betur. Nú hafa jurtahreinsiefni mikið rutt sér til rúins við hreinsun á prentvélum. Not- ið þið hér á Morgunblaðinu slík efni? Nei, við getum ekki notað slík efni á prentvélina. Það er fyrst og fremst vegna þess að framleið- andinn hefur ráðlagt okkur að gera það ekki. Það er ekki alveg hægt að bera saman þessa vél hjá okkur og þær prentvélar sem al- mennt eru hér á landi. Það er allt önnur uppbygging á vélinni og menn eru mjög hræddir við að jurtahreinsirinn sem byggist mik- ið upp á sojaolíum eða jurtaolí- um, geti komist inn í legur og gíra í vélinni og skaðað þannig. En við höfum fylgst mjög náið með hreinsiefnum og fáum alltaf það nýjasta sem fæst og eru nán- ast öll hreinsiefni sem við notum merkt þannig að þau eiga að vera nánast hættulaus. Núna er í gangi hérna hjá okkur á Morgunblaðinu undirbúningur að því að fara í út- tekt á staðli ISO 14001, sem er umhverfisstaðallinn, og fá vottun á allt fyrirtækið, þannig að þar í kemur sjálfkrafa mjög strangt og mikið eftirlit með allri efnanotkun og öllum öryggisþáttum í fyrir- tækinu. / nýútkominni fréttatilkynn- ingu frá Bókasambandi ís- lands kemur m.a. fram að 10% afþeim bókum sem koma út núna fyrir jólin eru 12 ■ PRENTARINN prentuð í Danmörku þar sem laun eru 20-25% hœrri en hér. Hvernig stendur á þessu, skila Danimir svona miklu betri vinnu en við eða hvað? Eg held nú að þetta með launin sé að verða mikill misskilningur. Þær kannanir sem hafa verið gerðar undanfarið, og þegar búið er að taka tillit til skatta o.fl., sýna að mikið hefur áunnist, þannig að ég held að launin séu ekki orsökin. Raunverulega ætti þetta að vera öfugt, því ef laun eru svona há í Danmörku, eða í Evrópu, þá ætti verkið að vera miklu dýrara, þannig að sam- keppnisstaða okkar ætti þá að vera miklu betri, en það hefur hún ekki verið. Þegar menn hafa verið spurðir að þessu hefur svarið oft- ast verið að framleiðnin væri miklu meiri erlendis. Samkeppni í prentiðnaði er ekkert öðru vísi en sú samkeppni sem annar iðnaður þarf að horfast í augu við. Frjáls samkeppni er sem betur fer orðin að veruleika hér á landi og við Tæknilega er í sjálfu sér ekkert erfitt ab framkvæma þab, en ef 97 þúsund króna laun- in yrbu færb upp í 147 þúsund þá hefbi ég nú gaman af því ab heyra í þeim sem eru meb 147 þúsund króna launin. Þar held ég nú ab hnífurinn standi í kúnni. verðum að horfast í augu við það eins og allir aðrir. Nú eru samningar lausir í mars n.k. Hvernig leggst það í þig? Eg veit ekki hvað ég á að segja um það. Eg held að það sé ekki hægt að svara þvx öðru vísi en þannig, að maður vonar í lengstu lög, að menn beri gæfu til þess að láta kaupmáttinn halda sér og sprengi ekki allt í loft upp þannig að verðbólgan fari af stað. Ef hver lítur sér næst, þá þurfa menn ekki annað en að gá að því hvað þeir skulda mikið og hvað skuld- imar hækka ef verðbólgan fer í gang. Verða atvinnurekendur með einhverjar sérstakar áhersl- ur í komandi samningum? Eg get ekki svarað því hér, sú vinna er ekki komin það langt. Eru engar kröfur komnar fram frá FBM ennþá?

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.