Prentarinn - 01.10.1999, Blaðsíða 22
Heimild: Dansk Crafia 20/1999
í síðasta tölublaði
Prentarans birtist
þýðing á grein úr
Dansk Crafia um
þetta endurbætta
umbrotsforrit frá
Adobe.
Nú hefur umboösaðili
forritsins í Danmörku
komið með nokkrar
athugasemdir við
greinina. Þýtt og
endursagt: ÓIEm.
með annmörkum
Uppfærsla frá
QuarkXPress
Tilgreind dæmi í umræddri
grein hafa verið prófuð í síðustu
útgáfu forritsins og niðurstaðan
er næstum fullkomin uppfærsla,
m.a. „Texti í reit“ sem uppfærðist
alveg rétt. Sama gildir um 12
síðna harmonikkubrotið, sem líka
uppfærðist rétt á 2x6 bls.
Það er reyndar ekki heppilegt
að hafa fleiri og stærri síður í
þessu uppbroti.
InDesign er með 10 síðna há-
marksfjölda í uppbroti af stærð-
inni 5,5 x 5,5 m. Þetta þýðir að
hámarksstærðin er 5,5 x 55 m!
Myndaupplausn í InDesign
getur þú breytt á þann hátt, að
þegar mynd er innfærð, t.d.
Photoshop-mynd (þ.e. með raun-
verulegu Photoshop-sniði, TIFF-
eða EPS-snið þarf ekki), þá stillir
þú skjáupplausnina.
Jafnframt er mögulegt að
skipta á milli fínnar og grófrar
upplausnar á myndunum.
Skráaflutningssniðið
PDF
Ég var leiður yfir því að ekki
var meira skrifað um flutning
PDF-skráa. Það er hægt í
InDesign að geyma beint með
PDF-sniði án þess að þurfa fyrst
að búa til PostScript-skrá og síð-
an að færa skrána í Distiller.
Distiller er innbyggt í InDesign
og við getum þess vegna snarlega
gert bæði skjáútgáfu og prent-
hæfa útgáfu I PDF-sniði. Það er
ekkert leyndarmál að Adobe álít-
ur PDF-sniðið vera og munu
verða mest notaða rafræna skráa-
snið í framtíðinni og viljum við
þess vegna styðja þá þróun í for-
ritum okkar.
Með kveðju,
Per Haslev, Adobe Systems
Danmark
Það er alltaf gaman að lesa Dansk
Grafia, helst vegna hinna athygl-
isverðu greina sem eru tileinkað-
ar framleiðslu og forritum. Þó er
ég leiður yfir því að greinin um
prófun á AdobelnDesign skyldi
ekki heppnast sem skyldi. Ég hef
nokkrar skýringar við greinina.
Sjálfvirkt
textaflæði
Það er ljóst, að InDesign er á
margan hátt ólíkt QuarkXPress,
ekki aðeins í verði, heldur einnig
það hvernig forritið starfar, svo
og notendaviðmót. En í tengslum
við sjálfvirka textaumbrotið, þar
sem textinn flæðir inn á síðurnar,
þá þarf aðeins að halda niðri
„shift“-takkanum þegar textainn-
setningar-íkonið kemur á skjáinn.
Flæðir þá textinn inn á síðurnar
og þær fjölga sér eftir textamagn-
inu. Maður þarf þess vegna ekki
að huga að því í upphafi skjals
hve margar blaðsíður það verður.
Umbrot og
setning
InDesign vinnur sjálfvirkt um-
brotinn texta kallaðan „Adobe
InDesign Tagged Text“ á sama
hátt og QuarkXPress. Skipanimar
eru öðruvísi en í Quark, en þær
eru yfirleitt ekkert erfiðari í notk-
un. Það umbrot, sem skilgreint er
í textanum, t.d. í Word, WordPer-
fect eða öðrum forritum, uppfær-
ist auðvitað sjálfvirkt í Adobe
InDesign.