Prentarinn - 01.10.1999, Blaðsíða 14

Prentarinn - 01.10.1999, Blaðsíða 14
SlllOS Rafidnadarsai F.v Kalman le sage de Fontenay formaður FGT, Guðmundur Gunnarsson formaður RSl, Magnús L. Sveinsson formaður VR, Scemundur Arnason formaður FBM, Lúðvík Geirsson fyrrv. formaður B1 og Jón Asgeir Sigurðsson formaður SSR. Þann 23. október sl. var haldið þing Fjölmiðlasambandsins. Georg Páll Skúlason var kjörinn þingforseti og ritari þingsins var Helgi Gunnarsson. Skýrsla stjórnar Lúðvík Geirsson form. fór yfir aðdragandann að stofnun sam- bandsins sem telur á þriðja þús- und félagsmanna og það starf sem stjóm hefði innt af hendi á þessu fyrsta starfsári sínu, en fram kom hjá Lúðvík að endurmenntunar- málin hafa verið stærstu mál stjórnar og sú vinna hefur skilað því að náðst hefur samkomulag um að veita öllum félagsmönnum FMS góðan afslátt af öllum lykil- námskeiðum sem þær eftirmennt- unarstofnanir bjóða upp á sem til- heyra félögum í FMS, en þær eru Prenttæknistofnun og Rafiðnaðar- skólinn. Þá gat hann þess að gerð hefði verið sérstök þarfagreining vegna námskeiða og á grundvelli hennar munu væntanlega Rafiðn- aðarskólinn, Prenttæknistofnun og fleiri aðilar s.s. Háskólinn í sam- vinnu við FMS leggjast á eitt um að bjóða upp á fjölbreytt nám í hagnýtri fjölmiðlun. Lúðvík gat þess einnig að sam- starf hefði verið með fe'lögunum varðandi orlofshúsamál, en frek- ari umræður þyrfti til og að skýr- ari reglur væru um úthlutanir og bókunartíma, sérstaklega yfir vetrartímann. Sambundið hefur verið að fóta sig og reyna að festa rætur á þessu fyrsta starfsári, en Lúðvík sér fyrir sér meira og nánara sam- starf t.d. hvað varðar kjarasamn- inga, sem jú eru lausir eftir nokkra mánuði. Að lokum þakk- aði Lúðvík samstarfsmönnum í stjórn fyrir ánægjulegt samstarf með ósk um enn öflugra starf á nýju starfsári. Reikningar FMS og árgjald Georg fór yfir reikninga sam- bandsins sem voru einfaldir í sniðum þetta fyrsta starfsár. Efna- hagsreikningur sambandsins eftir fyrsta starfsár sýnir inneign upp á um 143.000 kr. Reikningarnir voru samþykktir án frekari um- ræðu. Tillaga kom frá fráfarandi stjóm um óbreytt árgjald kr. 30.000 per félag og var það sam- þykkt. Kosningar í samræmi vib lög FMS Georg kynnti tilnefningar félag- anna í stjórn Fjölmiðlasambands- ins, en skv. lögum þess eru stjóm- 14 ■ PRENTARINN armenn tilnefndir af félögunum, en ekki kosnir á þinginu. Tilnefn- ingar voru svohljóðandi: Aðalmenn: Lúðvík Geirsson BÍ, Hafliði Sívertsen RSÍ, Sæ- mundur Ámason FBM, Pétur A. Maack VR, Jón Ásgeir Sigurðs- son SSR, Kalman le Sage de Fontenay FGT. Til vara: Hjálmar Jónsson BI, Guðmundur Gunnarsson RSI, Ge- org Páll Skúlason FBM, Jóhanna Vilhelmsdóttir VR, Jóhanna Mar- grét Einarsdóttir SSR. Skoðunarmenn voru kosin: Ástvaldur E. Kristinsson Rafiðn- aðarsambandi íslands og Sigríður Hafdís Benediktsdóttir Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur. Umræbur málefna a) framtíð og staða FMS: Lúðvík hafði framsögu um þetta mál og fór í upphafi yfir hlutverk sambandsins sam- kvæmt lögum þess. Hann sagði að þrátt fyrir ágæta sam- vinnu á þessu fyrsta ári væri mikið óunnið og mörg mark- mið ófyllt af þeim sem við höfum sett okkur. Varðandi framtíðina sér Lúð- vík fyrir sér virkt og skipulegt samstarf trúnaðarmanna félag- anna á stórum vinnustöðum, sameiginlega fundi forystu- manna félaganna með starfs- fólki á öllum helstu vinnustöð- um. Einnig telur hann brýnt að FMS leggi línur sameiginlega nú í undirbúningi komandi kjarasamninga, móti drög að starfsmannastefnu og grunn að vinnustaðasamningum. Nú reyni á það í vetur hver staða FMS er og hvort vilji sé til að sýna samstarf og sam- stöðu með ríkari hætti en verið hefur. FMS hefur alla burði og getu til að sækja í sig veðrið og gera sig meira gildandi. Stofnun sambandsins vakti verulega athygli bæði hér heima og erlendis. Skipulag verkalýðshreyfingar- innar mun taka miklum breyt- ingum á næstu árum, félög sameinast og taka breytingum. Mikilvægt er að við höldum okkar striki og sýnum fram á gildi þess að starfa saman á þessu sértæka vinnustaðasviði. Hvort kemur að því fyrr eða sfðar að einstök félög í okkar röðum, fleiri eða færri, sam- eini krafta sína verður tíminn að leiða í ljós. Nokkur umræða varð um þetta málefni meðal fundarmanna. b) samruni sjónvarps, tölvu og sírna - Stefna FMS Kynnt var ályktun í sambandi við þetta málefni og var henni vísað til frekari útfærslu hjá stjórn.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.