Prentarinn - 01.10.1999, Qupperneq 6

Prentarinn - 01.10.1999, Qupperneq 6
Sveinbjörn Hjálmarsson Xplor - vettvangur fagmanna Það var rnér gleðiefni þegar Georg Páll Skúlason kom að máli við mig og falaðist eftir grein um samtökin Xplor Intemational og vona ég að þessi skrifmín verði ein- hverjum til fróðleiks. Alþjóðasamtökin Xplor eru tuttugu ára og hafa sinnt fræðslu- og kynningarmálum þeirra sem starfa í skjalavistun og stafrænni vinnslu og prentun skjala. Mark- mið samtakanna er að halda ráð- stefnur fyrir einstaklinga og fyrir- tæki þar sem mönnum gefst kost- ur á að læra það nýjasta í raf- rænni gagnavinnslu og hitta fólk sem starfar innan sama geira. I upphafi skilgreindu samtökin hlutverk sitt sem það að auðvelda skjalanotkun og prentvinnslu gagna. Skipti þá engu hvernig skjalið var saman sett, prentað á pappír, geymt á seguldiski, eða sent sem rafboð um símalínu. Eft- ir því sem tækninni hefur fleygt fram hafa samtökin lagað sig að breyttum aðstæðum. Netið breytir eðlilega starfsemi samtakanna, því það auðveldar öll samskipti og eykur alþjóðlegt hlutverk Xplor. Aðalráðstefna Xplor Intemational er haldin ár hvert vestur í Bandaríkjunum. í ár var hún haldin í Los Angeles. Ráð- stefnuna sóttu 15.000 gestir frá 40 löndum. I þá 5 daga sem ráðstefn- an stóð yfir voru í boði fyrir ráð- stefnugesti 350 fyrirlestrar sem spönnuðu allt það helsta sem er að gerast í rafrænni gagnavinnslu. Einnig kynntu 240 fyrirtæki vörur sínar og þjónustu. Þann 15. október í fyrra var haldin fyrsta kynningar- og náms- stefna Norðurlandadeildar Xplor á Grand Hótel í Reykjavík. Á ráð- stefnuna mættu 65 manns frá prentiðnaði, tölvudeildum fyrir- tækja og stofnana og fólk sem fæst við hönnun gagna og sölu hugbúnaðar og vélbúnaðar fyrir gagnavinnslu og prentun. Jimmy Lundback, þáverandi forseti Norðurlandadeildar Xplor, kynnti samtökin ásamt Adriana Kegley frá Evrópuskrifstofu Xplor. Einnig voru tveir fyrirles- arar, Dave Nesbit frá Xerox og Finn Mogensen frá i-data Intemational, sem fjölluðu um möguleika í stafrænni prentun, vistun og prentun gagna. Ráð- stefnunni lauk svo með léttum veitingum þar sem ráðstefnugest- 6 ■ PRENTARINN um gafst kjörið tækifæri að skipt- ast á skoðunum. Norðurlandadeild Xplor stend- ur fyrir einni eða fleiri ráðstefn- um á ári hverju. I ár hefur verið ákveðið að halda svokallað Xplor 2000 Road Show (farandfundi) sem byrjar í Kaupmannahöfn 7. febrúar, fer þaðan til Sollentuna I Svíþjóð 8. febrúar, næsti áfanga- staður er Osló 9. febrúar og ráð- stefnunni lýkur svo í Reykjavík 11. febrúar. Aðalþema ráðstefnunnar er One to One Access (bein sam- skipti). Tveir eða fleiri erlendir fyrirlesarar verða með fyrirlestra á öllum stöðunum. 1 Reykjavík verður ráðstefnan haldin í Versölum, Hallveigarstíg 1, og byrjar kl. 9.00 og stendur til kl. 17.00. Fyrirlesarar eru Tony Kenton frá IT-IQ Bretland, sem fjallar um nýjustu strauma í prentiðnaði, og einn af framá- mönnum Nokia, sem fjallar um nútíma fjarskiptatækni, þar á eftir fylgja þrír fyrirlestrar sem betur verða auglýstir síðar. Eftir hádegi verður kynning frá eftirtöldum framleiðendum: Indigo, Hewlett- Packard, IBM, Xerox, og Heidel- berg/Digital-Kodak á vélbúnaði Sveinbjörn og Sue Lach. fyrir það nýjasta í stafrænni prentun. Þetta er því kjörið tækifæri fyr- ir fólk í prentiðnaði að kynna sér það nýjasta í samskiptatækni og rafrænni prentun gagna en rafræn prentun mun hafa mjög mikil áhrif á prentiðnaðinn á komandi árum. Þeir sem vilja fá frekari upplýs- ingar geta farið inn á heimasíðu Xplor International www.xplor.org, haft samband við Sveinbjöm Hjálmarsson í síma 533 5252 eða sent tölvupóst til: sveinbjom@umslag.is Sveinbjörn Hjálmarsson Höfimdur rekur fyrirtœkið Umslag ehfi Hann var kosinn forseti Norður- landadeildar Xplor í byrjun árs og var valinn maður samtakanna 1999 (Xplorer of the year 1999).

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.