Prentarinn - 01.10.2003, Blaðsíða 2
Látnir félagar
Elín Guðmundsdóttir,
húsmóðir, fædd 16. júlí 1912,
lést 12. júní 2003. Hún var
meðal stofnenda Kven-
félagsins Eddu árið 1948 og
formaður um 20 ára skeið.
Elín átti sæti í Félagsheimilis-
nefnd H.Í.P. 1956-1967 og sá
um rekstur félagsheimilisins.
Elín var gift Stefáni
Ögmundssyni, prenfara, sem
lést 1989.
Heiðar Guðlaugsson,
fæddur 24. júlí 1927. Varð fé-
lagi 1. október 1947. Tók
sveinspróf í bókbandi 1947.
Vann við bókband m.a. í Fé-
lagsbókbandinu og Borgar-
prenti þar til hann lét af störf-
um sökum aldurs. Heiðar lést
þann 7. júní 2003.
Elín Jónatansdóttir,
fædd 24. nóvember 1912.
Varð félagi 22. september
1936. Elín vann alla tíð
aðstoðarstörf í bókbandi.
Síðustu árin í Odda þar til hún
lét af störfum sökum aldurs.
Elín lést þann 30. mars 2003.
Jón G. Jóhannsson,
fæddur 3. nóvember 1930.
Varð félagi 5. febrúar 1951.
Jón nam prentiðn í Prent-
smiðju Jóns Helgasonar og
tók sveinspróf í prentun 1950.
Starfaði þar næstu árin en hóf
störf í prentsmiðju Suðurlands
1959 og starfaði þar til ævi-
loka.
Jón lést þann 4. apríl 2003.
Gunnar Maggi Árnason,
fæddur 24. desember 1940.
Gunnar Maggi hóf nám I off-
setprentun í Lithoprent 1959
og tók sveinspróf 1964. Starf-
aði síðan við iðngrein sína í
Skotlandi og prentsmiðjunni
Litbrá þar til hann stofnaði
Prenttækni sem hann rak til
æviloka. Gunnar Maggi starf-
aði um árabil í sveinsprófs-
nefnd í offsetprentun og var
virkur þátttakandi í öllu starfi
er laut að menntamálum
prentiðnaðarins.
Gunnar Maggi lést þann
23. ágúst 2003.
Páll Ólafsson,
fæddur 4. apríl 1940. Varð
félagi 22. febrúar 1965. Páll
hóf prentnám í Alþýðuprent-
smiðjunni 19. september 1960
og tók sveinspróf 11. janúar
1965, starfaði þar til 1972. í
prentsmiðju Árna Vald. til
1982. Steindórsprenti til 1992
og síðustu árin í Gutenberg.
Páll lést þann 28. maí 2003.
Sturla Tryggvason,
fæddur 6. júní 1930. Varð
félagi 1. október 1952. Sturla
tók sveinspróf í bókbandi
1952. Starfaði í Bókfelli,
Sveinabókbandinu og Odda.
Sturla lést þann 3. júní 2003.
2
■ PRENTARINN