Prentarinn - 01.10.2003, Síða 19

Prentarinn - 01.10.2003, Síða 19
Skjár kvarðaður með litmœli. Umhverfis framhlið skjásins eru Ijós- hlifar sem koma í vegjvrir að Ijós frá umhverfinu falli á gler skjás- ins. lagi aðferðir sem byggjast á mæl- ingum. Sjónræn kvörðun tölvuskjáa er vel þekkt og mikið notuð í prentsmíða- og hönnunargeirum grafíska iðnaðarins. Vinsælt tæki til þess ama er Adobe Gamma sem fylgt hefur Photoshop síðan í útgáfu 5,0. Tilraunir hafa sýnt að frávik milli lita í myndskránni og skjámyndar þar sem slíkar kvörð- unaraðferðir eru notaðar eru oft AE 20. Þessi stillitæki eru e.t.v. betri en ekkert ef ekki er ætlunin að dæma af nákvæmni um liti eft- ir skjámynd, en þegar búa á til hágæða skjáprófíla ætti að gera þessi tæki óvirk eða ijarlægja þau úr tölvunni. Með aðferðum sem byggjast á mælingum má ná mikilli ná- kvæmni í kvörðun, jafnvel svo að litfrávik milli myndskrár og skjá- myndar sé ekki nema AE 3. Sérstakir hugbúnaðir til kvörðunar og skjáprófílagerðar em ýmist innbyggðir í skjáina eða framleiddir af fyrirtækjum sem sérhæfa sig í slíku og oft fylgir þá litrófsmælir með í pakkanum. Profile Maker og Eye One frá GretagMacbeth er dæmi um slíka pakka en einnig má nefna Monaco Profíler og View Open frá Heidelberg. Hugbúnaðurinn lætur skjáinn birta fjölmörg litmerki hvert á fætur öðm. Litrófsmælir er settur framan á skjáinn og tengdur við skjákort tölvunnar. Mælirinn mælir litina með mikilli ná- kvæmni og ber niðurstöðumar saman við viðmiðunargildi. Sam- anburðurinn á þessu tvennu er notaður til að búa til prófílinn. Með þessu móti má stilla marga skjái þannig að skjámyndir þeirra séu eins líkar og tæknilega er mögulegt. Þar sem unnið er með myndir á mörgum tölvum er nauð- synlegt að kvarða alla skjáina á sama hátt, annars rnunu þeir birta sína útgáfuna hver af sömu myndinni. Það þarf að kvarða hvít- og svartpunkt skjásins, birtu (brightness), skil (contrast) og Gamma. Stillingar hvít- og svartpunkt- anna ráða virknisviði (dynamic range) skjásins en Gamma-still- ingin framsetningu miðtónanna. Birtu skjásins og skil þarf að stilla áður en aðrir þættir eru kvarðaðir. Þetta er vanalega gert með stillihnöppum framan á skjánum. Stillingum á birtu og skilum skjásins má alls ekki breyta nema kvarða skjáinn upp á nýtt. Lithiti hvítpunktsins er vana- lega nærri 9300 K þegar skjáir koma frá framleiðanda. Þetta þýðir að hvítpunkturinn hefúr mjög blá- leitan blæ. Það er mjög mikilvægt að öll skoðun og nákvæmt mat lita í grafískum iðnaði fari fram undir stöðluðum D50 (5000 k) ljósgjöf- Monitor Calibration Assistant Drterminp your monitor's current gtmrni 6 Vour monitor's *ctu»l gimm* is affect*>J by contrsst *nd brightnoss sottings »nd oth*r char»ctoristics of your monitor For *ach of the thre* colors bolov, mov« tho slidor until the shapo in th» rmddi* blonds in with tho background as much as possible. It may holp to squint or step back from the monitor. 3.S 1.0 3.S After you have done this step, click the right arrow. l<hlÞl Ein af stillivalmyndum Adobe Gamma stillitœkisins. Stillitœki sem þetta gera mögulegt að stilla skjái upp að vissu marki og eru betri en ekkert. Efœtlunin er hinsvegar að stilla skjái þannig að þeir geti likt nokkuð nákvæmlega eftir prentun á pappir verður að nota flóknari tœki til stillingarinnar. Kvöröun í hnotskurn Það fj’rsta sem þarf að huga að er ástand skjásins sem œtlunin er að nota. Efhann er eldri en 2 ára œtti ekki að nota hann heldurfá sér annan nýrri. Aður en kvörðun skjásins ferfram þarf að liuga að umhverfinu. Skjárinn œtti að vera staðsettur í herbergi þar sem lýsing er dauf og helst stöðug allan daginn. Ljósið umhverfis skjáinn cetti að hafa 5000 K lithita. Það þarf að hafa sérstakan skoðunarkassa við hlið skjásins þar sem fyrírmyndir eða prentmyndir sem bera á saman við skjámyndina eru skoðaðar. Ljósin í skoðunarkassanum þurfa að vera stillanleg þannig að hœgt sé að minnka birtu þeirra til sam- rœmis við Ijóma skjásins. Gœta þarf þess að ekki glampi af gleri skjásins og ekkert utanaðkomandi Ijós falli á hann. Gott er að hafa hlifar á skjánum til að útiloka allt utanaðkomandi Ijós. Það þarf að byrja á að stilla skil og birtu skjásins. Að þvi búmi er hvítpunkturinn stilltur eftir lithita þess skoðunarljóss sem notað er til að skoða prentaðar fyrirmyndir og Ijósmyndir. Oftast er lithitinn 5000 K(D50). Þegar kvörðuninni er lokið og lithitinn er stilltur eins nœrri 5000 K og mögulegt er er hœgt aó gera skjáprófilinn. Það er auðvitað hœgt að notast við einföld stillitœki eins ogAdobe Gamma eða önnur á- líka en til að ná góðum árangri þarf að nota litrófsmœli og sérstak- an kvörðunarhugbúnað honum tengdan. Kvörðunarhugbúnaðurinn lœtur fjölda lita birtast á skjánum og litrófsmœlirinn mœlir litrófs- samsetningu þeirra og ber saman við viðmiðunarliti. Niðurstöður þessara mælinga eru notaðar til að búa til skjálýsinguna. Það er mjög mikilvœgt þegar skjálýsing hefur verið gerð að engum stillingum sé breytt. Límið yflr birtu- og skila- (brightness/contrast) stillihnappana framan á skjánum til að koma i vegfyrir að þeir verði óvart hreyfðir. Efhreyft er við stillingum skjásins þarf að kvarða hann upp á nýtt og gera nýja skjálýsingu. Kvörðunin er ekki fyrir lífstíð. Regluleg kvörðun, t.d. með mánaðar millibili, er bráðnauðsynleg. PRENTARINN ■ 19

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.