Prentarinn - 01.10.2003, Blaðsíða 14
Prentsmiðjan Oddi héit uppá 60 ára afmæli sitt þann 9. október s.l. en
fyrirtækið var stofnað 1943.
í upphafi voru starfsmenn aðeins 3 en eru í dag um 230 þannig að
mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum 60 árum sem liðin eru.
í tilefni dagsins gerðu Oddaverjar sér glaðan dag og boðið var uppá
myndarlegt kökuhlaðborð auk þess sem K.K. og Magnús Eiríksson
kíktu í heimsókn og tóku nokkur létt lög. Prentarinn óskar öllum
Oddaverjum að sjálfsögðu innilega til hamingju á þessum merku
tímamótum og velfarnaðar í framtiðinni.
Ný vél í Prentmet
Prentmet tók nýverið í gagnið nýja og glæsilega prentvél af gerð-
inni ROLAND 706 LTTLV. Vélin er 8 lita og öll hin glæsilegasta og
er m.a. með þreföldu lakkkerfi, UV kerfi, vatnslakki og hefðbundnu
olíulakki auk U V þurrklampa og IR lampa og blásturs fyrir heitt og
kalt loft. Nýja Roland 706 prentvélin var formlega tekin í notkun
þ. 15. ágúst. Cangsetningunni var stýrt af Valgerði Sverrisdóttur
iðnaðarráðherra sem ræsti vélina með glæsibrag og gaf henni nafn
í leiðinni. Vélin var nefnd Bifröst, enda nafnið tengt þeim stað þar
sem hugmyndin að stofnun fyrirtækisins kviknaði en stofnendur
og eigendur Prentmets voru við nám í Viðskiptaháskólanum að
Bifröst i Borgarfirði þegar hugmyndin að öðruvísi prentfyrirtæki
vaknaði. Prentarinn óskar Prentmet að sjálfsögðu til hamingju með
þessa glæsilegu vél og óskar fyrirtækinu veifarnaðar í framtíðinni.
!
i l
rr J
i*j I
14 ■PRENTARINN