Prentarinn - 01.10.2003, Blaðsíða 5
Eymundur Magnússon, stofnandi.
Rústir úr seinna stríði.
Litróf í 60 ár
Litróf er stofnað af Eymundi Magnússyni og Ingimundi
Eyjólfssyni þ. 21. apríl 1943. Fyrirtækið var fyrst til húsa í
Einholti, uppi á lofti í Ofnasmiðjunni. Árið 1944 varð þar
bruni og fluttist fyrirtækið þá að Grettisgötu 51 og var þar til
1958, er það fluttist inn að Hverfisgötu við Hlemm, í húsið
þar sem Náttúrugripasafnið er til húsa. Upp úr 1960 seldi
Eymundur flestallar vélarnar og keypti nýjar sem settar voru
upp inn á Veghúsastíg og var fyrirtækið starfrækt þar til 1970
að það var flutt í eigið húsnæði í Einholti 2.
í ársbyrjun 1983 tók Konráð Jónsson rekstur félagsins á
leigu og keypti síðar. Fyrstu árin eftir að Konráð tók við
hafði fyrirtækið viðkomu á þremur stöðum í Brautarholti en
er nú starfrækt í Vatnagörðum 14. Á þeim tíma sem Konráð
hefur rekið fyrirtækið hefur það þróast úr prentmyndagerð í
fullkomna prentsmiðju og er nú búið nýjum tækjum af
fullkomnustu gerð.
Prentarar Litrófs á góðri stundu í Berlin.
Það var ekki bara keyptur bjór....
Skoðanabræður.
Stuðningsmaður múrsins.
Hópurinn saman kominn við Brandenburgarhliðið.
í dag starfa tólf skemmtilegar manneskjur í Litrófi og
ríkir hér góður andi, þrátt fyrir að mikið sé að gera og
mikið álag stundum. Við reynum að gera ýmislegt til
dægrastyttingar, höldum t.d. bjórkvöld misreglulega, höfum
haldið þorrablót og farið út að borða nokkuð reglulega.
í tilefni af 60 ára afmæli Litrófs fórum við öll ásamt mökum
til Berlínar í þriggja daga ferð síðastliðið vor. Einnig kom
stofnandi Litrófs Eymundur Magnússon með okkur, en
hann er ekki nema 90 ára gamall frá því í maí. Þessi ferð
heppnaðist frábærlega vel, mikil skemmtan og gleði en
allir skiluðu sér heilir heim. Myndirnar á þessari síðu eru
frá Berlínarferðinni.
General Gunnar í góðum gír.
Sumir urðu að sitja úti...
Erlingur Þórsson