Verktækni - 01.04.2002, Qupperneq 4
5
1) F.v. Hákon Ólafsson form. VFÍ, Einar B. Pálsson, byggingarverkfræðincjur,
Óskar Bjarnason efnaverkfræðingur og Logi Kristjánsson framkv.stj. VFÍ.
Einar og Óskar standa báðir á níræðu eins og VFÍ.
2) Hákon Ólafsson afhenti Sigurði Brynjólfssyni, deildarforseta
Verkfræðideildar, gjöf félagsins til deildarinnar.
3) Helgi Hallgrímsson vegamátasljóri tekur við viðurkenningarskjali fyrir hönd
Vegagerðarinnar frá Pétri Stefánssyni formanni nefndarinnar sem útnefndi
verkfræðifrek siðustu aldar. Sturla Böðvarsson var einn ráðherranna sem
tilkynntu niðurstöður og afhentu verðtaunagripi.
4-5) Um 500 manns mættu til afmætishátíðarinnar.
90 ára afmælishátíð VFÍ
Á afmælisdaginn, 19. apríl, var haldið upp
á 90 ára afmæliVFÍ með mikilli viðhöfn.
Um 500 manns mættu á afmælishátíð í
Listasafni Reykjavíkur. F>ar voru veittar
viðurkenningar fyrir helstu verkfræðiafrek
á síðustu öld. Fimm manna nefnd, undir
forystu Péturs Stefánssonar, var falið að
tilnefna þq'ú verk á hverjum áratug aldar-
innar og útnefna síðan eitt sem helsta
verkfræðiafrek hvers áratugar. Pétur kynnti
niðurstöður nefndarinnar og ráðherrar af-
hentu viðurkenningarnar, fallegan verð-
launagrip og viðurkenningarskjal. Utbúin
hafði verið glæsileg myndasýning þar sem
gaf að líta fjölmargar fróðlegar myndir frá
þeim framkvæmdum sem tilnefndar voru
sem verkfræðiafrek á 20. öldinni.
Auk Péturs Stefánssonar voru í nefnd-
inni: Helgi Hallgrímsson, vegamála-
stjóri, ÓlafurTómasson, fyrrverandi
póst- og símamálastjóri, Valdimar K.
Jónsson prófessor og Egill Skúli Ingi-
bergsson, rafmagnsverkfræðingur og ný-
kjörinn heiðursfélagi VFÍ.
Verkfræðideildinni afhent gjóf
{tilefni af afmælinu ákvað stjóm VFÍ að
gefaVerkfræðideild Háskóla fslands
fartölvu,skjávarpa og rafræna áskrift að
CRC handbókinni á tölvutæku formi. Með
gjöfinni vill félagið sýna í verki viðurkenn-
ingu á mikilvægi deildarinnar og styðja við
menntunar- og fræðistörf innan hennar.