Verktækni - 01.04.2002, Síða 9

Verktækni - 01.04.2002, Síða 9
Sjúkrasjóður SV I síðasta tölublaði Verktækni var ítarleg umfjöllun um sjúkrasjóð SV. Nokkuð hefur borið á því að félagsmenn hafi talið sig vera sjóðfélaga án þess að vera það í raun. Verkfræðingar verða sjálf- krafa sjóðfélagar ef greitt er fyrir þá í sjóðinn. Það er því mikilvægt að setja ákvæði í ráðningarsamninga þess efnis. Vinnuveitandi á að greiða lögbundið iðgjald, 1% af launum. Iðgjaldsgreiðslur eru ekki innifaldar í félagsgjaldi SV. Stéttarfélagið veitir allar upplýsingar. Nýlega voru samþykktar breytingar á reglugerð og starfsreglum sjúkrasjóðs. Helstu breytingar eru þær að dagpeningagreiðslur eru nú tengdar launum starfsmanna á þann hátt að miðað er við greidd iðgjöld til sjóðsins. Hægt er að sækja um dagpeninga- greiðslur í allt að 270 daga. Auk þessa er í fæðingarorlofi greidd 5% (til viðbótar 80% úr Fæðingarorlofssjóði) af launum þann tíma sem sjóðfélagi er á launaskrá hjá Fæðingarorlofssjóði (miðað við fullt starf). Kjarakannanir SV 2002 Skilafrestur í kjarakönnun SV 2002 rann út 19. apríl síðastliðinn og tókst að ná betri svörun en í fyrra. Þátttaka var hins vegar minni en vænst var. Samkvæmt upplýsingum frá Félagsvísinda- stofnun HÍ, sem sér um úrvinnslu fyrir SV, hefur þátttaka í sam- bærilegum könnunum minnkað mikið á þessu ári. Það þarf því að gera enn betur á næsta ári. Mikil þátttaka gefur áreiðanlegri nið- urstöður og eru verkfræðingar hvattir til að taka þátt í könnun- inni. Niðurstöður hennar hafa löngum gagnast verkfræðingum vel í kjarabaráttu þeirra. Þátttökuverðlaun em veitt. Þau em ffá fýrirtækinu Tal hf. Búið er að draga út nafn vinningshafa auka- verðlauna en þau em Nokia 3330 TAL GSM sími. Aðalverðlaun em Nokia 3330 TAL GSM sími með 6.000 kr. inneign. Haft verður samband við vinningshafa og verða verðlaunin aflrent um mán- aðamótin maí-júní. Líklegt er að þetta verði í síðasta sinn sem spumingablöð verða send verkfræðingum. Verið er að vinna að því að afla netfanga fé- lagsmanna og em þeir hér með beðnir að senda netföng sín til skrifstofu SV. Netfang Stéttarfélagsins er : sv@sv.is Hafinn er undirbúningur að kjarakönnun á FRV verkfræðistof- um. Slík könnun fór fram árið 2000. Þátttakan þá var mjög góð en bæði SV og KTFI stóðu að henni.Verður svo væntanlega einnig nú. FjöLskyldu- og styrktarsjóður SV Aðild að Fjölskyldu- og styrktarsjóði SV eiga þeir verk- træðingar sem starfa hjá ríki, Reykjavíkurborg og þeim sveitarfélögum sem Launanefnd sveitarfélaga semur fyrir við SV. Þessir verkfræðingar hafa ekki átt aðild að sjúkra- sjóði SV. Verið er að semja reglugerð og starfsreglur fvrir sjóðinn og verður þvf verki vonandi lokið fyrir sumarið. Nauðsynlegt er að taka fram að þessi sjóður er sjálfstæður og ekki hluti af sjúkrasjóði SV, en um sjúkrasjóðinn cr fjall- að á öðrum stað í blaðinu. Girdinaar Þýsk gæöi frá Adronit Hiíð^iá við Menntamilaráðuneytið LeiksKoli Grmdavik Ttg. UNI MIDl Fjóibýiishús KaplasKjólsvegi. Teg Arte Classic

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.